Huppa frá Kluftum. Málverk eftir Halldór Pétursson.
Huppa frá Kluftum. Málverk eftir Halldór Pétursson.
Skoðun 2. nóvember 2026

Aldarafmæli Huppu á Kluftum á Flúðum 3. nóvember 2026

Höfundur: Jón Viðar Jónmundsson
Jón Viðar Jónmundsson.

Þegar þekktar persónur eiga stórafmæli er því stundum fagnað á einhvern hátt. Huppa á Kluftum var sá einstaklingur sem hefur lagt meira til framþróunar mjólkurframleiðslu á Íslandi en nokkur annar. Búnaðarfélag Íslands í samvinnu við heimamenn í Nautgriparæktarfélagi Hrunamanna hélt strax 1946 upp á tvítugsafmæli hennar með Huppuhorninu, sem enn er veglegasti farandgripur nautgriparæktar í landinu. Við stærri afmæli síðar hafa sömu aðilar boðið til veglegra samkoma.

Snemma á þessu ári hitti ég Björn Bjarndal, skógarbónda á Kluftum, og kom tal okkar strax að því að ástæða væri til að halda aldarafmæli Huppu hátíðlegt. Í framhaldinu kölluðum við til fundar á Selfossi nokkra aðila sem við töldum að þar hefðu eitthvað fram að færa. Þeir sem rætt var við sýndu málinu mikinn áhuga og allir tilbúnir til þátttöku. Strax var ákveðið að halda upp á afmælið á Flúðum eins og fyrri afmæli Huppu. Þeir sem standa fyrir ráðstefnunni þar núna eru Nautgriparæktarfélag Hrunamanna, Sveitarfélagið Hrunamannahreppur og Búnaðarsamband Suðurlands.

Ráðstefnan verður haldin í Félagsheimilinu á Flúðum og hefst kl. 11 og stendur til 5 síðdegis á afmælisdeginum, 3. nóvember. Ég fullyrði að allt áhugafólk um nautgriparækt hefur þangað mikinn fróðleik að sækja. Þess vegna er ástæða til að hvetja fólk til að sækja ráðstefnuna. Til að fólk renni ekki blint í sjóinn ætla ég hér á eftir að fara aðeins yfir það helsta sem um verður rætt. 

Bóndinn á Kluftum mun byrja á að kynna starfsumhverfi Huppu á Kluftum en hann þekkir þetta afskekkta heiðarbýli eins og talað var um á dögum Huppu öðrum betur. Í framhaldi verður afmælisbarnið sjálft kynnt.

Huppa var fædd í Skollagróf og þar elst hún upp þar til 1930 að eigandi hennar, Margrét Andrésdóttir, flytur til dóttur sinnar, Sígríðar Árnadóttur, sem hafði nýverið byrjað búskap með Guðmundi Sigurðssyni á Kluftum. Hann og Sigríður áttu Huppu síðan til æviloka hennar og lifði hún Guðmund sem flúið hafði til heiða að Kluftum sunnan úr Hafnarfirði. Huppa var brandskjöldótt og kollótt. Fyrstu þrep ættartrésins kynnt og rætt hvort ættir lengra rati til hulduheima, mannheima eða Danmerkur. Hún bar fyrsta kálfi áður en hún náði tveggja ára aldri. Huppa varð allra kúa elst, var felld haustið 1943 tæplega 17 ára að aldri. Samtals átti hún 17 kálfa á 15 árum, einu sinni tvo. Hún mjólkaði meira en aðrar kýr á þeim árum sem nam um 40% í magni og feitari mjólk en flestar kýr. Af kálfunum 17 voru 12 settir á 7 naut og 5 kvígur. Nautin sum urðu miklir kynbótagripir víða um land og sá yngsti fór að Bændaskólanum á Hvanneyri, að vísu ekki sem nemandi, og bjó þar samt til æviloka. Tvær dætranna urðu landsþekktar kynbótakýr og önnur móðir Repp, Gullbrá, sem var getin í blóðskömm þar sem faðir Repps var Máni, frægasti sonur Huppu. Faðir Repp var að auki afkomandi Huppu gegnum elsta son hennar, Hupp.

Næst mun upplýsingafulltrúi Huppu kynntur af frænda hans, en fulltrúinn var Helgi Haraldsson, bóndi á Hrafnkelsstöðum, sem engum þótti líkur og trúði á huldufólk. Sagt verður af ýmsum frægðarverkum Helga sem eru landsþekkt og ráðstöfun Helga á þekktustu sonum Huppu.

Í framhaldi þessa verður fjallað um dreifingu Kluftastofnsins um allt land. Allar kýr af íslenskum stofni rekja ættir sínar til Huppu. Hana má finna oftar en 100 sinnum í ættartré margra þeirra.

Næst mun Egill Gautason fræða okkur um hvað erfðatæknin segir okkur um gen Huppu og hvernig þau verði best nýtt á næstu árum.

Marta á Kópsvatni segir okkur þætti úr sögu Huppuhornsins, þessa glæsilega listaverks Ríkharðs Jónssonar. 

Sigríður Bjarnadóttir kemur að norðan og segir okkar margt skemmtilegt um litafjölbreytni kúastofnsins og hvaða breytingar á tíðni ólíkra lita í stofninum megi rekja til Huppu en Sigga veit meira um erfðir kúalita hér á landi en nokkur annar.

Guðmundur Jóhannesson fræðir síðan um hve vel Huppunafnið lifir í kúastofninum, auk margs konar annarra skemmtilegra hluta um nafngiftir íslenskra nautgripa, sem er sterkur þáttur íslenskrar búnaðarmenningar.

Síðasta erindið fjallar um nýtt mat á hlut gena Huppu hjá íslensku kúnum í dag. Niðurstöðurnar sýna Huppu sem algerlega einstakan grip í núfjárrækt í heiminum. Hvergi í heiminum mun í dag finnast búfjárstofn í einu landi þar sem hlutur einnar kýr er jafnmikill og hlutur Huppu mælist í dag. Þetta er hin mikla sérstaða hennar.

Okkur þótti léleg nýting á þessu mikla efni að það væri aðeins til umræðu eina dagstund á Flúðum. Var því haft samband við Steingrím Steinþórsson sem rekur SKRUDDU, eitt öflugasta bókaforlag landsins, um að gefa út bók sem er bókin Huppa á Kluftum. Þar kemur á prenti efni allra erindanna, ítarlegra en tími gefst til að kynna á ráðstefnunni. Að auki birtast þar kaflar til viðbótar um íslenska nautgriparækt sem allt sem má tengja Huppu. Bókin er ríkulega myndskreytt, flestar myndir eru af þekktum kynbótagripum úr ræktunarstarfinu. Vonir standa til að bókina megi kynna nánar á ráðstefnunni, auk þess sem hún verður til sölu í flestum betri bókabúðum í framhaldinu. Allir áhugamenn um nautgriparækt, yngri sem eldri, hafa þangað margt að sækja.

Höfundur er sjálfstætt starfandi búvísindamaður.

Skylt efni: Huppa

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu
Skoðun 2. nóvember 2026

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu

Fjárlög eru gjarnan rædd í milljörðum. Tekjur ríkissjóðs, útgjaldarammar, fjárhe...

Aldarafmæli Huppu á Kluftum  á Flúðum 3. nóvember 2026
Skoðun 2. nóvember 2026

Aldarafmæli Huppu á Kluftum á Flúðum 3. nóvember 2026

Þegar þekktar persónur eiga stórafmæli er því stundum fagnað á einhvern hátt. Hu...

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt
Skoðun 2. nóvember 2026

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt

Það er vart hægt að finna stjórnmálamann á Íslandi sem er ósammála því að einfal...

Ósýnilegt friðartákn
Skoðun 2. nóvember 2026

Ósýnilegt friðartákn

Friðarsúlan í Viðey, útilistaverk Yoko Uno til heiðurs minningu eiginmanns henna...

Áætluð eignamörk 1.150 jarða birt til umsagnar
Skoðun 2. nóvember 2026

Áætluð eignamörk 1.150 jarða birt til umsagnar

HMS hefur lokið við að áætla eignamörk um 1.150 jarða á Norðausturlandi og Austu...

Frá hraða til áfallaþols
Skoðun 29. október 2026

Frá hraða til áfallaþols

Ísland hefur náð miklum árangri í uppbyggingu fjarskiptainnviða. Vegferðin hefur...

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun 28. október 2026

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Arðurinn af veiðihlunnindum skiptir máli og ræður úrslitum um búsetu fólks á mör...

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá
Skoðun 27. október 2026

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá

Hernaðurinn gegn Hamarsdal í gamla Djúpavogshreppi, nú Múlaþingi, heldur áfram. ...