Sjálfbær þróun með sólarorku
Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver landsins að finna á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi. Ábúendur ákváðu að fara þessa leið og afla endurnýjanlegrar orku í gegnum 340 sólarsellur þar sem rafmagnsreikningurinn var orðinn mjög hár í búrekstrinum.
Jóhanna Ásgeirsdóttir og Agnar Gestsson búa á Lýsuhóli, sem er í Staðarsveit, ásamt börnum, en þau tóku við búinu af foreldrum Jóhönnu árið 1993.
Tilvonandi tengdasonur orkuverkfræðingur
„Á þessum rúmu þrjátíu árum höfum við byggt upp starfsemina og stækkað ferðaþjónustuna mikið. Í dag eru um 130 hross á Lýsuhóli, auk þess sem við rekum hótel með 12 herbergjum og nokkrum sumarbústöðum. Lýsuhóll er fjölskyldufyrirtæki, Halla, dóttir okkar, Jóhann, tilvonandi tengdasonur okkar, og börnin þeirra taka virkan þátt í rekstrinum. Jóhann er menntaður orkuverkfræðingur frá Þýskalandi, svo við búum yfir góðri þekkingu á orkumálum innan fjölskyldunnar,“ útskýrir Agnar.
Hann segir að eftir því sem starfsemin hafi stækkað í gegnum árin hafi rafmagnsnotkunin einnig aukist.
Vilja þróast á sjálfbæran hátt
„Rafmagnsreikningurinn var orðinn mjög hár og það var ein af ástæðum þess að við fórum að skoða sólarorku. Við vorum búin að velta fyrir okkur vindorku og vatnsorku, því okkur finnst verkefnið líka snúast um ábyrgð gagnvart framtíðinni,“ segir Agnar og bætir við að segja megi að þau séu bæði sólar- og vindmegin í lífinu í Staðarsveitinnni.
„Okkur þykir vænt um náttúruna hér á Lýsuhóli og viljum að fjölskyldufyrirtækið þróist á umhverfisvænan og sjálfbæran hátt. Við viljum nýta orkuna betur og gera það sem við getum gert til að reksturinn verði sjálfbærari. Sólarorkan er spennandi skref í þá átt og við erum spennt að sjá hvernig þetta kemur út á ársgrundvelli.“
Agnar vonast til að verkefnið geti bæði lækkað rafmagnskostnaðinn og hjálpað þeim við að nýta endurnýjanlega orku í rekstrinum. Kostnaður við verkefnið er áætlaður um 30 milljónir króna og þau reikni með að fjárfestingin borgi sig upp á sex til sjö árum.
