Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða
„Verkefnið Mýrarlíf er sjálfstætt en fer vel með aðgerðum stjórnvalda um endurheimt votlendis,“ segir Magnus Göransson, plöntulíffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, um verkefnið, sem er umfangsmikið evrópskt sex ára verkefni um endurheimt votlendis.
Verkefnið er á ríkisjörðum og áhrifasvæðið um 1300 hektarar. „Við vitum nokkuð vel að þessar jarðir sem eru ekki í notkun eru að losa mikið kolefni út í andrúmsloftið. Ef vatnsyfirborð þeirra hækkar aftur, þá hættir losunin. Ef maður skalar þetta upp er þetta góð viðbót í að binda kolefni, en 60 km duga ekki.“
Fyllt upp í 60 km af skurðum
Magnus leiðir vinnu um vöktun lífríkis svæðanna og gagnagrunnur verkefnisins verður hjá Náttúrufræðistofnun.
„Við munum fylla upp í um 60 km af skurðum, en það eru um 35 þúsund km af skurðum á Íslandi, það er næstum í kringum hnöttinn,“ segir Magnus. Hann segir lítinn hluta þess lands vera í notkun, við þurfum sannarlega framræst land til jarðræktar, en að þegar framræst land sé ekki í notkun, losi það gróðurhúsalofttegundir.
Náið fylgst með framvindunni
Verkefninu er ætlað að vera tilraunaverkefni um endurheimt votlendis þar sem náið verður fylgst með framvindu á þremur til fjórum stöðum á landinu; í Borgarbyggð við Hvanneyri, friðlandi í Flóa, Odda og Grafarnesi og mögulega svæði í Loðmundarfirði, en það gæti breyst. Fylgst verður með framvindunni næstu fimm til sex árin, „vonandi lengur“, segir Magnus.
Rúmlega 100 fastir reitir voru lagðir út í sumar til að fá grunnviðmið en endurheimt mun hefjast næsta sumar. Verkefninu er ætlað að leggja grunn að betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða og helstu áskoranir við endurheimt þeirra. Áhersla verður á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar.
Búsvæði lykiltegunda þrengjast
„Áhrif endurheimtar votlendis eru mikil á lífríki landsvæða,“ segir Magnus. „Áherslan verður sérstaklega á jaðrakan, stelk, lóuþræl og spóa. Þær eru lykiltegundir og búsvæði þeirra eru að þrengjast mikið. Við horfum til þess að það geti fjölgað í þessum tegundum.“
Landbúnaðarháskólinn leiðir verkefnið en að því koma auk Náttúrufræðistofnunar, Náttúruverndarstofnun, Land og skógur, sem sér um sjálfa endurheimtina, auk mælinga á gösum og vatnshæð. Þar að auki Fuglavernd og bresku fuglaverndarsamtökin (RSPB), í ljósi þess að margar fuglategundanna á áhrifasvæðinu eru farfuglar. Hafrannsóknastofnun mun koma að rannsóknum á vatnalífi á svæðunum, sér í lagi athugunum á álum sem helst er að finna í Flóunum. Gildrum til að mæla fjölda ála hefur þegar verið komið upp.
