Aukin framleiðsla í september
Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyrra, samkvæmt nýútgefnum tölum Hagstofunnar.
Þegar skoðaðar eru tölur um fjölda gripa sem komu til slátrunar í september í nýliðinni sláturtíð sést að talsvert fleiri gripum var slátrað í ár miðað við á síðasta ári – bæði hvað dilka varðar og fullorðið fé. Þannig var í september á þessu ári 3.295.929 dilkum slátrað samanborið við 3.196.271 á síðasta ári. Þá var í liðnum septembermánuði slátrað 9.776 fullorðnum gripum en 8.832 á síðasta ári.
Eyþór Einarsson, sauðfjárræktarráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, segist telja að fallþungi sé nú svipaður og í fyrra en heilt yfir lakari flokkun. Í fyrra var fallþungi óvenjugóður að meðaltali og mældist 17,7 kíló, auk þess sem meðaleinkunn fyrir gerð var sú hæsta á landsvísu frá því að núverandi kjötmat var tekið í notkun, eða 9,65.
„Fjölgun sláturlamba getur skýrst af því að framleiðslan sé að aukast, en það var jú fleira fé sett á í fyrrahaust en árið þar áður. Þetta getur líka gefið til kynna að lifun lamba hafi verið góð og gefið væntingar um að fjöldi lamba til nytja á hverja kind sé meiri en í meðalári.
Vissulega geta þessar tölur líka verið til marks um að bændur séu að draga saman, þá kemur meira inn af lömbum og ám. Ég vona bara að það sé góð útkoma og framleiðsluaukning,“ segir Eyþór.
Hann bætir við að þessir þættir muni skýrast von bráðar þegar lokaniðurstöður komi frá sláturhúsunum, afurðauppgjöri bænda lýkur og búfjártölur haustsins skili sér.
