Kjúklingaafurðir frá Póllandi og Eystrasalti í aukinni sókn
Frá árinu 2017 til 2025 minnkaði framleiðsla á alifuglakjöti úr 27 kg á mann í 22 kg. Aukinni eftirspurnarþörf vegna aukins fjölda íbúa sem og ferðamanna var því mætt með auknum innflutningi. Mesta aukningin undanfarið er á kjúklingakjöti frá Póllandi og Eystrasaltslöndum en einnig hefur verið talsverð aukning á unnu kjúklingakjöti frá ýmsum löndum svo sem Taílandi, Póllandi og Danmörku.
Almennt hefur verið sátt um að styðja við innlendan landbúnað og þá ekki hvað síst með fæðuöryggi landsins í huga, samanber landbúnaðarstefnu íslenskra stjórnvalda sem gildir til ársins 2040. Stuðningur við íslenskan landbúnað er annars vegar í formi beins stuðnings við bændur og hins vegar í formi markaðsverndar eða tollverndar.
Stuðningur við alifuglabændur á Íslandi er fyrst og fremst í formi tollverndar. Tollvernd á alifuglakjöt hefur hins vegar rýrnað á undanförnum árum en nú má flytja inn ríflega eitt þúsund tonn tollfrjálst af alifuglakjöti frá ESB. Þá hefur magntollur, þ.e. fast verð á hvert innflutt kíló, ekki tekið almennum verðlagsbreytingum frá 1995. Þannig hefur minnkandi stuðningur við alifuglabændur leitt til aukins innflutnings, en frá 2017 jókst innflutningur um 52% á sama tíma og framleiðsla minnkaði um 2%.
Undanfarin ár hefur innflutningur á kjúklingi aukist frá Danmörku en minnkað að sama skapi frá Þýskalandi. Þá má vel merkja áhrif þess þegar tollar voru felldir tímabundið af kjúklingi frá Úkraínu árið 2022 og 2023. En árið 2023 voru flutt inn 756 tonn af kjúklingi frá Úkraínu sem nam um 23% af heildarinnflutningi á alifuglakjöti það árið. Þá hafa auknar tollaívilnanir leitt til aukins innflutnings frá Póllandi sem og Litáen. Þannig nam innflutningur á kjúklingi frá Póllandi 923 tonn árið Þar sem orkan og náttúran mætast 2024, sem samsvaraði um 30% af heildarinnflutningi alifuglakjöts það árið. Þá jókst innflutningur á alifuglakjöti frá Litáen talsvert árið 2025 þegar flutt voru inn 796 tonn, sem jafngilti um 24% af innflutningi fyrir 2025.
Sé horft til þróunar innflutnings fyrstu átta mánuði ársins 2026 til samanburðar við árið áður má sjá að innflutningur jókst áfram um 15% milli ára. Nú hefur Lettland hins vegar bæst við sem eitt af stærstu innflutningslöndum alifuglakjöts og er þá fyrst og fremst um að ræða frystan úrbeinaðan kjúkling. Minna var flutt inn frá Litáen en árið á undan og eins lækkar Danmörk hlutfall sitt lítillega en innflutningur eykst milli ára frá Póllandi.
En þá er ekki síður áhugavert að sjá þróun innflutnings á unnu alifuglakjöti þar sem innflutningur jókst úr 361 tonni árið 2017 í 678 tonn árið 2025, sem jafngildir um 88% aukningu á tímabilinu. Mest hefur verið flutt inn frá Taílandi en einnig er talsvert flutt inn frá Póllandi.
Þróun innflutnings á unnu alifuglakjöti frá 2025 til 2026 sýnir áframhaldandi vöxt eða aukningu um 13% fyrir tímabilið janúar til ágúst milli ára.
Fyrstu átta mánuði ársins 2026 hefur verið flutt inn alifuglakjöt fyrir ríflega 1,8 milljarða króna án aðflutningsgjalda, sem miðast við svokallað cif verðmæti. Fyrir allt árið 2026 stefnir í að innflutningsverðmætið verði langt yfir þeim fjárhæðum sem flutt var inn árið 2025 þegar cif verðmætið nam tæplega 2,4 milljörðum króna.
Það verður að teljast ákveðin mótsögn við landbúnaðarstefnu stjórnvalda sem styðja á við fæðuöryggi landsins þegar fluttar eru inn kjötafurðir í auknum mæli fyrir milljarða króna ár hvert á sama tíma og stuðningur við bændur fer minnkandi. En samfara ákalli alifuglabænda um að tollverndin haldi gildi sínu hefur verið kallað eftir því að beinn stuðningur í formi fjárfestingastuðnings verði veittur, sem myndi jafnframt auka fyrirsjáanleika í rekstri bænda.
