Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profunda lýsir Gísli Jónsson áhyggjum af sjúkdómaáhættu og áhrifum á íslenska hrognaframleiðslu. Gott heilbrigðisástand íslensks fiskeldis er verðmæti sem ber að vernda. Við ákvörðun um innflutning þarf jafnframt að leggja réttar upplýsingar um upprunastöðina til grundvallar og fylgja gildandi lögum.
Matvælastofnun veitti heimildina á grundvelli þess mats að skilyrði viðkomandi innflutnings væru uppfyllt. Hún tekur til hrogna frá tiltekinni stöð og er háð heilbrigðisskilyrðum. Afhendingaröryggi og val á birgjum eru viðskiptasjónarmið fyrirtækjanna; þau koma ekki í stað þeirra krafna sem stjórnvöldum ber að framfylgja.
Samanburður við synjunina árið 2012 þarf að taka mið af því að forsendurnar hafa breyst. Í synjunarbréfi MAST frá 14. júní 2012 kom fram að fyrirhugaðir klakfiskar væru aldir í opnum sjókvíum í 18–24 mánuði og að tilteknir sjúkdómar hefðu verið viðvarandi í þeim eldisstöðvum sem umsóknin laut að. Umsögn fisksjúkdómanefndar lagði meðal annars áherslu á lokaðan eldisferil. Núverandi heimild miðast við Profunda, þar sem allur lífsferill fisksins fer fram á landi.
Profunda er í Barstadvik og viðkomandi hólf, númer 10183, er á opinberri skrá Mattilsynet yfir hólf með viðurkennda sjúkdómalausa stöðu gagnvart sjúkdómsvaldandi blóðþorraveiru, HPR-deleted ISAV. Sú staða tók gildi 4. júlí 2025. Með hólfi er hér átt við afmarkaða eldiseiningu sem uppfyllir sérstakar kröfur um smitvarnir og heilbrigðiseftirlit.
Lýsing á vatnsöflun stöðvarinnar þarf einnig að vera rétt. Í gögnum Mattilsynet frá 5. maí 2025 kemur fram að bæði ferskvatn og sjór séu tekin úr borholum og að hvort tveggja sé jafnframt geislað með útfjólubláu ljósi. Vatnið berist til stöðvarinnar eftir lokuðum lögnum. Umfjöllun sem nefnir eingöngu síun í gegnum sand og möl lýsir því ekki öllum þeim smitvörnum sem norsk yfirvöld leggja til grundvallar.
Varðandi tilvísun til blóðþorra árið 2022 þarf að greina á milli smits sem greinist í fiski eftir flutning úr stöð og staðfests smits í upprunahólfinu. Í fyrrnefndum gögnum Mattilsynet segir að blóðþorri hafi aldrei verið staðfestur í hólfinu. Frásögn af smiti í fiski eftir brottflutning staðfestir ekki ein og sér hvar smitið varð.
Áhyggjur af hjartarofi, CMS, þarf sömuleiðis að meta út frá gögnum um Profunda. Í upplýsingum sem AquaGen birti 2. september 2025 kemur fram að rannsóknir hafi sýnt fram á stöðin sé laus við PMCV, veirunni sem veldur hjartarofi. Samkvæmt fyrirtækinu byggist viðurkenning stöðvarinnar á umfangsmikilli sýnatöku og gögnum sem Mattilsynet hafi að mestu aflað með stuðningi norsku dýralæknastofnunarinnar. PMCV er sérstaklega talin upp meðal þeirra sýkla sem rannsóknirnar tóku til.
Þessar upplýsingar um PMCV eru aðgreindar frá opinberri viðurkenningu hólfsins gagnvart blóðþorra. Viðurkenning vegna eins sjúkdóms staðfestir ekki sjálfkrafa frelsi frá öðrum. Við mat á áhættu af hjartarofi skipta rannsóknir og smitvarnir viðkomandi stöðvar máli. Ekki er hægt að yfirfæra sjúkdómastöðu annarra norskra stöðva á Profunda án þess að skoða gögn um það hólf.
Íslensk lög gera ráð fyrir innflutningi eldisfisks og hrogna að uppfylltum skilyrðum. Samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laga nr. 54/1990 um innflutning dýra er slíkur innflutningur heimill samkvæmt skilyrðum reglugerða og skal framvísa skriflegri staðfestingu Matvælastofnunar á að þau séu uppfyllt. Ákvæðið felur því í sér sérstaka heimild fyrir lagareldisdýr, þrátt fyrir almennt innflutningsbann laganna.
Ísland og Noregur eiga jafnframt aðild að sameiginlegu regluverki EES um heilbrigði lagardýra. Með reglugerð nr. 462/2021 voru meðal annars innleiddar reglugerð ESB 2016/429 um dýraheilbrigði, reglugerð 2020/689 um eftirlit og sjúkdómalausa stöðu og reglugerð 2020/990 um heilbrigðis- og vottunarkröfur vegna flutninga lagardýra. Matvælastofnun ber að framfylgja þessum reglum.
Regluverkið gerir sérstaklega ráð fyrir að sjúkdómalaus staða geti náð til lands, svæðis eða afmarkaðs hólfs. Samkvæmt 197. gr. reglugerðar 2016/429 getur viðurkennd staða upprunahólfs því uppfyllt kröfur vegna flutnings til sjúkdómalauss áfangastaðar, þótt sami sjúkdómur finnist annars staðar í upprunalandinu. Meta þarf hina tilteknu upprunaeiningu og alla aðra viðeigandi skilmála flutningsins.
Svigrúm Íslands til viðbótarkrafna er afmarkað. Í 269. gr. sömu reglugerðar er heimild til strangari landsráðstafana á tilteknum sviðum, en þær mega ekki hindra flutninga milli aðildarríkja. Varanlegar viðbótarhömlur þurfa því viðeigandi lagagrundvöll; almenn tilvísun til sjúkdóma í Noregi nægir ekki ein og sér.
Þetta útilokar ekki frekari smitvarnir þegar ástæða er til. Í 226. gr. er sérstök heimild fyrir landsráðstöfunum vegna annarra sjúkdóma sem valda verulegri hættu fyrir heilbrigði lagardýra. Ráðstafanirnar verða að vera nauðsynlegar og hæfilegar. Fyrirhugaðar ráðstafanir sem hafa áhrif á flutninga milli EESríkja þarf að tilkynna fyrirfram og fá samþykktar samkvæmt þeim reglum. Gagnvart Íslandi fer Eftirlitsstofnun EFTA með það hlutverk.
Fyrir hverja sendingu þurfa að liggja fyrir fullnægjandi heilbrigðisvottorð og önnur lögboðin gögn. Heimildin leysir innflytjanda ekki undan þeim skyldum. Matvælastofnun hefur eftirlit með því að skilyrðum innflutnings sé fullnægt og getur, þegar tilefni er til, krafist frekari gagna og rannsókna eða gripið til takmarkana á innflutningi í samræmi við gildandi lög og reglur.
Vernd heilbrigðis og útflutningshagsmuna krefst markvissrar vöktunar, traustra smitvarna og viðbragða þegar gögn gefa tilefni til. Ákvörðun um innflutning verður á sama hátt að byggjast á staðfestum forsendum og þeim reglum sem Ísland hefur skuldbundið sig til að virða.
Höfundur er deildarstjóri fiskeldis hjá Matvælastofnun.
