Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem Eiríkur Blöndal vann í samstarfi við Matís. Heitið léttbygg er nýyrði um óþroskað bygg. Hugtökin léttkorn og létthafrar eru kynnt sem systurhugtök.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna nýtileika óþroskaðs byggs, sporna við sóun og tryggja að bændur fái einhverjar tekjur af ræktuninni, jafnvel þótt á móti blási. Í skýrslu um hana segir að mögulegt sé að léttbygg geti skipt máli fyrir fæðuöryggi Íslands.
Einfaldar aðferðir
Árferði og ræktunarskilyrði ráða miklu um þann þroska sem korn í ræktun nær og kemur fyrir að það nái ekki fullum þroska. Eiríkur Blöndal vann nýlega rannsókn í samstarfi við Matís þar sem hann leitaðist við að svara þeirri spurningu hvort hægt sé að gera verðmæti úr slíku óþroskuðu korni.
Eiríkur er bóndi og landbúnaðarverkfræðingur á Jaðri í Borgarfirði og stundar sjálfur kornrækt. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að með einföldum aðferðum sé hægt að nota slíkt korn með öðru fóðri fyrir mjólkurkýr en einnig að hægt sé að nýta það í bakstur. Óþroskaða bygginu var gefið heitið léttbygg og bent á að nota megi hugtakið léttkorn og létthafrar eftir atvikum.
Efnamælingar og nýting til baksturs
Efnamælingar á léttbyggi voru á höndum Matís ásamt því að leggja til sérfræðiþekkingu á notkun byggs í matvælaiðnaði. Athuganir voru gerðar á léttbyggi, efnainnihald greint og bökunareiginleikar kannaðir.
Nái korn ekki fullum þroska, verður hlutfall sterkju í því lágt. Það er hins vegar trefjaríkt og inniheldur fleiri næringarefni eins og prótein og sykurtegundir. Eiríkur og meðhöfundur hans að skýrslunni, Ólafur Reykdal, verkefnastjóri á sviði lífefna hjá Matís, segja næringarinnihaldið geta „opnað möguleika á merkingunni „trefjaríkt“ á umbúðum matvæla“. Gerð var prófun á notkun léttbyggs í bakstur og borið saman hveitibrauð og brauð með 10% léttbyggi. Brauðgerðin þótti gefa gott bragð og góða lyftingu og rakaheldni, en hýðið sitja eftir á tönnunum. Sú ályktun er dregin að fínmala þurfi léttbygg til að nýtast til baksturs og að markaður yrði helst fyrir það ef harðnar í ári. Markaður sé aftur á móti mjög líklegur meðal kúabænda.
Áhrif á mjólkurframleiðslu
Á bænum Helgavatni gerði Pétur Diðriksson tilraunir með blöndun léttbyggs í fóður og mat áhrifin, en hann er með kvörn til heilmölunar á korni sem var forsenda fyrir slíkri notkun. Innfluttu byggi var skipt út fyrir léttbygg og fylgst var með magni og efnainnihaldi mjólkur frá hjörð Péturs.
Samkvæmt niðurstöðu olli breytt fóður ekki skyndilegri breytingu á þróun dagsafurða fyrir kýrnar. Sveppaeiturefni voru ekki mælanleg í sýnum af léttbygginu. Skýrsluhöfundar meta það jákvætt fyrir notkun þess í fóður og matvæli.
Kornrækt gengur vel
Í skýrslunni segir að kornrækt gangi almennt vel, sérstaklega á Suðurlandi. Þar segir það auka fýsileika kornræktar almennt ef hægt sé að nýta léttbygg.
Kornrækt fer vaxandi á Íslandi í tengslum við kornræktarátak stjórnvalda sem þáverandi matvæla- ráðherra, Svandís Svavarsdóttir, ýtti úr vör. Átakið stendur til ársins 2028. Stjórnvöld áætla að verja til þess tveimur milljörðum króna í formi fjárfestingar- og framleiðslustuðnings. Framleiðslustuðningurinn byggir á lágmarksþyngd þurrkaðs korns. Í skýrslunni er dregin sú ályktun að æskilegt sé að skilgreina sérstakar kröfur um rúmþyngd léttbyggs.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 verður framlag til kornræktarátaksins þó lægra en gert var ráð fyrir. Verkefnið hlaut styrk úr Matvælasjóði.
