Þjónusta Microsoft liggur niðri
Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið niðri. Ekki er hægt að senda ritstjórn skilaboð í gegnum tölvupóst. Enn er hægt að hafa samband í gegnum síma eða í gegnum skilaboð á samfélagsmiðlum.
Microsoft tilkynnti um vandræði sem komu upp við venjubundna viðhaldsvinnu á kerfum sínum í gærkvöldi. Dregist hefur að leysa úr þeim villum sem komu upp sem hefur leitt til þess að fjöldi fyrirtækja og einstaklinga um allan ná ekki sambandi í gegnum tölvupóst. Einnig hefur Teams ekki starfað sem skyldi. Um 430 milljónir manns um allan heim notfæra sér þjónustu Microsoft.
