Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undanfarin fimm ár. Fleiri fluttu til en frá öllum átta sveitarfélögum landshlutans á tímabilinu 2021–2025. Staðan var þó misjöfn á síðasta ári og var flutningsjöfnuður neikvæður í þremur sveitarfélögum.
Þetta kemur fram í nýrri Glefsu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), þar sem fjallað er um búferlaflutninga á Vesturlandi. Vífill Karlsson tók greininguna saman og byggir hún á gögnum Hagstofu Íslands.
Árið 2025 var flutningsjöfnuður jákvæður í fimm af átta sveitarfélögum á Vesturlandi. Hvalfjarðarsveit kom best út, en þar voru tæplega 50 fleiri aðfluttir en brottfluttir á hverja 1.000 íbúa. Næst komu Grundarfjarðarbær og Dalabyggð. Í Borgarbyggð, Snæfellsbæ og Eyja- og Miklaholtshreppi var flutningsjöfnuður hins vegar neikvæður á árinu.
Jákvæður jöfnuður alls staðar til lengri tíma
Önnur mynd blasir við þegar litið er yfir fimm ára tímabil í stað eins árs. Á árunum 2021–2025 var flutningsjöfnuður jákvæður í öllum átta sveitarfélögum Vesturlands.
Hvalfjarðarsveit kemur einnig best út í þeim samanburði, Dalabyggð er í öðru sæti og Borgarbyggð í því þriðja.
Í Glefsunni er bent á að búferlaflutningar geti sveiflast verulega frá einu ári til annars, einkum í fámennum sveitarfélögum. Því sé mikilvægt að horfa til lengri tímabila þegar lagt er mat á þróun byggðarlaga.
Konum fækkaði vegna búferlaflutninga á tveimur stöðum
Sérstaklega er horft til búferla- flutninga kvenna. Að meðaltali var flutningsjöfnuður kvenna neikvæður í Snæfellsbæ og Grundarfjarðarbæ á tímabilinu 2021–2025 þótt þróunin hafi farið batnandi í báðum sveitarfélögum.
Niðurstöðurnar birtast í 8. tölublaði Glefsu árið 2026. Greiningin byggir á gögnum Hagstofu Íslands og eru niðurstöðurnar meðal annars settar fram á landfræðilegum kortum.
