Gosi banar geimi
Það var dálítið vandræðalegur spilari sem þurfti að upplýsa fyrir sveitarfélögum að hann hefði farið þrjá niður á þremur gröndum í spili sem tölvan sagði að ætti að skila 10 slögum.
Vettvangurinn er efsta deildin í bridds, deildarkeppnin. Spilað var um fjögur efstu sætin 24.- 25. október sl. Suður spilar þrjú grönd eftir að austur hefur hindrað á tveimur hjörtum sem sýnir sexlit.
Útspilið er laufgosi. Ef þú horfir aðeins á NS hendurnar, hvernig spilarðu spilið?
Sagnhafi hugsaði lengi áður en hann valdi fyrsta spilið, sem reyndist banabiti. Skipting lauflitarins er vitaskuld á þessu stigi fullkomlega óljós. Sagnhafi sá að með því að leggja kónginn á væri þó hægt að tryggja einn laufslag. Og ef spaðinn lægi upp í fjóra slagi, annaðhvort hónor annar á hægri hönd og hægt að svína í gegnum vestur eða toppa í 3-3 legu þá voru líka fjórir slagir í skógi í tígli. Vandræðalegt að dúkka ef ás-drottning í laufi væri á hægri hönd. Þess vegna lagði sagnhafi kónginn á. Og tapaði spilinu stórt örfáum sekúndum síðar þegar hann svínaði tígli og drottning austurs átti slaginn. Síðan fylgdu fimm laufslagir og hjartaás. Þrír niður.
Tölvan segir 10 slagir. Vegna þess að hún gerði ekki ráð fyrir að Hlynur Garðarsson fyndi þetta vel hugsaða og í raun banvæna útspil frá brotinni röð. Hlynur má vel við una að hafa ekki spilað einspilinu sínu í hjarta eins og sást á einhverjum borðum.
Ein rök í lokin fyrir því að sagnhafi átti sennilega að leysa vandann, dúkka í fyrsta slag á grunni þess að langur lauflitur væri á vinstri hönd með ásinn í fararbroddi. Það hlýtur að teljast ólíklegt þegar betri spilarar landsins takast á, að sá sem opnar á tveimur hjörtum sé með tvo ása. Nú orðið opna flestir á einu hjarta með tvo ása og sex í hálit. Sveit Infocapital skoraði mest í mótinu, Málning varð í öðru sæti, Vinir Gylfa tóku bronsið og Munus endaði í fjórða sæti. Þessar sveitir berjast til úrslita um gullið síðar í þessum mánuði.
Umsjón: Björn Þorláksson,
bjornthorlaksson[hjá]gmail.com
