Reglubyrði veikir viðnámsþrótt
Mynd / smh
Skoðun 2. nóvember 2026

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt

Höfundur: Margrét Gísladóttir
Margrét Gísladóttir.

Það er vart hægt að finna stjórnmálamann á Íslandi sem er ósammála því að einfalda þurfi regluverk og draga úr stjórnsýslubyrði atvinnulífsins. Þrátt fyrir það kemur Ísland verst út meðal Norðurlandanna á mælikvarða OECD um stjórnsýslu- og regluverksbyrði sem birtur er í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar. Ísland fær þar 2,7 stig en Danmörk 1,0. Um er að ræða vísitölu en ekki beina mælingu á kostnaði fyrirtækja, en samanburðurinn gefur bersýnilega til kynna umtalsvert svigrúm til að gera betur og skýrt tilefni til aðgerða.

Fyrir landbúnað og matvælaframleiðslu, líkt og aðrar atvinnugreinar, birtist þessi reglubyrði í töluverðum fjármunum, tíma og fyrirhöfn sem fer í skýrslugerðir og samskipti við opinberar stofnanir, sem annars gæti verið varið í fjárfestingar, nýsköpun og uppbyggingu. Aukin og íþyngjandi reglubyrði getur því haft neikvæð áhrif á getu til að fjárfesta, þróa framleiðsluna og bregðast við áföllum. Með öðrum orðum: viðnámsþrótt fyrirtækjanna og fæðukerfisins í heild.

Aukin reglubyrði kostar

Síðustu ár hafa sýnt hversu hratt ytri aðstæður geta breyst. Heimsfaraldur, stríð, truflanir á siglingaleiðum og sveiflur í aðfangaverði hafa minnt okkur á að framleiðendur starfa við óvissu sem þeir ráða litlu um. Þá skiptir enn meira máli fyrir viðnámsþrótt fæðukerfisins hvernig við mótum þá þætti sem við stjórnum sjálf.

Fyrirtæki sem þarf að verja sífellt meiri tíma og fjármunum í stjórnsýslu hefur minna svigrúm til annars. Hver ný krafa kann að virðast smávægileg. Hver umsókn og hvert eftirlitsgjald kann að eiga sína skýringu. En bóndinn eða fyrirtækið þarf að standa undir þessu öllu saman. Heildin getur orðið þung þó svo hver einstakur liður virðist viðráðanlegur í augum þeirra sem skrifa reglurnar.

Það er afar mikilvægt – og ætti auðvitað að vera ófrávíkjanleg vinnuregla – að þeir sem semja og innleiða nýjar kröfur horfi á og meti samanlögð áhrif þeirra. Hvað kostar að uppfylla þær? Hversu lengi þarf að bíða eftir afgreiðslu? Er verið að kalla eftir sömu upplýsingum oftar en einu sinni? Og er ávinningurinn í eðlilegu hlutfalli við kostnaðinn?

Einföldum kerfið

Skýrsla Norrænu ráðherranefndarinnar bendir einmitt á að reglubyrði birtist einnig í flóknum og hægum leyfisferlum, óvissu um framkvæmd og viðbótarkröfum við innleiðingu evrópskra reglna. Því skiptir máli hvernig stjórnvöld nýta svigrúmið sem þau hafa. Við eigum að setja okkur skýr markmið um að fyrirtæki skili sömu upplýsingum aðeins einu sinni. Eftirlit þarf að vera samræmt og byggjast á áhættu. Afgreiðslufrestir þurfa að vera fyrirsjáanlegir og nýjum kröfum að fylgja raunhæft kostnaðarmat. Jafnframt þarf að fara yfir eldri skyldur og fella niður þær sem skila litlum eða engum árangri.

Einföldun verður að mælast í daglegum rekstri: færri vinnustundum við umsýslu, minni kostnaði og raunverulega einfaldari framkvæmd. Tilkynningar um áform og umræða um einföldun duga skammt ef reynsla framleiðenda breytist ekki.

Styrkar stoðir

Viðnámsþróttur fæðukerfisins byggist á starfandi búum, vinnslufyrirtækjum, þekkingu og fjárfestingu. Við þurfum að tryggja eftir fremsta megni að framleiðslugeta sé til staðar áður en ytri áföll og atburðir auka álagið á kerfið. Hana verður ekki hægt að kalla fram með skömmum fyrirvara þegar innflutningur tefst eða aðföng hækka.

Við viljum traust fæðuöryggi, ábyrga framleiðslu og vönduð matvæli. Til þess þurfum við öflug fyrirtæki sem hafa bolmagn til að bæta reksturinn og mæta breyttum aðstæðum. Það er sameiginlegt hagsmunamál að starfsumhverfi atvinnulífsins styðji við þá getu. Hófleg gjöld, einfalt regluverk og svigrúm til fjárfestinga og þróunar.

Íslenskur landbúnaður hefur fólk, þekkingu og tækifæri til að skapa meiri verðmæti. Ef við viljum geta treyst á innlenda framleiðslu þegar á reynir þá þurfum við að gera henni kleift að dafna áður en að því kemur.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu
Skoðun 2. nóvember 2026

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu

Fjárlög eru gjarnan rædd í milljörðum. Tekjur ríkissjóðs, útgjaldarammar, fjárhe...

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt
Skoðun 2. nóvember 2026

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt

Það er vart hægt að finna stjórnmálamann á Íslandi sem er ósammála því að einfal...

Áætluð eignamörk 1.150 jarða birt til umsagnar
Skoðun 2. nóvember 2026

Áætluð eignamörk 1.150 jarða birt til umsagnar

HMS hefur lokið við að áætla eignamörk um 1.150 jarða á Norðausturlandi og Austu...

Frá hraða til áfallaþols
Skoðun 29. október 2026

Frá hraða til áfallaþols

Ísland hefur náð miklum árangri í uppbyggingu fjarskiptainnviða. Vegferðin hefur...

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun 28. október 2026

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Arðurinn af veiðihlunnindum skiptir máli og ræður úrslitum um búsetu fólks á mör...

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá
Skoðun 27. október 2026

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá

Hernaðurinn gegn Hamarsdal í gamla Djúpavogshreppi, nú Múlaþingi, heldur áfram. ...

Lausnin er landbúnaður
Skoðun 26. október 2026

Lausnin er landbúnaður

Haustið mætti aldeilis með látum á dögunum og minnti okkur á að við búum á Íslan...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 26. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Frumvarp Loga Einarssonar til breytinga á lögum um Ríkisútvarpið vekur hörð viðb...