Besti hrútur Snæfellinga
Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. október og tóku 63 hrútar þátt.
Heiðursverðlaun fyrir besta hrút sýningarinnar fengu Guðlaug Sigurðardóttir og Jóhannes Eyberg Ragnarsson frá Hraunhálsi. Hrúturinn var jafnframt verðlaunaður fyrir að vera besti kollótti gripur sýningarinnar.
Í samtali segir Guðlaug að móðir umrædds hrúts sé kollótt ær undan heimahrútnum Starflóa. Faðir hrútsins sé hyrndi sæðingahrúturinn Hrókur. Þar sem móðirin er kollótt og faðirinn hyrndur er verðlaunahrúturinn frá Hraunhálsi hnýflóttur, eða með mjög lítil horn. „Það var mjög skemmtilegt að sjá hvað fólk kom með góða hrúta á sýninguna,“ segir Guðlaug. „Hrútasýningar eru skemmtilegar því að þá gefst færi á að sjá ræktunina hjá öðrum. Eins er þetta mikill félagsskapur og það er gaman að hitta bændur.“
Í Hraunhálsi er öflug kynbótarækt á sauðfé, en bændurnir áttu jafnframt hrúta í 4. og 5. sæti í flokki kollóttra á sýningunni. Þau fengu jafnframt verðlaun fyrir besta hrútinn á sömu sýningu fyrir tveimur árum. „Þetta hafa bara verið kollóttir hrútar hjá okkur, en við erum ekki með nema örfáar hyrndar ær. Við erum búin að vera lengi í búskap og í upphafi var erfiðara að fá góða kollótta hrúta og lögðum við því meiri áherslu á það. Með tíð og tíma urðu kollóttu kindurnar alltaf betri þannig að það fækkaði í hyrnda stofninum. Núna erum við með í kringum 80 kindur og höfum mest verið með rúmlega 100. Við vorum með kúabú sem var aðalbúskapurinn,“ segir hún.
Guðlaug og Jóhannes Eyberg fengu farandskjöld sem er skorinn út af Ríkarði Jónssyni. „Við erum í vandræðum með skjöldinn þar sem við erum eiginlega búin að fylla hann og er sauðfjárræktarfélagið að skoða hvort eigi að gera nýjan,“ segir Guðlaug. Skjöldurinn hefur verið í notkun frá 1954 og var síðasta pláss fyrir nafn verðlaunahafa fyllt árið 2016.
