Skinka úr íslensku svínakjöti
Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svínakjöti. Úrval SS af skinkum er dágott og þrjár af þeim eru úr íslensku kjöti einvörðungu.
Í svörum framleiðenda við fyrirspurn blaðamanns kemur fram að aðflutningsgjöld á svínakjöti þykja of lág og íslenskum svínabændum sé þar með ómögulegt að keppa við innflutning. Kílóverð á skinku Stjörnugríss var í sumum tilfellum ódýrara en sambærileg skinka samkeppnisaðilanna, þrátt fyrir að vera aðeins úr íslensku svínakjöti.
Blanda úr íslensku og innfluttu algengust
Skinka er sívinsælt álegg og allnokkrir framleiða skinku hérlendis. Lesandi sendi fyrirspurn til blaðsins um skinku úr íslensku svínakjöti og ljóst má vera að neytendur velta fyrir sér hvaðan maturinn kemur.
Í fleiri tilfellum en ekki, er skinka gerð úr blöndu af íslensku og innfluttu svínakjöti. Af þeim skinkum sem blaðamaður kynnti sér er Stjörnugrís sá eini sem framleiðir aðeins skinku úr íslensku svínakjöti.
„Við höfum þá skýru stefnu að framleiða allt okkar skinkuálegg úr svínum frá okkar eigin búum. Þannig höfum við góða yfirsýn yfir hráefnið og framleiðsluna alla leið frá búi til fullunninnar vöru. Við leggjum mikinn metnað í íslenska framleiðslu og viljum halda í þá sérstöðu,“ segir markaðsstjóri Stjörnugríss.
Auk Stjörnugríss og SS skoðaði blaðamaður skinkur frá Ali, Kjarnafæði auk Goða sem Kjarnafæði Norðlenska framleiðir.
Upprunamerking ekki skylda
Í flestum tilvikum er greint um upprunaland kjötsins á umbúðum, þó ekki öllum. Ekki er skylt að merkja upprunaland á unnum kjötvörum, en nokkur einhugur ríkir um að upprunamerkja þær.
„Við leggjum áherslu á að uppruni kjötsins komi skýrt fram á umbúðum, þannig að neytendur geti tekið upplýsta ákvörðun um kaup sín,“ segir í svari frá Ali. Þar segir að danska kjötið komi frá Danish Crown og jafnframt að vilji sé til að nýta íslenskt hráefni eins og kostur er.
Í svari frá Kjarnafæði Norðlenska um að merkja ekki upprunaland segir að hráefnið sé að langstærstum hluta íslenskt, „því miður höfum við ekki nægt íslenskt svínakjöt til að anna allri framleiðslunni. En þó að langstærstum hluta er hráefnið íslenskt.“ Þar segir að flókið sé að merkja upprunaland þegar verið er að skipta um upprunaland hráefnis í vinnslu.
Á heimasíðu Krónunnar, sem er eina matvöruverslunin sem heldur úti netverslun, er upprunaland allra þeirra skinkna sem blaðamaður skoðaði merkt Ísland. Þar er upprunamerking því röng í mörgum tilfellum.
Aðflutningsgjöld of lág
Samkvæmt mælaborði landbúnaðarins er um 32% af heildarsölu svínakjöts í landinu innflutt svínakjöt. „Það er augljós ályktun að aðflutningsgjöld eru of lág til að innlendir svínabændur geti keppt að fullu við innflutt kjöt“, segir í svari frá SS við fyrirspurn um hvort framboð af íslensku svínakjöti sé ekki nægt.
„Þess utan er misvægi í eftirspurn. Mikið er flutt inn af svínasíðum vegna þess að meiri eftirspurn er eftir þeim en öðrum skrokkhlutum. Og ef mæta ætti því með innlendri framleiðslu þá yrði allt of mikið af öðrum skrokkhlutum.“ Í svarinu segir mun á innflutningi afurðastöðva og þeirra sem flytja inn fullbúna vöru, innflutningur þeirra skapi virðisauka innanlands.
„Við náum að anna allri okkar skinkuframleiðslu með grísum frá eigin búum. Við höfum auk þess verið að selja kjöt til annarra aðila“, segir í svari frá Stjörnugrís.
Kjötinnihald skinku sem var skoðuð var algengast um 80%, en allt upp í 98% og niður í 70%. Kílóverð var nokkuð breytilegt á milli framleiðenda og tegunda, en kílóverð Stjörnugríss var síst hærra þrátt fyrir að vera aðeins úr íslensku svínakjöti.
Íslenskt staðfest
Upprunamerkið Íslenskt staðfest segir neytendum að kjöt, mjólk, egg og fiskur í viðkomandi vöru sé íslenskt og að vara sé unnin og pökkuð á Íslandi.
Kjarnafæði Norðlenska hefur gert samning um notkun merkisins. „Varðandi Íslenskt staðfest munum við setja það á þær vörur sem við getum alltaf tryggt að sé með rétt upprunaland“, segir markaðsstjóri fyrirtækisins, sem selur vörur undir merkjum Kjarnafæðis Norðlenska og Goða.
Markaðsstjóri Stjörnugríss segir fyrirtækið vera opið fyrir því að skoða notkun á upprunamerkinu Íslenskt staðfest. „Okkur finnst mikilvægt að neytendur geti auðveldlega séð hvaðan maturinn þeirra kemur og að íslensk framleiðsla fái þá athygli sem hún á skilið.“
