Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöldi fólks mætti á sýninguna og metfjöldi lamba mætti til dóms.
Dæmt er í fjórum flokkum, hyrndar gimbrar, hyrndir hrútar, kollóttar gimbrar og kollóttir hrútar. Samtals komu 64 hrútar til sýningarinnar og 96 gimbrar og hafa lömbin ekki áður verið fleiri á þessari sýngingu.
Áhorfendur velja litfegursta lamb sýningarinnar, veitt eru verðlaun fyrir þykkasta bakvöðvann í ómmælingum og fær eigandi þess lambs lambalæri í vinning.
Þá eru veitt verðlaun fyrir bestu fimm vetra á ársins 2025 innan Rangárvallasýslu skv. upplýsingum frá RML, besta veturgamla hrút ársins 2025 og ræktunarbú þess sama árs.
Verðlaunagripirnir eru bæði farandgripir og til eignar. Flestir eru handmálaðir plattar af Gunnhildi Jónsdóttur ,listakonu okkar frá Berjanesi. En einnig er veittur farandbikar fyrir ræktunarbúið.
Fjölmargir aðilar styrktu hátíðina og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn. Eins þökkum við öllum þeim sem komu að hátíðinni í sjálfboðavinnu og ekki síst þeim sem komu með lömb til dóms kærlega fyrir daginn og ánægjulega samverustund.
Hulda Brynjólfsdóttir
Smáspunaverksmiðjan Uppspuni / Sveitakarlinn ehf.
Hjalti og Sigurbjörg sem kenna féð sitt við Hreiður, tóku við verðlaunum fyrir bestu fimm vetra á árinu 2025 í Rangár- vallasýslu skv. Blup-mati RML. Óskírður erfingi þeirra fékk að koma með í sína fyrstu verðlaunaafhendingu.Litfegursta lambið kom frá Skíðbakka 1 og komu Alexandra og Birna að taka við verðlaununum.Albert tók við verðlaunum fyrir besta veturgamla hrút ársins 2025 skv. Blup-mati RML, en hann er frá Skíðbakka , en var keyptur sem lamb frá Hreiðri. Til gamans má geta þess að þessi hrútur sem heitir Darvin er sonur bestu fimm vetra ærinnar sem fékk verðlaun fyrir árið 2025.Mikið af ungu fólki tók þátt í að sýna lömbin og hér eru bræður frá Teigi í Fljótshlíð með tvær gimbrar ofarlega í röðun.Það var í nógu að snúast hjá starfsfólki sýningarinnar og dómurunum sem komu frá RML, feðgarnir Pétur og Sigurður Anton.Aron á Efri-Rauðalæk raðaði inn verðlaunum, en hann sýndi efsta lambið í þremur f lokkum. Hér er hann með bestu hyrndu gimbrina og við hlið hans er Garðar í Hólmi með barnabörnin og var sú gimbur annað tveggja lamba sem mældist með 41 mm bakvöðva og fékk verðlaun fyrir þykkasta bakvöðva sýningarinnar. Í þriðja sæti er Sigríkur á Syðri-Úlfsstöðum.