Tölvuteiknuð mynd af Halldórsfjósi, sem nú hýsir Landbúnaðarsafnið.
Tölvuteiknuð mynd af Halldórsfjósi, sem nú hýsir Landbúnaðarsafnið.
Mynd / Ivan Kalc
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Höfundur: Sigurður Már Harðarson
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir.

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að innrétta hluta af húsakosti Hvanneyrartorfunnar undir matvælakjarna og fræðslusetur um votlendi.

Að sögn Ragnheiðar I. Þórarinsdóttur, rektors LbhÍ, var Hvanneyrartorfan friðlýst í heild sinni 11. júlí 2015. Hún segir mikla og brýna viðhaldsþörf vera til staðar, meðal annars vegna friðlýsingarinnar, og nú sé unnið með hugmyndir um að nýta fjármagn sem fengist hefur fyrir verkefni tengd matvælakjarna og votlendissetri til að halda við húsakostinum og finna húsunum í leiðinni ný hlutverk. „Tækifæri hafa opnast, því heimilt er að nýta hluta þessara styrkja til viðhaldsframkvæmda á húsnæðinu vegna fyrirhugaðrar starfsemi. LbhÍ hefur fengið styrkveitingar að fjárhæð 18 milljónir króna til að koma upp matvælakjarna á Hvanneyri og á sjötta tug milljóna króna til uppbyggingar fræðsluseturs um votlendi,“ útskýrir Ragnheiður.

Tölvuteiknuð mynd af hluta mögulegs votlendisseturs.

Afurðir þróaðar úr íslensku hráefni

Ragnheiður segir að hugmyndin með matvælakjarnanum sé að skapa aðstöðu þar sem bændur, smáframleiðendur, nemendur og rannsakendur geti þróað afurðir úr íslensku hráefni. „Aðgangur að búnaði og þekkingu getur hjálpað góðri hugmynd að verða að vöru og aukið verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. Slík starfsemi fellur vel að hlutverki Hvanneyrar, þar sem búskapur, kennsla og rannsóknir hafa lengi farið saman.

Fræðslusetrið tengist Peatland LIFEline-verkefni sem Landbúnaðar- háskólinn leiðir með stuðningi LIFEáætlunar Evrópusambandsins og stendur yfir frá 2025 til 2031. Þar er unnið að endurheimt votlendis og miðlun þekkingar, auk undirbúnings göngustíga á Hvanneyri. Friðlýst búsvæði fugla í Andakíl, sem er jafnframt Ramsar-svæði, býður upp á einstök tækifæri til fræðslu og náttúruskoðunar. Fræðslusetrið getur tengt rannsóknir og reynslu af endurheimt við það sem gestir sjá úti í náttúrunni.“

Tölvuteiknuð mynd af hluta mögulegs votlendisseturs.

Hvanneyrartorfan skipar sérstakan sess

Friðlýsing Hvanneyrartorfunnar nær til níu húsa, ásýndar staðarins og fjölbreyttra minja um búskap og mannlíf. Ragnheiður telur hana skipa sérstakan sess í sögu íslensks landbúnaðar og búnaðarmenntunar. Þar beri húsin og umhverfi þeirra vitni um starf kynslóðanna sem byggðu upp skólann og tóku þátt í að móta íslenskan landbúnað. „Skemman, elsta húsið, er frá árinu 1896. Meðal bygginganna eru verk fyrstu menntuðu húsameistara landsins, Rögnvaldar Ólafssonar, Einars Erlendssonar og Guðjóns Samúelssonar. Halldórsfjós og hlaðan við það voru reist á árunum 1928–1929 eftir teikningum Guðjóns. Þessi hús hafa mikið gildi hvert fyrir sig, en samspil þeirra og landslagsins gerir Gömlu Torfuna að heild sem okkur ber að varðveita.

Friðlýsingin var mikilvæg viðurkenning á menningar- verðmætum staðarins. Henni þarf þó að fylgja raunhæfur fjárhagslegur grundvöllur til að sinna húsunum. Þegar samfélagið ákveður að varðveita byggingar vegna sameiginlegs menningararfs þarf jafnframt að tryggja að hægt sé að viðhalda þeim og nýta. Fjármagn þarf að fylgja friðlýsingu og vera nægilega fyrirsjáanlegt til þess að unnt sé að skipuleggja starfið til lengri tíma,“ heldur Ragnheiður áfram.

Hún bætir við að LbhÍ hafi í samstarfi við Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir (FSRE) og með stuðningi Húsafriðunarsjóðs gert sitt besta til að viðhalda byggingunum. „Samstarfið hefur skipt miklu máli. Viðhaldsþörfin er þó meiri en núverandi fjármagn ræður við og er frekari stuðningur nauðsynlegur til að koma húsunum í viðunandi horf.

Það er dýrt að fresta viðhaldi. Smærri viðgerðir sem ekki er ráðist í tímanlega geta leitt til umfangsmikilla og kostnaðarsamra framkvæmda. Við stöndum nú frammi fyrir slíkri stöðu í Gömlu Torfunni. Reglubundið viðhald er því bæði forsenda varðveislu og skynsamleg ráðstöfun fjármuna. Jafnframt skiptir máli að finna húsunum hlutverk sem hæfir sögu þeirra og stuðlar að áframhaldandi notkun þeirra. Þannig getur fjármögnun nýrra verkefna jafnframt hjálpað okkur að varðveita gömlu húsin.“

Tölvuteiknuð mynd af því hvernig innrétta mætti hlöðu Halldórsfjóss sem veitingastað.

Fræðslusetur og fjölnota salur í hlöðunni

Hjá LbhÍ er nú unnið að því að greina tækifærin og áætla kostnað við nauðsynlegar framkvæmdir. Sú vinna verður lögð fyrir FSRE til að móta í sameiningu fyrstu skrefin að betra ástandi húsanna og aukinni nýtingu þeirra. Ragnheiður segir mikilvægt að forgangsraða þannig að þeir fjármunir sem þegar hafa fengist nýtist sem best og að hver áfangi styðji við heildaruppbygginguna.

„Fyrir nokkru kom félagi minn, Ivan Kalc, arkitekt frá Serbíu, í heimsókn á Hvanneyri. Hann teiknaði hugmyndir að fræðslusetri og fjölnota sal í hlöðu Halldórsfjóss, með veitingastað í öðrum enda hennar. Teikningarnar gefa skemmtilega sýn á hvernig hægt væri að nýta rýmið og færa nýja starfsemi inn í hús sem á sér merka sögu. Þær eru innlegg í þá hugmyndavinnu sem nú stendur yfir, en jafnframt er horft til möguleikanna í Hjartarfjósi.

Hér getur orðið til áhugaverð tenging í framtíðinni milli matvælakjarnans og veitingastaðar þar sem íslenskar afurðir fá að njóta sín. Gestir gætu kynnst hráefninu og framleiðendum þess yfir góðri máltíð, sótt fræðslu um votlendi og fuglalíf og gengið um svæðið eftir stígum sem leiða þá um náttúruna af nærgætni. Fjölnota salur gæti jafnframt nýst til námskeiða, funda og viðburða og þannig aukið notkun húsanna yfir árið.

Framtíðarsýnin er sú að veitingastaðurinn verði svo eftirsóttur að panta þurfi borð með löngum fyrirvara og færri komist að en vilja. Slík sýn byggir á trú á gæði íslensks landbúnaðar og möguleikum okkar til að auka virði afurðanna með vöruþróun, matargerð og góðri miðlun á uppruna þeirra.“

Kallað eftir samstarfsaðilum

Ragnheiður kallar eftir fleiri samstarfsaðilum til að hjálpa við að hrinda þessum áformum í framkvæmd. „Landbúnaðarháskólinn hefur sótt fjármagn, þróað verkefni og leitað leiða til að tengja varðveislu húsanna við starfsemi sem getur skapað ný verðmæti. Til að ráðast í umfangsmeiri viðgerðir þurfum við fleiri með okkur. Við leitum eftir samstarfi við stjórnvöld og fjárhagslega öfluga aðila, þar á meðal fyrirtæki og sjóði sem vilja styðja við íslenskan landbúnað og menningararf hans. Fyrirsjáanlegt fé til viðhalds og þátttaka í einstökum áföngum gætu komið þessari uppbyggingu verulega áleiðis,“ segir hún.

Spurð um áætlanir varðandi framkvæmdatímann, segir Ragnheiður að þær liggi ekki fyrir en unnið sé að því að taka þær ákvarðanir sem þarf varðandi húsnæði. „Til dæmis að byrja mögulega í Hjartarfjósinu sem er minna í sniðum. Við þurfum að vinna þetta eins hratt og við mögulega getum, því LIFE-verkefnið er til fimm og hálfs árs og fyrsta árinu er þegar lokið.“

Skylt efni: votlendi | LbhÍ | votlendissetur

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...