Áfram hægt að kaupa hamsatólg
Framleiðsla hamsatólgar heldur áfram. Í byrjun hausts leit út fyrir að Stóruvellir ehf. sem hafa verið einu framleiðendur hamsatólgar, tólgar og hangiflots myndu hætta framleiðslu og erfitt yrði fyrir landsmenn að nálgast hamsatólgina fyrir jól. Nú hefur fyrirtækið verið selt og framleiðslan heldur því áfram.
Í september birti Bændablaðið grein um að Stóruvellir ehf. í Bárðardal hygðust hætta framleiðslu á hamsatólg, tólg og útikertum vegna þess að Garðar Jónsson, stofnandi fyrirtækisins, er að fara á eftirlaun. Garðar segist mjög ánægður með að framleiðslan haldi áfram og að þessi matarhefð leggist ekki af.
Þórhildur Jónsdóttir er kennari og deildarstjóri á leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík. Hún keypti framleiðsluna nú í október. „Ég sá þetta auglýst og fannst þetta bæði spennandi og áhugavert. Mig langaði ekki að missa hamsatólgina, ég er mjög hrifin af henni, svo ég ákvað að taka stökkið,“ segir Þórhildur í samtali við blaðið.
Hún og maðurinn hennar, Jónas Sigmarsson, eiga iðnaðarhúsnæði á Húsavík sem hýsti einu sinni matvælaframleiðslu. Þau eru að gera húsnæðið upp sem stendur og mun framleiðslan færast úr Bárðardal yfir á Húsavík eftir áramót. Þórhildur er byrjuð með reksturinn en Garðar aðstoðar hana við að læra handtökin. „Ég er mjög spennt fyrir þessu öllu og þakklát Garðari að vera mér innan handar,“ segir Þórhildur. Þau ætla að halda framleiðslunni áfram með óbreyttu sniði enda vörurnar vinsælar eins og þær eru. „Ég ætla að halda nafninu og útlitinu enda er þetta klassísk vara. Einn daginn mun ég kannski breyta umbúðunum eitthvað en ekki í bili, nú er ég bara ánægð að það sé nóg til af tólg.“
