Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar
Könnun á viðhorfi almennings til sauðfjárræktar stendur nú yfir. Hún er hluti af rannsóknarverkefninu Lost to Climate og hluti af meistaraverkefni Freju Kidal, nemanda við Háskólasetur Vestfjarða.
Verkefnið Lost to Climate rannsakar hvernig loftslagsbreytingar geta stuðlað að tapi eða umbreytingu menningararfs víðs vegar á norðurslóðum. Verkefnið er alþjóðlegt og rannsakendurnir Jóhanna Gísladóttir og Matthias Kokorsch við Háskólasetur Vestfjarða leiða það fyrir hönd háskólasetursins og eru jafnframt leiðbeinendur Freju í meistaraverkefni sínu. Ellefu háskólar og rannsóknastofnanir frá níu löndum taka þátt í verkefninu.
Á Íslandi er sjónum sérstaklega beint að menningarlegu gildi sauðfjár og hefðum tengdum sauðfjárrækt. Þar er horft til hlutverks smölunar og flokkunar búfjár í réttir sem skilgreindar eru sem „mikilvægir félagslegir og menningarlegir viðburðir sem færa fólk saman og stuðla að varðveislu þekkingar, færni og hefða sem hafa gengið milli kynslóða“, eins og segir í lýsingu á verkefninu. Þar segir enn fremur: „Víða um land eru göngur og réttir meðal skýrustu birtingarmynda íslensks landbúnaðararfs og menningarlegrar sjálfsmyndar.“
Önnur könnun verður send til bænda fyrir jól til að kanna viðhorf þeirra. Niðurstaðna er að vænta í maí 2027, en könnunina má finna hér.
