Breyttust í byggingastjóra á einni nóttu
Þann 6. febrúar 2024 gekk óveður yfir Austfirði og urðu bændurnir á Vattarnesi sérstaklega illa úti, en á litlum bletti magnaðist vindurinn upp og olli stórtjóni á íbúðarhúsi og fjárhúsum. Þak útihúsanna fauk af í heilu lagi og splundraðist svo í annarri vindhviðu. Eins varð tjón á íbúðarhúsinu þegar hluti af þaki þess rofnaði og úrkoma átti greiða leið inn.
Á Vattarnesi búa bændurnir Óðinn Logi Þórisson og Ásta Kristín Guðmundsdóttir ásamt börnum. Fjölskyldan bjó áður á Fáskrúðsfirði en flutti út á Vattarnes árið 2023. Óðinn er tengdur fyrri ábúendum fjölskylduböndum. Vattarnes er útnes sem skagar út í Reyðarfjörð en er í stuttri akstursfjarlægð frá Fáskrúðsfirði.
„Við breyttumst í byggingastjóra á einni nóttu og þurftum allt í einu að fara að stjórna stórum vettvangi, úthluta verkefnum og forgangsraða hlutum. Verkefnið var mikið umfangsmeira en flestir gera sér grein fyrir og sem betur fer kom hingað fullt af vönu fólki sem gekk í verkin,“ segir Óðinn í samtali. „Við vorum rétt búin að búa hérna í hálft ár þegar þetta gerist,“ bætir Ásta við.
Bíllinn lyftist í vindinum
„Þakið sprakk af fjárhúsunum um hádegisbil en ég held að það hafi liðið einhverjir tíu klukkutímar þangað til að við treystum okkur til þess að fara út,“ segir Óðinn. „Ég tel allar líkur á því að þetta hafi verið hvirfilbylur,“ segir Ásta, „en það sprungu allar rúður í bílnum mínum og hann sogaðist upp, snerist í hálfhring og lenti á dráttarkúlunni ofan á grjóti þannig að afturdekkin snertu ekki jörðina.“
„Vatnsflaumurinn þegar sjórinn gekk hérna yfir var svo mikill að við sáum ekki milli húsa og skurðirnir höfðu ekki undan,“ segir Óðinn. „Það var farið að myrkva þegar veðrið datt niður, en það var svo merkilegt að þá birti yfir. Vindinn lægði á einhverjum 40 mínútum og gátum við farið upp í fjárhús til þess að tékka á kindunum.
Það var ekkert voðalega mikil stemning að fara upp í fjárhús með skammbyssu með það í huga að mögulega þurfa að skjóta einhverjar kindur,“ heldur Óðinn áfram. „Það var ein sem drapst strax og önnur sem þurfti að aflífa. Svo voru sjö ær sem drápust dagana í kjölfarið, en þær hafa sjálfsagt verið með innvortis blæðingar þar sem við sáum ekkert á þeim. Af 180 kindum sem við vorum með reyndust þrjátíu geldar, en við reiknum með að þær hafi misst fóstur. Um vorið vantaði því um 50 lömb, sem þýðir að engar umframtekjur voru af búrekstrinum þetta ár.“
Hrökkluðust úr íbúðarhúsinu
„Það voru tveir sólarhringar sem enginn komst hingað vegna veðurs, fyrir utan pabba sem er náttúrlega geðbilaður og fer út í hvað sem er,“ segir Ásta glettin. „Hann vissi af barnabörnum og dóttur sinni hérna, þannig að hann keyrði hingað í biluðu veðri þrátt fyrir að við hefðum beðið alla um að halda sig heima þar sem við treystum okkur ekki einu sinni út fyrir dyr og við vildum ekki leggja líf annarra í hættu. Þarna var þakið farið, skepnurnar berskjaldaðar og sumar særðar á meðan við vorum búin að leita okkur skjóls niðri í kjallara.
Á meðan við vorum hérna ein reyndum við að halda kúlinu fyrir krakkana, meðal annars með því að baka á meðan rafmagnið hélst,“ heldur Ásta áfram. „Þá var þakið ekki farið af íbúðarhúsinu, þannig að við gátum enn þá verið í eldhúsinu. Sjórinn gekk hérna upp í eldhúsgluggana og við vorum hálf smeyk af því að þessu fylgdi grjótkast. Þegar við misstum rafmagnið gátum við kveikt upp í kamínunni,“ segir Ásta. „Við erum alveg vön því að missa út rafmagnið,“ bætir Óðinn við, „en hingað er ekki búið að leggja þriggja fasa rafmagn í jörðu og höfum við misst það út í fjórtán sólarhringa samanlagt á einum vetri.
Eftir veðrið var íbúðarhúsið okkar óíbúðarhæft,“ heldur Óðinn áfram, „og þurftum við að flýja í hús hérna ofar sem við leigjum annars út til ferðamanna. Það eru ekki allir sem búa svo vel og ég veit ekki hvað við hefðum þurft að gera ef við hefðum ekki átt þetta hús.“
Þakklát samfélaginu
„Óveðrið var í febrúar og við þurftum að setja allan kraft í að koma þaki yfir rollurnar fyrir sauðburð í maí,“ segir Ásta. „Þar sem ærnar voru enn þá í ullinni gátum við hleypt þeim tímabundið niður í fjöru. Húsið var tilbúið í tæka tíð og það er manngæskunni í fólkinu sem hjálpaði okkur að þakka að við gátum staðið okkar plikt í búskapnum.
Við fengum gríðarlega aðstoð frá samfélaginu,“ heldur Ásta áfram. „Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði sendi starfsfólk, tæki og smiði til þess að vinna hérna og rukkuðu okkur ekki fyrir. Bæjarbúar sem treystu sér ekki til að koma hingað til að bjarga byggingunum voru þá að elda og baka og komu með fullt af mat,“ segir hún. „Byggingaverktakinn sem kom hingað var virkilega að vinna fyrir okkur frekar en sig,“ bætir Óðinn við. „Búðir veittu okkur mikinn afslátt á byggingarefni og ég hugsa að við hefðum ekki getað klárað nema einn þriðja af því sem við erum búin með ef samfélagið hefði ekki hjálpað okkur.“
Tryggingafélög miða við fasteignamat
Óðinn og Ásta benda á að eftir hamfaraveðrið hafi þau áttað sig á að Viðlagasjóður bætti ekki tjón sem hlotnast af vindi. „Ég held að Viðlagasjóður ætti kannski að greiða út vegna tjóns sem verður eftir vindhviður sem eru á styrk við fellibyl,“ segir Óðinn. „Sem betur fer vorum við eitthvað tryggð hjá okkar tryggingafélagi. Vandamálið var hins vegar að á þessu svæði hafa menn passað sig á að uppfæra ekki fasteignamat eignanna því að sauðfjárbúskapur stendur ekki undir fasteignagjöldum af raunvirði bygginga. Ég held að það þurfi vitundarvakningu hjá bændum og sveitarfélögum varðandi fasteignagjöld á bújörðum.
Fjárhúsin okkar voru því metin á 32 milljónir þegar þetta gerist og í augum tryggingafélagsins á fasteignamatið að endurspegla hvað kostar að byggja húsið,“ heldur Óðinn áfram. „Svo er gert ráð fyrir 20 prósent sliti á húsunum þannig að tryggingafélagið mat húsið á 28 milljónir. Þá var þetta ekki tjón á nema hluta hússins þannig að við fengum 12,3 milljónir frá tryggingafélaginu til þess að laga þakið og hreinsa upp brakið. Ég held að þegar allt er saman tekið hafi kostað í kringum 20 milljónir að smíða nýtt þak og þurftum við að fjármagna það sem upp á vantaði sjálf. Svo fengum við á bilinu 6–7 milljónir fyrir viðgerðum á íbúðarhúsinu. Við erum að vinna í mörgum vinnum og hver einasta króna hefur farið í að fjármagna uppbyggingu á því sem skemmdist. Við sitjum enn þá uppi með tjón á öllu öðru sem skemmdist í óveðrinu, eins og girðingum og öðrum búnaði á bænum,“ segir Óðinn.
Allar byggingar einhvers virði
„Það var búið að liggja fyrir í nokkurn tíma að við myndum kaupa þessa jörð af Baldri frænda mínum, sem var bóndi hérna áður,“ segir Óðinn. „Ég vissi að hann hafði alltaf verið með góðar tryggingar hjá sínu tryggingafélagi en áður en kaupin gengu í gegn lést Baldur. Ég hafði því samband við tryggingafélagið og sagðist ætla að borga næsta reikning til þess að samningurinn félli ekki úr gildi. Það er trúlegast ástæðan fyrir því að við vorum tryggð, en ég er ekki viss um að nýir samningar séu eins yfirgripsmiklir.
Ég held að það hafi skipt miklu máli að fyrir um áratug skemmdist þak á þessum bæ og þá fór frændi minn með starfsmanni frá tryggingafélaginu um bæinn og benti á allar byggingar sem hann vildi tryggja. Hann var harður á því að þetta væri allt einhvers virði þó svo að húsin væri gömul. Við erum til að mynda núna að útbúa aðstöðu til dúnhreinsunar í fjósi sem hefur ekki verið notað í 30 ár. Þetta er einhvers virði, því að þarna eru steyptir veggir sem er hægt að laga.
Bændur ættu að fara vel yfir tryggingarnar og athuga hvert einasta smáatriði, því að það gerir þetta enginn fyrir þig nema þú sjálfur. Ég hefði viljað að einhver hagsmunafélög bænda gætu leiðbeint okkur í tryggingamálum, en það er gríðarlegt torf að fara í gegnum skilmála tryggingafélaga þannig að maður átti sig á hversu mikið maður er tryggður. Í svona stóru tjóni sem Viðlagasjóður kemur ekki að ætti að vera til einhver ráðgjafi sem hefði getað gripið vettvanginn og svarað því strax fyrir hverju maður er tryggður og hvað er hægt að gera,“ segir Óðinn.
Náðu ekki að hugsa um að bregða búi
„Í dag erum við ekki að lepja dauðann úr skel, en ef við hefðum ekki lent í þessu tjóni þá værum við í mjög góðum málum,“ segir Óðinn. „Við höfum bæði unnið mjög mikið, en planið hefur alltaf verið að gera atvinnu hérna á staðnum. Á ákveðnum tímapunkti vorum við á nippinu að taka þá ákvörðun að byggja ekki upp fjárhúsin aftur. Við hefðum allt eins getað eytt þeim peningi sem við fengum hjá tryggingafélaginu til þess að byggja smáhýsi fyrir ferðamenn. En einhverra hluta vegna hafði maður eiginlega ekki tíma til að taka þá hugsun lengra. Við fórum bara strax í það að bjarga kindunum og koma yfir þær þaki. Þessi bújörð er okkar ævifjárfesting og það sem við ætlum að hafa lífsviðurværi af, hvernig svo sem við spilum úr því,“ segir hann.

