Rosaleg blöð að norðan
„Það væri afrek að komast í þrjú grönd.“
Þetta sagði Ragnar Hermannsson stórspilari sem var landsliðsmanninum Magnúsi Magnússyni til halds og trausts sem lýsandi í Úrvalsdeildinni í bridds í spili níu í viðureign í Úrvaldeildinni í bridds fyrir skemmstu. Öll fljót lágu að mati þeirra sérfræðinganna í fjóra spaða í suður sem illu heilli eru beint niður með hjartadrottningu út eins og spilið liggur.
En hinir sjóðheitu norðlensku Guðmundur Halldórsson-Stefán Stefánsson í sveit glænýrra bikarmeistara, sem spiluðu sjónvarpsleikinn af snilld ásamt Gunnari Birni Helgasyni og landsliðsmanninum Stefáni Jóhannssyni, gegn Pressuliði, voru mjúkir á bárunni og vel með á nótunum í þessu spili sem öðru.
Á hinu borðinu gengu sagnir 1tígull1spaði-3tíglar-3-spaðar-4spaðar án þess að andstaðan léti í sér heyra.
Það væri afrek að komast í 3 grönd sagði Ragnar:
Sagnir fóru eins af stað hjá þeim en í stað þess að segja 3 spaða meldaði suður 3 hjörtu og þá var orðið upplagt fyrir norður að melda 3 grönd þar sem góðar líkur voru á laufi út upp í gaffalinn.
„Þetta er rosalegt blað hjá Stefáni og Guðmundi,“ sagði Magnús um frammistöðu Norðlendinganna Guðmundar Tjörnesings og Stefáns frá Akureyri.
Og sömu sögu var að segja um ákvarðanir Stefáns Jó og Gunnars Björns. Enda unnu bikarmeistararnir leikinn stórt. Þrír Frakkar meistarar Sveit Þriggja Frakka varð Íslandsmeistari í sveitakeppni eldri spilara á dögunum. Í sveitinni spiluðu Guðmundur Sv. Hermannsson-Björn Eysteinsson, Þorlákur Jónsson-Guðmundur Páll Arnarson.
Þrjár af þessum fjórum kempum unnu heimsmeistaratitil árið 1991 og raða enn inn titlum! Til hamingju, drengir!
Umsjón: Björn Þorláksson,
bjornthorlaksson[hjá]gmail.com
