Vill meira svigrúm til nýsköpunar og framleiðniaukningar í landbúnaði
Viðtal 6. nóvember 2026

Vill meira svigrúm til nýsköpunar og framleiðniaukningar í landbúnaði

Höfundur: Þröstur Helgason

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra telur að bæta þurfi arðsemi íslensks landbúnaðar til að auðvelda nýliðun og skapa bændum meira svigrúm til nýsköpunar og framleiðniaukningar. Hann vill einfalda stuðningskerfið, fækka liðum þess og draga úr því að ríkið stýri staðsetningu, stærð og ráðstöfun stuðnings. Tollvernd sé hins vegar grundvallarhluti stuðnings við landbúnaðinn og ekki hægt að hrófla við henni án þess að eitthvað komi í staðinn.

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra var gestur Útvarps Bændablaðsins. Þar ræddi hann stöðu efnahagsmála, ríkisfjármál og áhrif hækkandi olíuverðs en ekki síður framtíð íslensks landbúnaðar, nýliðun, búvörusamninga og tollvernd.

Daði segir sjálfbæran rekstur ríkissjóðs hornstein langtímastöðugleika, ekki síst í litlu opnu hagkerfi eins og því íslenska. Ísland sé að koma út úr löngu tímabili hallareksturs sem hafi farið saman við verulega þenslu og mikla verðbólgu.

Þótt skuldir ríkisins séu að hans sögn hóflegar, um 60% af landsframleiðslu, sé vaxtakostnaðurinn mikill og skerði getu ríkissjóðs til að verja fé til annarra verkefna.

„Ef við ætlum að viðhalda stöðugleika, ef við ætlum líka að endurheimta slagkraft ríkisins til þess að geta brugðist við áföllum framtíðarinnar og ef við ætlum að lækka vaxtakostnað ríkisins, þá þarf áherslan að vera á að lækka ríkisskuldir og ná tökum á ríkisfjármálunum.“

Vextir voru of lágir of lengi

Daði segir auðvelt að vera vitur eftir á en ljóst sé að hallarekstur ríkissjóðs hafi komið á versta mögulega tíma. Erfitt hafi verið að sjá fyrir hvernig þróunin eftir Covid yrði en í kjölfarið hafi farið saman gríðarlegur hagvöxtur og mikill halli ríkissjóðs.

„Auðvitað leiddi það til þenslu. Ég held líka, eftir á að hyggja, og ég er viss um að Seðlabankinn tekur undir þetta, að vextir voru of lágir of lengi, sem varð til þess að það varð að hækka þá alveg rosalega mikið í kjölfarið.“

Hann telur þó ekkert benda til þess nú að íslenskt efnahagslíf stefni inn í samdráttarskeið. Hagvöxtur sé jákvæður, fjárhagsstaða heimila og fyrirtækja sterk og áfram sé veruleg fjárfesting í útflutningsatvinnuvegunum.

Byggingariðnaðurinn sé sá geiri sem valdi honum mestum áhyggjum. Samdráttur í húsbyggingum geti leitt til skorts þegar eftirspurn tekur aftur við sér og þar með til hækkunar húsnæðisverðs. Aðgerðir stjórnvalda hafi því meðal annars miðað að því að halda húsnæðisframleiðslu gangandi.

Býst við lækkandi verðbólgu

Hækkun olíuverðs hefur að mati Daða ekki haft jafnslæm áhrif á íslenskt efnahagslíf og óttast var. Krónan hafi styrkst samhliða verðhækkuninni og viðskiptakjör Íslands raunar batnað þar sem verð á ýmsum útflutningsafurðum hafi einnig hækkað.

„Auðvitað hef ég áhyggjur og myndi miklu frekar vilja sjá lækkandi olíuverð. Ég er bara að segja að þetta hefur ekki reynst eins vont og við óttuðumst.“

Hann segir jafnframt að verðbólguáhrif olíuverðs- hækkunarinnar séu að mestu komin fram. Olíuverðið þurfi að halda áfram að hækka ef frekari verðbólguáhrif eigi að verða.

Daði segist að jafnaði efins um verðbólguspár en telur skilyrðin nú óvenjulega góð.

„Það er hins vegar í dag óvanalega góð skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og ég hef væntingar til þess að hún muni lækka tiltölulega hratt núna þegar líður á haustið og í upphafi næsta árs.“

Áhrif hærra orkuverðs geti meðal annars komið fram í áburðarverði. Áburðarframleiðsla sé orkufrek og jafnframt eigi stór hluti framleiðslu ákveðinna áburðarefna sér stað við Persaflóann. Daði telur þó ekki sérstaka ástæðu til aðgerða stjórnvalda eins og staðan sé nú.

Landbúnaðurinn þarf að vera efnahagslega sjálfbær

Daði, sem er búfræðingur frá Hvanneyri og með doktorsgráðu í auðlindahagfræði frá norskum landbúnaðarháskóla, segir að aðstæður séu mjög mismunandi milli greina landbúnaðarins. Grundvallaratriðið sé þó að atvinnugreinar sem eigi að vera sjálfbærar verði einnig að vera efnahagslega sjálfbærar.

Hann telur að Íslendingar hafi að einhverju leyti blandað saman byggðahlutverki landbúnaðarins og eðli hans sem atvinnurekstrar.

„Við höfum pínulítið blandað saman byggðahlutverki landbúnaðarins og því að þetta er atvinnurekstur. Lagt á herðar landbúnaðinum skyldur sem hafa þýtt að hann verður ekki eins spennandi framtíðarvalkostur.“

Hann segir þá hluta landbúnaðarins þar sem meiri áhersla hafi verið lögð á efnahagslega sjálfbærni ganga betur en þar sem áherslan hafi fremur verið á að viðhalda tilteknu byggðamynstri eða öðrum samfélagslegum hlutverkum.

Daði segir mikilvægt að skilgreina skýrt hvaða markmiðum stuðningskerfið eigi að ná.

„Ef þú ert ekki með nein markmið, hvernig ætlarðu að meta það hvort þú ert að ná árangri eða ekki?“

Ríkið skipti sér minna af

Að mati Daða ætti að gefa landbúnaðinum meira svigrúm til að þróast á markaðsforsendum.

„Með því að menn fái enn þá frekari tækifæri til þess að njóta afraksturs af eigin fjárfestingum og vinnu og ríkið sé minna að skipta sér af því nákvæmlega hvað þeir eru að gera. Skipti sér ekki af staðsetningu, skipti sér ekki af stærð, skipti sér ekki af hvernig stuðningurinn er nýttur svo lengi sem hann er nýttur til þess að skapa framleiðni.“

Hann viðurkennir um leið að Ísland sé að mörgu leyti krefjandi landbúnaðarland. Landið henti vel til grasframleiðslu en önnur jarðrækt sé takmörkunum háð. Engin einföld lausn sé því til.

Daði leggur mikla áherslu á nýsköpun, samkeppni og einstaklingsframtak. Hann telur sömu drifkrafta þurfa að vera til staðar í landbúnaði og öðrum atvinnugreinum.

„Ég held að nýsköpun og samkeppni skipti jafnmiklu máli í þessari atvinnugrein og öllum öðrum til þess að tryggja það að bestu fyrirtækin haldi áfram.“

Einfalda þarf stuðningskerfið

Búvörusamningar hafa verið framlengdir til ársloka 2027. Daði segir að þegar horft sé til kerfisins sem taki við þurfi að hafa hugfast að landbúnaður sé ólíkur flestum öðrum atvinnugreinum vegna þess hversu samofinn rekstur búanna sé heimilum fjölskyldna.

„Þess vegna held ég að þurfi að nálgast allar kerfisbreytingar í landbúnaði af virðingu fyrir því að við erum að tala að einhverju leyti bara um heimili fólks.“

Þrátt fyrir það telur hann þörf á breytingum.

„Við þyrftum að einfalda kerfið, fækka liðunum í því, gera það opnara þannig að það sé meira rými fyrir nýsköpun í því að skapa ný verðmæti og ný atvinnutækifæri á grunni þeirra auðlinda sem við höfum aðgang að.“

Daði rifjar upp að þegar hann starfaði hjá Bændasamtökunum hafi hann ásamt Ernu Bjarnadóttur unnið skýrslu um framleiðslukostnað mjólkur. Þá hafi komið í ljós að munurinn á framleiðslukostnaði mjólkur á Íslandi og í Danmörku hafi verið minni en þau höfðu gert ráð fyrir. Lágt landverð hér á landi hafi þar haft veruleg áhrif.

Hins vegar hafi bæst við kerfiskostnaður og mun hærri úrvinnslukostnaður hér á landi.

„Það er miklu meiri munur á mjólkurlítranum úti í búð heldur en við mjólkurhúsdyrnar.“

Arðsemin lykill að nýliðun

Daði telur að nýliðunarvandi landbúnaðarins verði ekki leystur án þess að bæta afkomu í greininni.

„Grundvallaratriði er það að arðsemin batni. Ég held að þú þurfir aldrei að hafa áhyggjur af nýliðun í atvinnugreinum sem er ábatasamt að koma inn í.“

Þar komi þó fram togstreita milli ólíkra markmiða. Aukin framleiðni geti þýtt færri bú ef markaðurinn stækkar ekki á sama tíma. Sé jafnframt gerð krafa um að landbúnaðurinn verði hornsteinn byggðaþróunar geti markmiðin rekist á.

Daði vill því sjá einfaldara kerfi og færri hindranir fyrir fólk sem vill skapa verðmæti með nýjum hugmyndum. Breytingarnar eigi þó ekki að verða byltingarkenndar.

„Þetta eru heimili fólks sem þarna eru samofin þessum fyrirtækjarekstri.“

Tollverndin grundvallarhluti stuðningsins

Daði telur jafnframt að tollvernd verði ekki tekin úr sambandi án þess að horft sé til heildaráhrifa á íslenskan landbúnað.

„Tollverndin er auðvitað grundvallarhluti af stuðningnum við íslenskan landbúnað og ef við ætlum að hrófla við því þá þarf eitthvað annað að koma í staðinn.“

Íslenskur landbúnaður glími jafnframt við stærðarvanda á alþjóðlegum mörkuðum. Matvælamarkaðurinn einkennist af gríðarlegri stærðarhagkvæmni og örfáum stórum aðilum. Jafnvel þótt íslenskir framleiðendur fyndu eftirsóknarverðan markað væri framleiðslumagnið takmarkað.

„Ef við fyndum okkur einhvers staðar horn í þessum markaði þá gætum við ekki fyllt upp í það.“

Um leið undirstrikar Daði að landbúnaður gegni mikilvægu byggðahlutverki þótt leggja þurfi áherslu á arðsemi atvinnugreinarinnar.

„Á mörgum svæðum hringinn í kringum landið er landbúnaðurinn enn þá raunverulega akkerið undir byggðinni.“

Ber fullt traust til Harðar

Daði var einnig spurður um brotthvarf Harðar Arnarsonar úr starfi forstjóra Landsvirkjunar.

„Ég hef borið fullt traust og ber fullt traust til Harðar og okkar samskipti hafa einkennst af því.“

Hann segist ekki hafa fengið með beinum hætti þau skilaboð frá Herði að hann teldi sig ekki njóta nægilegs trausts stjórnar Landsvirkjunar. Ráðherra eigi heldur ekki að skipta sér af daglegum rekstri ríkisfyrirtækja.

Daði segist ekki hafa séð neitt sem grafi undan trausti hans til stjórnar Landsvirkjunar. Pólitísk áhrif á ríkisfyrirtæki eigi fyrst og fremst að birtast í opinberri eigendastefnu en ekki afskiptum af einstökum rekstrarákvörðunum.

„Símtöl og símskeyti, ég held ekki að það sé fagleg leið til þess að stýra þessum fyrirtækjum.“

Vill RÚV af auglýsingamarkaði

Daði segist jafnframt telja skynsamlegt að Ríkisútvarpið fari af auglýsingamarkaði.

Hann bendir á að tillögur liggi fyrir um að byrja að takmarka aðkomu RÚV að markaðnum. Slík breyting verði þó ekki gerð án þess að jafnframt sé tekin afstaða til umfangs og fjármögnunar miðilsins.

„Ef þú ætlar að kippa undan einni tekjustoðinni þá þarftu alla vega að taka afstöðu til þess hvaða afleiðingar þú ætlar að láta það hafa.“

Almennt eigi ríkið að hans mati að fara mjög varlega inn á samkeppnismarkaði. Hann telur skattlagningu auglýsinga hjá erlendum samfélagsmiðlum hins vegar vandasama í framkvæmd þótt hann skilji vel gagnrýni íslenskra fjölmiðla á samkeppnisstöðuna.

„Auðvitað svíður okkur það að sjá þessa miðla geta raunverulega boðið sína vöru án eðlilegra gjalda sem aðrir bera.“

Hann segir vandann raunverulegan og að skoða þurfi áfram leiðir til þess að jafna stöðu erlendra tæknirisa og íslenskra fjölmiðla.

Skylt efni: Landbúnaður

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt