Miðdalur fyrirmyndarbú
Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar nautgripabænda hjá Bændasamtökum Íslands.
Í Miðdal búa Ólöf Ósk Guðmundsdóttir og Hafþór Finnbogason sem stunda mjólkurframleiðslu, sauðfjárrækt og hrossarækt. Þau hafa á undanförnum árum tekið við búrekstrinum af foreldrum Ólafar. Frá þessu greindi Sigurbjörg Ottesen, formaður deildar nautgripabænda BÍ, í ræðu sem hún flutti þegar bændunum voru færð verðlaunin á fagfundi nautgriparæktarinnar þann 22. október.
Á árinu 2012 voru meðalafurðir kúabúsins þær mestu hérlendis, eða 8.086 kílógrömm á hverja kú, og hafa Ólöf og Hafþór náð að viðhalda þeim árangri á sama tíma og þau hafa ráðist í miklar breytingar á fjósinu og sett upp mjaltaþjón. Þau hafa lagt mikla vinnu í kynbótastarf, en Sigurbjörg bendir á í ræðu sinni að það hafi sýnt sig meðal annars í því að Nautastöð BÍ keypti á síðastliðnu ári tvö kynbótanaut úr Miðdal.
Um áratugaskeið hefur leik- og grunnskólabörnum verið boðið í skipulagðar heimsóknir á búið í Miðdal. Með því vilja bændurnir efla tengsl milli borgarbúa og bænda og sýna ungum börnum að uppruni matvælanna er ekki í kælum matvöruverslana. Í ræðu sinni segir Sigurbjörg bændurna eiga miklar þakkir skildar fyrir að gefa komandi kynslóðum tækifæri til að kynnast íslenskum landbúnaði.
