Noregur er „mjaltaþjónaland“ Norðurlanda
Sjálfvirkar mjaltir halda áfram að ryðja sér til rúms á Norðurlöndum og nýjustu tölur sýna að aldrei hafa fleiri kúabændur nýtt sér mjaltaþjóna en einmitt nú. Þróunin hefur verið nær samfelld allt frá því fyrstu mjaltaþjónarnir komu á markað fyrir rúmum tuttugu árum og ekkert bendir til þess að hún sé að stöðvast. Þvert á móti virðist sjálfvirknivæðingin enn vera í fullum gangi, þótt hún birtist með mismunandi hætti eftir löndum.
Norrænt samstarf um mjólkurgæði og tækni
Á hverju ári sjá NMSM samtökin um að safna saman margs konar fróðleik um mjólkurframleiðslu Norðurlandanna en NMSM stendur fyrir Nordiske Meieriorganisasjoners Samarbeidsutvalg for Mjølkekvalitetsarbeid. NMSM er samstarfsvettvangur afurðastöðva í mjólkuriðnaði á Norðurlöndunum og er markmið samstarfsins að efla faglega þekkingu og miðla reynslu á sviði mjólkurgæða, dýraheilbrigðis, fóðrunar og mjaltatækni. Tæknihópur NMSM sér m.a. um að safna árlega upplýsingum um þróun og útbreiðslu mjaltaþjóna á Norðurlöndunum og hefur gert það allt frá því fyrstu mjaltaþjónarnir komu á markað á tíunda áratug síðustu aldar.
Nýjustu gögn NMSM sýna að í lok árs 2025 voru tæplega 7.000 kúabú með mjaltaþjóna á Norðurlöndum og yfir 12.000 mjaltaþjónar í notkun.
Norskir bændur fremstir
Í lok árs 2025 voru starfandi 3.132 mjaltaþjónabú í Noregi, með samtals 3.314 mjaltaþjóna. Engin önnur Norðurlandaþjóð kemst nálægt þessum tölum og í dag er nær helmingur allra norrænna mjaltaþjónabúa staðsettur í Noregi! Þróunin kemur þó ekki beint á óvart enda byggir norskur kúabúskapur enn að miklu leyti á tiltölulega litlum fjölskyldubúum, þar sem einn mjaltaþjónn getur breytt miklu fyrir vinnuumhverfið á viðkomandi kúabúi. Fyrir mörg þessara búa hefur mjaltaþjónninn verið leið til að halda áfram framleiðslu án þess að stækka búin verulega, öfugt við þróunina sem hefur verið á hinum Norðurlöndunum. Noregur hefur því farið nokkuð aðra leið en mörg nágrannalöndin, þar sem áherslan hefur verið á að nýta tæknina til að viðhalda dreifðri framleiðslu.
Finnar halda sínu striki
Í lok árs 2025 voru í Finnlandi 1.429 mjaltaþjónabú með samtals 2.446 mjaltaþjóna. Þótt Finnar séu langt á eftir Norðmönnum í fjölda búa eru þeir enn með mjög hátt hlutfall sjálfvirkra mjalta og hafa verið brautryðjendur á þessu sviði um árabil. Það er einnig athyglisvert að í Finnlandi eru að meðaltali fleiri en einn og hálfur þjónn á hverju mjaltaþjónabúi, sem bendir til að búin séu að jafnaði stærri en í Noregi eins og gögn undanfarinna ára hafa raunar sýnt. Í ár safnaði NMSM ekki gögnum um bústærðir svo það liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um raunverulega bústærðir.
Svíþjóð með stærri einingar
Svíþjóð fylgir fast á hæla Finna með 1.358 mjaltaþjónabú og samtals 3.058 mjaltaþjóna og þótt Svíar séu með færri bú en Finnar, eru þeir með talsvert fleiri mjaltaþjóna, enda eru að meðaltali 2,3 mjaltaþjónar á hverju sænsku búi að jafnaði. Þróunin sést einnig í öðrum tölum úr sænskum kúabúskap undanfarinna ára, þar sem búin hafa stækkað jafnt og þétt og virðast halda áfram að stækka.
Danir með stærstu mjaltaþjónabúin
Eins og fjallað var um í þessari samantekt á síðasta ári eru dönsku kúabúin langstærst á Norðurlöndum. Það endurspeglast einnig vel í mjaltaþjónatölunum því þó svo að í Danmörku hafi aðeins verið 787 mjaltaþjónabú í lok árs 2025 þá voru þau með alls 2.884 mjaltaþjóna! Að meðaltali eru því 3,7 mjaltaþjónar á hverju hinna dönsku mjaltaþjónabúa og það er langhæsta hlutfallið á Norðurlöndunum. Það rímar vel við gögn frá þarlenda skýrsluhaldinu en um síðustu áramót var meðalbúið í Danmörku með 285 árskýr, sem var stækkun um 10 árskýr frá fyrra ári! Dönsku kúabúin eru með öðrum orðum enn á fleygiferð og hafa raunar stækkað að jafnaði um 58 árskýr frá ársbyrjun 2020, en sú stækkun ein og sér er jafn stór og íslensku kúabúin eru að meðaltali!
Ísland heldur áfram að vaxa
Á Íslandi heldur þróunin áfram í sömu átt og undanfarin ár en í lok árs 2025 voru starfandi 282 mjaltaþjónabú með samtals 350 mjaltaþjóna. Árið áður voru búin 273 og mjaltaþjónarnir 339. Fjölgunin er því ekki hröð en hún er stöðug. Þegar litið er til þess hversu fá bú og fáar kýr eru á Íslandi, í samanburði við önnur Norðurlönd, er staðan hér á landi athyglisverð enda hafa sjálfvirkar mjaltir náð mjög mikilli útbreiðslu á tiltölulega stuttum tíma og stór hluti íslenskra kúabænda mjólkar nú með mjaltaþjónum. Miðað við þróun síðustu ára er líklegt að sú þróun haldi áfram, þó er hugsanlegt að markaðurinn fari smám saman að nálgast ákveðna mettun þar sem flest stærri nýleg fjós eru nú þegar búin sjálfvirkum mjaltakerfum.
Nærri 35 ára tæknibylting
Þegar horft er yfir lengri tíma er erfitt að líta á þróunina öðruvísi en sem eina stærstu tæknibyltingu sem orðið hefur í norrænum kúabúskap. Fyrstu sjálfvirku mjaltirnar í heiminum fóru fram í tilraunafjósi í Hollandi árið 1992 og á þessi tækni því 35 ára afmæli á næsta ári. Um aldamótin voru mjaltaþjónar enn tiltölulega nýleg tækni, sem margir fylgdust með úr fjarlægð, en í dag er þetta mjaltatækni sem þúsundir bænda nota. Árið 2005 voru t.d. aðeins um eitt þúsund Heimild: NMSM mjaltaþjónabú á Norðurlöndum en eru nú orðin nær sjö þúsund og mjaltaþjónarnir sjálfir orðnir meira en tólf þúsund. Þá hefur tæknin sjálf þróast hratt og úr því að vera einungis sjálfvirkar mjaltavélar yfir í að vera flókin tölvukerfi sem safna gögnum um át, virkni, jórtur, heilsufar og afurðir einstakra kúa svo dæmi sé tekið. Þá geta sumir mjaltaþjónar einnig mælt og metið gæði mjólkur sem og fylgst með einstökum efnum í mjólkinni og þannig hjálpað bændum að bæta enn frekar bústjórn sína.
Hvert stefnir?
Þótt þróunin sé ólík milli landa er eitt sameiginlegt fyrir öll Norðurlöndin og það er að sjálfvirkar mjaltir eru orðnar eðlilegur hluti mjólkurframleiðslunnar. Reyndar er ákveðinn stigsmunur á milli Norðurlandanna á því hvernig tæknin er nýtt. Í Noregi má þannig t.d. segja að hún hafi hjálpað til við að halda lífi í smærri fjölskyldubúum enda er bústærð þar enn langt innan við þá stærð sem hver mjaltaþjónn ræður við. Það má því segja að þar sé búið að offjárfesta í tækni en um leið að skapa bændum þar svigrúm til þess að halda áfram búskap þó svo að einingarnar séu í raun harla smáar. Í Danmörku hefur bústærð mjaltaþjónabúanna ekki náð að fylgja þarlendri þróun á meðalbústærð, staðreynd sem hefur skýrt komið fram á undanförnum árum þ.e. að mjaltaþjónatæknin hefur átt erfitt með að keppa við hefðbundna mjaltatækni þegar búin eru komin um og yfir 250 kýr. Þó kom nýverið fram lausn á þessu, svokallaðar lotumjaltir mjaltaþjóna (sjá nánar í 11.tbl. Bændablaðsins 2025), sem virðist vera að ná fótfestu á stærri búum. Verður því fróðlegt að fylgjast áfram með þessari þróun á komandi árum.
