Sendinefnd Íslands á COP 17 í Yerevan. Kristján Freyr Helgason atvinnuvegaráðuneyti, Snorri Sigurðsson Náttúrufræðistofnun, Freydís Vigfúsdóttir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Sólrún Svandal utanríkisráðuneyti, Hákon Ásgeirsson Náttúruverndarstofnun, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Sunna Björk Ragnarsdóttir hjá Náttúrufræðistofnun.
Sendinefnd Íslands á COP 17 í Yerevan. Kristján Freyr Helgason atvinnuvegaráðuneyti, Snorri Sigurðsson Náttúrufræðistofnun, Freydís Vigfúsdóttir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Sólrún Svandal utanríkisráðuneyti, Hákon Ásgeirsson Náttúruverndarstofnun, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Sunna Björk Ragnarsdóttir hjá Náttúrufræðistofnun.
Mynd / Aðsend
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

- COP 17 í Armeníu lokið

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og haldið var í samnefndri borg, höfuðborg Armeníu.

Aðgerðaráætlun var samþykkt í Montreal árið 2022 og í Yerevan áætluninni er staða hennar metin og forgangsverkefni skilgreind til ársins 2030. Meðal þeirra er að unnið skal gegn efnahagslegum hvötum og niðurgreiðslum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna. Ísland tilkynnti um 160 milljóna króna framlag á komandi fjórum árum til að styðja við að þróunarríki nái markmiðum rammasamkomulagsins árið 2030.

Jákvæð skref stigin

COP17, aðildarríkjafundi samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni lauk 31. október. Aðilar að samningnum eru 195 ríki, þar á meðal Ísland. Sjö manna sendinefnd frá Íslandi tók þátt, undir forystu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

Aðal umræðuefni þessa þings var úttekt á árangri markmiða sem aðildarríkin samþykktu í nýju rammasamkomulag á fundi í Montreal árið 2022. Það gildir til ársins 2030 og felur í sér 23 aðgerðarmarkmið, þar með talið markmið um vernd 30% lands- og hafsvæða.

Niðurstaða umræðu var að framvinda er ekki nægileg til að ná markmiðunum, en mörg jákvæð skref töldu hafa verið stigin á undanförnum árum.

Um 50 ákvarðanir voru nú samþykktar sem miða að því að styrkja vísindastarf og ryðja brautina fyrir hröðun aðgerða í þágu náttúrunnar. Meðal forgangsverkefna er að vinna gegn efnahagslegum hvötum og niðurgreiðslum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna og auka samræmingu fjárlaga og efnahagslegra ákvarðana á milli ríkja við efnisatriði rammasamkomulagsins.

160 milljóna króna framlag

Verndarsvæði, líffræðileg fjölbreytni skóga, hafs og strandsvæða, sjálfbær nýting villtra dýra, samspil líffræðilegrar fjölbreytni og loftslagsmála, framandi ágengar tegundir og áhættumat á erfðabreyttum lífverum er meðal þess sem sameiginlegar ákvarðanir voru teknar um. Þær nýtast víða og ekki síst í atvinnulífinu. Skýrslan State of Biodiversity Action var gefin út í kjölfar fundarins.

Ný áhersla var kynnt á sviði menntunar um líffræðilega fjölbreytni og þegar hugað að undirbúningi á því samkomulagi sem tekur við árið 2030.

160 milljón króna framlag Íslands rennur til Global Biodiversity Framework Fund, sjóðs sem stofnaður var árið 2023 með það að sjónarmiði að fjármagna framkvæmd verkefna sem stutt geta þróunarríki í að ná settum markmiðum árið 2030.

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...