Breiðdalsvík við mynni Breiðdals.
Breiðdalsvík við mynni Breiðdals.
Mynd / Wikipedia, Christian Bickel
Skoðun 28. október 2026

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Höfundur: Gunnlaugur Stefánsson
Gunnlaugur Stefánsson.

Arðurinn af veiðihlunnindum skiptir máli og ræður úrslitum um búsetu fólks á mörgum bæjum í sveitum landsins. Bóndi sagði frá því í blaðaviðtali ekki fyrir löngu síðan, að tekjurnar af ánni borgi áburðinn á túnin. Án þeirra tekna yrði hann að hætta búskap. Veiðin er snar þáttur í afkomu fjölmargra bænda og fjölskyldna þeirra. Auk þess eru veiðihúsin stórir vinnustaðir í dreifbýlinu þar sem margir starfa á góðum launum. Þá hafa margir bændur dýrmætar viðbótartekjur vegna starfa við veiðina, t.d. leiðsögn og akstur. Þetta þekki ég vel eftir að hafa verið formaður Veiðifélags Breiðdæla í 30 ár og setið í stjórn Landssambands veiðifélaga um árabil.

Samkvæmt úttekt Hagfræðistofnunar HÍ frá 2018 eru verðmæti lax- og silungsveiða talin 260 milljarðar uppfært til núvirðis og 3.400 lögbýli tilheyri veiðifélögum.

Sjókvíaeldið ógnar afkomu bænda

Opna sjókvíaeldið með norskan og frjóan lax hefur verið að færa út kvíarnar síðustu árin. Alls staðar í veröldinni hefur það stórskaðað villta laxastofna og víða hreinlega lagt af veiði á villtum laxi. Það eru vísindalegar staðreyndir.

Opna sjókvíaeldið hér á landi er tiltölulega stutt á veg komið, framleiðslan rétt um 50 þúsund tonn, en heimilt er að ala yfir 100 þúsund tonn í kvíum. En þróunin er nákvæmlega sú sama hér á landi og jafnvel verri en annars staðar.

Eldislax sleppur bæði með slysasleppingum og síleka seiða úr kvíum, áföll dynja á eldinu vegna sjúkdóma, lúsar, kulda og marglyttu. Þá hafa kvíarnar farið illa í aftakaveðrum sem eru þá eins og tifandi tímasprengjur.

Erfðablöndun flæðir nú yfir villta laxastofna í íslenskum ám. Ef áfram heldur sem horfir blasir ekkert annað við en að arðurinn af veiðinni hverfi sem yrði þungt högg fyrir íslenskan landbúnað og búsetuna í sveitum landsins.

Þá vegur opna sjókvíaeldið gróflega að stjórnarskrárbundnum eignarrétti bænda með því að stórskaða dýrmæt verðmæti veiðiréttinda samofin jörðunum.

Mikil þörf er á að stjórnvöld bregðist við með nýrri lagasetningu. Þar verði sett ákvæði um stöðvun á vexti laxeldis í opnum kvíum, en við gætu tekið lokaðar kvíar og ófrjór fiskur. Lögsetja verður friðunarsvæði, m.a. í Eyjafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og Seyðisfirði. Atvinnuvegaráðherra hefur tvisvar lagt fyrir Alþingi frumvarp um að kvótavæða sjókvíaeldið eins og gildir um fiskveiðarnar. Það yrði stórslys sem verður að forða.

Bændasamtökin sofa á verðinum

Það vekur athygli, að opna sjókvíaeldið er ekki enn komið á dagskrá Bændasamtakanna. Þar er þagað þunnu hljóði um ógnandi stöðuna gagnvart hagsmunum bænda. Bændasamtökin eru skjöldur og skjól búandi fólks í sveitum landsins. Því er eðlilegt að spurt sé af hverju þögnin stafar.

Bændasamtökin hafa tekið landeldið undir sína arma, en láta sig sjókvíaeldið engu skipta. Samt er opna eldið arfavont fyrir landeldið þar sem lögð er áhersla á umhverfisvæna gæðaframleiðslu af allt öðrum toga en gildir um opnu kvíarnar. Hagsmunir landeldisins felast í því að greina sig rækilega frá opna eldinu.

Því verður vart trúað, að Bændasamtökin haldi áfram að sitja hjá með þögninni á meðan vegið er alvarlega að hagsmunum bænda og grafið er undan búsetu fólksins í sveitum landsins.

Höfundur er fyrrum alþingismaður og sóknarprestur í Heydölum í Breiðdal.

Skylt efni: Skoðun | sjókvíaeldi

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun 28. október 2026

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Arðurinn af veiðihlunnindum skiptir máli og ræður úrslitum um búsetu fólks á mör...

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá
Skoðun 27. október 2026

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá

Hernaðurinn gegn Hamarsdal í gamla Djúpavogshreppi, nú Múlaþingi, heldur áfram. ...

Lausnin er landbúnaður
Skoðun 26. október 2026

Lausnin er landbúnaður

Haustið mætti aldeilis með látum á dögunum og minnti okkur á að við búum á Íslan...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 26. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Frumvarp Loga Einarssonar til breytinga á lögum um Ríkisútvarpið vekur hörð viðb...

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi
Skoðun 23. október 2026

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi

Nýverið greip ég nýútkomna bók eftir bandaríska höfundinn Annie Jacobsen, en sú ...

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði
Skoðun 21. október 2026

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði

Öldum saman hafa íbúar fjarðarins búið við margs konar hættur sem náið sambýli v...

Nýjasta þjóðaríþróttin
Skoðun 21. október 2026

Nýjasta þjóðaríþróttin

Það er farið að verða erfitt fyrir Seyðfirðinga að verjast þeirri tilfinningu að...

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Skoðun 16. október 2026

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna

Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profu...