Hætta framleiðslu á hamsatólg, tólg og útikertum
Stóruvellir efh. í Bárðardal hafa framleitt tólg, hamsatólg, hangiflot og útikerti í rúm 30 ár en eru nú að hætta framleiðslu. Fyrirtækið er það eina sem framleiðir hamsatólg og verður því ekki hægt að nálgast hana í matvöruverslunum þegar lager Stóruvalla klárast.

