Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við atvinnuvegaráðuneytið um framhald verkefnisins Loftslagsvænn landbúnaður, sem gildir út árið 2027.
Í nýjum samningi er ekki gert ráð fyrir þátttökugreiðslum af hálfu stjórnvalda, en Sigurður Torfi Sigurðsson verkefnastjóri telur að það ætti ekki að letja bændur til þátttöku þar sem eftir talsverðu sé enn að slægjast með sérhæfðri ráðgjöf innan verkefnisins frá starfsfólki RML og Landi og skógi til betri búskaparhátta sem skili sér í betri búrekstri.
„Ávinningurinn felst meðal annars í faglegri ráðgjöf, aðgangi að fræðslu og verkfærum og tækifærum til að greina reksturinn og finna raunhæfar leiðir til úrbóta. Ávinningurinn er þannig hagrænn þar sem aðgerðir sem draga úr losun geta jafnframt bætt nýtingu aðfanga, aukið hagkvæmni og styrkt búreksturinn til lengri tíma. Það er líka áhugi hjá bændum og mikilvægt fyrir marga að geta tekið þátt í samstarfi og miðlað reynslu með öðrum bændum sem glíma við sambærilegar áskoranir og eru að vinna að álíka markmiðum,“ útskýrir Sigurður Torfi.
Áætlanir til úrbóta
Verkefnið hófst árið 2020 og síðan hafa 60 bú farið í gegnum ferlið sem snýr aðallega að fræðslu um loftslagsmál og að veita bændum aðstoð við að rýna sín bú og gera aðgerðaáætlun fyrir úrbætur. Sigurður segir að bæði sé þar um að ræða einstaklingsráðgjöf og fundahöld í hópum.
„Það eru skráð 56 bú í verkefninu í dag og þessi bú verða virk í verkefninu áfram. Við veitum þessum þátttakendum áfram aðgengi að fræðsluefni og þeir verða áfram virkir í starfi verkefnisins en hver á sínum forsendum. Við erum með reglulega fræðslu- og spjallfundi bæði á neti og á vettvangi þar sem þessum bændum er boðið að mæta, taka þátt í spjalli og miðla þekkingu og reynslu meðal jafningja.
Nýir þátttakendur sem koma í verkefnið þurfa að vera tilbúnir að taka virkan þátt í verkefninu og tilbúnir að skoða hvernig búrekstur þeirra geti þróast til loftslagsvænni leiða líkt og þátttakendur sem eru í verkefninu í dag hafa gert. Þeir þurfa að vera tilbúnir að rýna búrekstur sinn, gera áætlun til úrbóta og mæta á undirbúningsvinnustofur og fyrirlestra um grunnatriði loftslagsmála.“
Aðstoð við endurheimt votlendis
Að sögn Sigurðar Torfa vill RML fá sem flesta inn í verkefnið. „Samkvæmt nýjum samningi er gert ráð fyrir allt að 45 nýjum þátttakendum nú í haust og næsta vor þannig að ef það raungerist verða þetta tæplega 150 þátttakendur.
Í dag eru þetta að mestu sauðfjárbændur og nautgripabændur, bæði í mjólkur- og kjötframleiðslu, en einnig eru nokkur bú í garðyrkju. Hvað varðar nýja þátttakendur þá erum við ekki að horfa á einhverjar sérstakar búgreinar frekar en aðrar. Bændur í öllum búgreinum eru velkomnir.“
Spurður um mögulega aðstoð við bændur varðandi aðgerðir við endurheimt votlendis – vegna mögulegra kolefniseininga sem slík verkefni geta leitt af sér – segir Sigurður Torfi að Land og skógur sé samstarfsaðili þeirra í verkefninu og hafi kynnt þátttakendum starf sitt, meðal annars á sviði endurheimtar votlendis. „Við aðstoðum þátttakendur og vísum þeim til réttra tengiliða hjá Landi og skógi svo verkefnin komist í rétta farvegi.
Vottun kolefniseininga vegna endurheimtar votlendis er tiltölulega ný nálgun hér á landi, en við munum fræða bæði núverandi og nýja þátttakendur um þróun og möguleika á því sviði.“
