Vel var mætt á fundina og helstu málin rædd.
Vel var mætt á fundina og helstu málin rædd.
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin hófst í Félagslundi í Flóahreppi 2. nóvember og henni lýkur þann 11. nóvember. Trausti Hjálmarsson formaður og Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, fóru yfir helstu mál.

Meðal annars var rætt um geðheilsu bænda, ágang álfta og tilkynnt var um nýtt fjármagn til stuðnings við kæligeymslu í útiræktun grænmetis. Bændur sem sóttu fundinn gátu stigið í pontu sem margir gerðu bæði til að spyrja spurninga, gagnrýna, hrósa starfinu sem og benda á einstök mál.

Davíð Clausen Pétursson.

Fjölbreytt mál á borði BÍ

Í erindi sínu fjallaði Trausti um fjölbreytt verkefni. Til að mynda áframhaldandi fjárfestingarstuðning í ylrækt, að það stæði til fyrir áramót að úthluta nýju fjármagni til að styðja við útiræktendur í grænmeti til að setja upp hagkvæmari og orkusparandi geymslur og að það yrði haldið áfram með stuðning í nákvæmnisdreifingarbúnaði á áburði. Margir sem stigu í pontu vildu ræða ágang álfta og inntu eftir lausnum. Trausti sagði á fundinum að álftin væri stórt vandamál en að Bændasamtökin væru í góðu samtali við ráðuneytið og væru nær því en áður að ná árangri í álftamálum. Hann sagði að stefnan væri að hafa lausnir á borði næsta vor.

Geðrækt og geðheilbrigðismál bænda voru til umræðu sem og hækkanir ýmissa gjalda sem eru í kortunum, þar á meðal kílómetragjaldsins og hækkun úrvinnslugjalds á plastumbúðir og heyrúlluplast. Margrét fjallaði um hvernig hækkun þessara gjalda yrðu íþyngjandi fyrir fólk á landsbyggðinni og þá sérstaklega í dreifbýli. Margrét fór auk þess yfir nýleg mál og áherslur í hverri búgrein fyrir sig.

Valur Þorsteinsson, markaðsstjóri BÍ.

Valur Þorsteinsson, markaðsstjóri BÍ, fór að lokum yfir sýnileika og vitundarvakningu með notkun samfélagsmiðla. Hann fór yfir nýlega herferð Bændasamtakanna, umræðuna í kringum ESB-aðild og ræddi hvernig það gagnist hagsmunabaráttu bænda að fólk skilji hvað sé að gerast í sveitum. Valur hefur unnið bæði skemmti- og fræðiefni fyrir samfélagsmiðla BÍ, auglýst viðburði og sýnt frá sveitastörfum.

„Mikilvægt að halda fundi“

Davíð Clausen Pétursson frá Hvammi í Ölfusi var ánægður með fundinn. „Það er mikilvægt að halda svona fundi. Mér finnst gaman að sjá hvað Bændasamtökin eru virk á samfélagsmiðlum, það er jákvætt og líka flott að sjá hvað þau hafa lært mikið af baráttunni í sumar og hvernig þau koma út úr henni og vonandi bara eflast samtökin enn meira við þetta,“ segir Davíð. „Það hefði kannski mátt taka aðeins fyrir nýliðun og ættliðaskipti. Ég er til dæmis að fara í þann pakka fljótlega, að taka við búinu heima. Það er mikilvægt að brýna á þeim málum, ég hefði kannski viljað heyra hver stefnan er varðandi það. Kerfið eins og það lítur út í dag virðist einstaklega flókið en nýliðunin skiptir máli.“

Catharina Krentel og Þorsteinn Logi Einarsson.

Þorsteinn Logi Einarsson og Catharina Krentel eru bændur í Egilsstaðakoti í Flóahreppi. Þeim fannst fundurinn vel skipulagður og upplýsandi. „Það er gott að fá að heyra hvað er búið að vera að gera og gott að fara í allar búgreinarnar, að fara yfir allar áherslurnar þar,“ segir Catharina. „Mér fannst gott að sjá yfirferðina hjá Val um samfélagsmiðlana, það er búið að vera gaman að fylgjast með honum,“ segir Þorsteinn. „Sýnileikinn á þessu innra starfi sem fólk gerir sér ekki grein fyrir er mikilvægur. Það er mikilvægt að sýna að bændur eru bara fólk og að áhugi vakni á okkar störfum.“

Bryndís Eva Óskardóttir.

Kúabóndinn Bryndís Eva Óskarsdóttir á Dalbæ í Flóa var einnig ánægð með fundinn. „Það er greinilegt að Bændasamtökin eru með mörg járn í eldinum sem er ánægjulegt að sjá og frábært að sjá hvernig þau fræða almenning um landbúnað. Það er áhyggjuefni hvað bilið milli afurðarinnar og neytandans er alltaf að breikka,“ segir Bryndís. „Ég fagna umræðunni um öryggismálin á fundinum og mér finnst það mætti fara meira út í brunavarnir, fæst fjós eru með almennilegar brunavarnir sem virka en það er svo mikilvægt.“ Bryndís var einnig ánægð með umræðuna um geðheilbrigði bænda. „Við erum mörg hver sem vinnum mikið ein við búskapinn og þá er auðvelt að fela sig. Þetta er mikilvæg umræða og öll þessu hagsmunabarátta er góð. Það er frábært að þau séu að tala fyrir allar greinarnar líka og það hvetur vonandi fólk til að borga í samtökin. Við stöndum öll saman að þessu verkefni.“

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...