Í grænbókinni segir að leita þurfi leiða til að auka vernd og endurheimt kolefnisríkra vistkerfa og vistkerfa sem eru mikilvæg fyrir líffræðilega fjölbreytni, með votlendi og náttúrulega birkiskóga í forgangi.
Í grænbókinni segir að leita þurfi leiða til að auka vernd og endurheimt kolefnisríkra vistkerfa og vistkerfa sem eru mikilvæg fyrir líffræðilega fjölbreytni, með votlendi og náttúrulega birkiskóga í forgangi.
Mynd / smh
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Fyrsti áfangi endurskoðaðrar landsáætlunar og nýrrar aðgerðaáætlunar

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt stjórnvalda. Hún er fyrsti áfangi endurskoðaðrar landsáætlunar í landgræðslu og skógrækt.

Land og líf var fyrsta sameiginlega stefna stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt, kom út í ágúst 2022 og gildir til 2031. Stefnunni fylgdi aðgerðaáætlun fyrir árin 2022–2026.

Árangursvísar og lykilviðfangsefni

Í grænbók er lagt mat á stöðu málaflokksins, framkvæmd gildandi landsáætlunar, framgang aðgerða og helstu áskoranir.

Í yfirliti yfir stöðu árangursvísa í aðgerðaáætlun Lands og lífs kemur fram að af 50 árangursvísum teljast 22 vera lokið eða í föstum farvegi, 23 árangursvísum er lokið að hluta eða eru í vinnslu og fimm af árangursvísunum teljast ekki hafnir eða eru óstaðfestir.

Átta möguleg lykilviðfangsefni eru dregin fram í grænbók til mótunar hvítbókar – sem fylgir í kjölfarið áður en stefna er gefin út.

Þar segir að leita þurfi leiða til að auka vernd og endurheimt kolefnisríkra vistkerfa og vistkerfa sem eru mikilvæg fyrir líffræðilega fjölbreytni, með votlendi og náttúrulega birkiskóga í forgangi.

Einnig þurfi að leita svara við því hvernig áherslur í skógrækt skuli þróast næstu áratugina, meðal annars hvert jafnvægið skuli vera milli nýskógræktar og aukinnar umhirðu og nýtingar þeirra skóga sem þegar hafa vaxið upp. Jafnframt þurfi að finna leiðir til að efla fjölþætta verðmætasköpun úr skógum, svo sem sjálfbæra nýtingu skógarafurða, úrvinnslu, kolefnisbindingu, líffræðilega fjölbreytni og samfélagsleg verðmæti.

Þá er talið að endurskoða þurfi gæðaramma og viðmið aðgerða í takti við nýja þekkingu og breyttar áherslur. Hér er einkum átt við val lands og aðferða auk tegundavals og dreifingaráhættu. Skýr markmið séu sett út frá aðstæðum og hentugleika hvers svæðis og tekið mið af líffræðilegri fjölbreytni. Rammarnir séu þróaðir í víðtæku samráði, uppfærðir reglulega og aðgengilegir.

Virkja þarf landeigendur til þátttöku

Í grænbókinni er einnig talin þörf á að efla aðgengi og samnýtingu opinberra landupplýsinga, svo sem með auknu samstarfi stofnana, þannig að gögn séu aðgengileg á opnu og nýtanlegu formi í þágu nýsköpunar og til samfélagslegra hagsbóta. Jafnframt þurfi að finna leiðir til að öll nauðsynleg grunnkort, svo sem um jarðveg Íslands, séu til staðar. Sérstaklega þurfi að tryggja að gögn séu aðgengileg á opnu, stöðluðu og nýtanlegu stafrænu formi þannig að þau nýtist beint við ákvarðanatöku, landupplýsingavinnu og skipulagsgerð ríkis og sveitarfélaga.

Grænbókin leggur til að tryggt sé að ákvarðanir um landnýtingu séu byggðar á ástandi lands og bestu fáanlegri þekkingu, meðal annars með markvissri miðlun landupplýsinga. Leita þurfi leiða til betri beitarstjórnunar og víðtæks samstarfs þar um, þar sem sjálfbær landnýting, uppgræðsla og stýring nýtingar stuðli jafnframt að vernd líffræðilegrar fjölbreytni.

Grænbókin telur að skýra þurfi hlutverk svæðisáætlana og tengsl þeirra við landsáætlun, landsskipulagsstefnu og skipulagsáætlanir sveitarfélaga. Leita þurfi leiða til að gera svæðisáætlanir að raunhæfu tæki til forgangsröðunar og framkvæmdar og skýra hvernig þær tengjast skipulagsskyldu sveitarfélaga og ákvörðunum um einstaka framkvæmdir.

Þá er talin þörf á að auka þátttöku samfélagsins og skilning á ávinningi landgræðslu og skógræktar. Tengja þurfi aðgerðir betur við lífsgæði, útivist og daglegt umhverfi fólks og auka skilning á nauðsyn áframhaldandi jarðvegsverndar og baráttu gegn landeyðingu. Árangursmat þurfi að vera skýrt og því miðlað með aðgengilegum hætti. Jafnframt þurfi að leita leiða til að virkja þátttöku og ábyrgð bænda, landeigenda og annarra hagaðila á þeim verkefnum sem þeir taka þátt í, meðal annars með virkari þátttöku þeirra í söfnun og skráningu gagna í tengslum við vöktun og árangursmat. Nýta mætti hvata- og stuðningskerfið á markvissari hátt til að stuðla að slíkri þátttöku og yfirfærslu ábyrgðar.

Loks er nefnt að meta þurfi hvort endurskoða skuli verkaskiptingu milli ríkis/ríkisstofnunar og annarra framkvæmdaraðila með hagkvæmni og skilvirkni að leiðarljósi. Skýra þurfi hvaða verkefnum Land og skógur sinnir og hvaða verkefnum aðrir geta sinnt og þá hver stjórnsýsluleg og fjárhagsleg áhrif þess yrðu.

Eigi sjaldnar en á fimm ára fresti

Í umfjöllun grænbókarinnar um tilefni endurskoðunar segir að um lögbundið ferli sé að ræða auk þess sem gildistími aðgerðaáætlunar Lands og lífs renni út í lok árs 2026.

Samkvæmt lögunum skal ráðherra gefa út sameiginlega áætlun um landgræðslu og skógrækt eigi sjaldnar en á fimm ára fresti og til tíu ára í senn.

Í grænbókinni segir að frá útgáfu núgildandi stefnu hafi jafnframt orðið breytingar á stjórnsýslu og regluverki málaflokksins, meðal annars með stofnun Lands og skógar og setningu nýrra reglugerða, annars vegar um sjálfbæra landnýtingu og hins vegar um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt. Þá hafi áherslur þróast í loftslagsmálum, málefnum líffræðilegrar fjölbreytni, endurheimt vistkerfa, landupplýsingamálum og hvað varðar verðmætasköpun úr skógum.

Sjónarmið um stöðumat

Tilgangur samráðsins er að gefa almenningi, hagaðilum og öðrum áhugasömum tækifæri til að koma á framfæri sjónarmiðum um stöðumat grænbókarinnar og þau lykilviðfangsefni, áherslur og leiðir sem þar eru settar fram. Sérstaklega er kallað eftir ábendingum um hvort stöðumatið endurspegli stöðu málaflokksins, hvort lykilviðfangsefni næstu ára séu vel skilgreind og hvaða áherslur og leiðir séu mikilvægar til framtíðar.

Að loknu samráði um grænbókina verður unnið úr umsögnum og niðurstöður samráðsins nýttar við gerð hvítbókar með drögum að framtíðarsýn, markmiðum og áherslum nýrrar landsáætlunar. Gert er ráð fyrir frekara samráði við gerð hvítbókarinnar, meðal annars með samráðsfundum, áður en endanleg landsáætlun og aðgerðaáætlun verða mótaðar.  

Skylt efni: Landgræðsla | Skógrækt

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...

Nokkur hundruð kíló ruku út
Fréttir 9. nóvember 2026

Nokkur hundruð kíló ruku út

Matland brást skjótt við áhuga lesenda á að kaupa annars flokks lífrænar gulrætu...

Stefnt á mikla skógrækt
Fréttir 9. nóvember 2026

Stefnt á mikla skógrækt

Fyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf., hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í ...