„Gagnaver Google  rétt utan við bæinn Skien í Noregi, sker í sundur  landbúnaðarsvæði og skóg á landareign Lövenskjold-aðalsættarinnar. Búið er að ryðja skóg og gjörbreyta ásýnd lands, rétt utan við þéttbýlið og einn fimmti hluti af gagnaverinu var tekinn í notkun í vikunni. Það þekur tvo ferkílómetra og einkavegir merktir Google only liggja að iðnaðarsvæðinu.  Sé hin vinsæla mælieining fótboltavellir notuð, gætu þeir verið hátt á þriðja hundrað á svæði gagnaversins.“
„Gagnaver Google rétt utan við bæinn Skien í Noregi, sker í sundur landbúnaðarsvæði og skóg á landareign Lövenskjold-aðalsættarinnar. Búið er að ryðja skóg og gjörbreyta ásýnd lands, rétt utan við þéttbýlið og einn fimmti hluti af gagnaverinu var tekinn í notkun í vikunni. Það þekur tvo ferkílómetra og einkavegir merktir Google only liggja að iðnaðarsvæðinu. Sé hin vinsæla mælieining fótboltavellir notuð, gætu þeir verið hátt á þriðja hundrað á svæði gagnaversins.“
Skoðun 13. nóvember 2026

Hvað þarf Ísland mörg gagnaver?

Höfundur: Björg Eva Erlendsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir.

Fréttir af veldisvexti gagnavera og vaxandi ásókn í náttúru nágrannalanda fyrir þá starfsemi berast smám saman til Íslands. Nýlegar skýrslur í Noregi og víðar sýna að ágóðinn af gagnaverum rennur að miklu leyti til tæknirisa erlendis og störf eru fá. Sveitarstjórnir renna þó enn hýru auga til uppbyggingar og telja óþarft að setja skorður við henni, eða spyrja um innihald. Gott er að hafa í huga að eitt gagnaver getur þurft virkjun á stærð við Vaðölduvindverið og þrjú gagnaver gætu þurft heila Kárahnjúkavirkjun. Eftirspurnin virðist óendanleg og orkunni er úthlutað eftir því hver býður fyrst og hæst. Draumur Viðskiptaráðs um orkuframleiðslu alls staðar er kannski ekki eins fjarlægur og við höfum lengst af talið

Google only

Gagnaver Google rétt utan við bæinn Skien í Noregi, sker í sundur landbúnaðarsvæði og skóg á landareign Lövenskjold-aðalsættarinnar. Búið er að ryðja skóg og gjörbreyta ásýnd lands, rétt utan við þéttbýlið og einn fimmti hluti af gagnaverinu var tekinn í notkun í vikunni. Það þekur tvo ferkílómetra og einkavegir merktir Google only liggja að iðnaðarsvæðinu. Sé hin vinsæla mælieining fótboltavellir notuð, gætu þeir verið hátt á þriðja hundrað á svæði gagnaversins. Þrjú önnur gagnaver bíða afgreiðslu í Þelamerkurfylki og umsóknir um meðfylgjandi vindorkuver, sem taka enn meira pláss, bíða líka. Andstaðan við vindorkuverin er enn víðtækari og vaxandi. Talað er um að 50 til 80 vindmyllur plús vatnsafl þurfi fyrir hvert gagnaver af Google stærðinni.

Chosen by Google

Tillaga um tímabundna neyðarstöðvun á uppbyggingu gagnavera í Noregi kom fram á norska Stórþinginu og hlaut stuðning fjögurra flokka, en náði ekki í gegn. Í Noregi vilja þó allir flokkar núorðið stöðva stjórnlausa uppbyggingu gagnavera. Stór stéttarfélög bætast líka í hópinn og krefjast þess að orkusölu til nýrra gagnavera verði hætt, uppbyggingin sé farin að ryðja burt öðrum atvinnugreinum, skaða almenning, hækka orkuverð og bitna á orkuskiptum. Ríkisstjórnin vill ekki ganga svo langt en opnar á samstarf um að hægja á og setja strangari reglur. Allir flokkar telja nú að byggt sé í þágu of fárra, landnotkun sé of mikil, umhverfisáhrif víðtæk, orkunotkun gríðarleg, innihald og eignarhald óljóst og sérstök lög um gagnaver þurfi til. Sveitarstjórnir mótmæla margar inngripi, því þótt almenningur hafi áhyggjur, sjá þær fjárstreymi í kassann. Chosen by Google, auglýsti bæjarstjórn Skien, með stolti gagnvart íbúum. En áhyggjur af afleiðingunum vaxa samt með hverjum degi, enda kalla gagnaverin á orkuframleiðslu sem líkist engu sem sést hefur áður.

Gagnrýni berst seint til jákvæða Íslands

Sprenging í uppbyggingu gagnavera í heiminum hefur leitt af sér andstöðu og gagnrýnar spurningar víða um heim á síðustu mánuðum. Mótmælt er í fjölda landa, undirskriftarlistar ganga í Bandaríkjunum, og í Evrópu hefur snarhægt á uppbyggingunni, vegna neikvæðra áhrifa og vaxandi andstöðu. Fréttir af álitaefnum tengdum gagnaversiðnaðinum hafa borist furðu hægt og treglega til Íslands. Hér er enn að mestu talað um gagnaver eins og frábærar framfarir og tækifæri í hverri byggð. Í Finnlandi er hafin glæparannsókn á athæfi Google sem ruddi burt 400.000 trjám, án þess að bíða eftir leyfum. Hraðinn er mikill og stóru tæknirisarnir eru ekki nákvæmir með að fara eftir lögum og reglugerðum. Við skoðun norska vinnueftirlitsins fundust 143 brot gegn lögum og reglugerðum á uppbyggingartíma Google-gagnaversins í Skien. 

Framkvæmdir eru hafnar fyrir gagnaver Google í Skien.

Gagnaver eru allt, en hvað með okkur?

Þótt gagnaver séu nauðsyn á þriðja tug 21. aldar hlýtur einhvers staðar að þurfa að staldra við. Þótt þau geymi gervigreindina, fjármálakerfi, heilbrigðisgagnagrunna, búvísindi, geimvísindi og hernaðarkerfi, rafmyntir, samfélagsmiðla, afþreyingu, falsanir, upplýsinga- óreiðu, klám og allt okkar rafræna hliðarsjálf, er að fleiru að hyggja. Stafræna sjálfið er kannski komið fram úr líkamlegu sjálfi okkar. Gagnaver ógna lífinu með því að ógna náttúrunni í stjórnlausum vexti. Þau eru landfrekar orkusugur, mengandi stóriðja, öryggisógn í átökum, hafa ruðningsáhrif og hækka orkuverð. Gagnaver eru ekki orkuskiptin, sem stjórnmálin segjast forgangsraða, en geta þvert á móti notað alla þá orku sem annars ætti að fara í orkuskiptin, á örskömmum tíma.

Viðskiptaráð eða óráð

Nýjar skýrslur í Noregi sýna að hagnaðurinn af gagnaverum rennur að langmestu leyti úr landi til erlendra tæknirisa. Aðeins lítinn hluta þeirra 113 gagnavera sem þegar eru risin í Noregi, þyrfti til að tryggja stafrænt sjálfstæði og geymslu samfélagslega mikilvægra gagna sem hver þjóð þarf á að halda. Samt eru 116 gagnaver í orkubiðröðinni. Boðað hefur verið til opins fundar í Skien, með yfirskriftinni: „Hvað þurfum við mörg gagnaver?“ Sú spurning ómar nú víða um lönd. Og það er bara tímaspursmál, þar til Norðmenn og margar fleiri þjóðir segja STOPP á gagnaver sem vilja velja sér stað til uppbyggingar. Væri NEI nágrannalanda tækifæri fyrir Ísland? Fyrir gagnaver í hverja sveit. Er málið að virkja allt sem virkjanlegt er á Íslandi, Geysi, Dettifoss og Landmannalaugar og reisa vindorkuver á hverri fjallsbrún, eins og Viðskiptaráð leggur til? Eða er það kannski hið mesta óráð?

Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar.

Skylt efni: gagnaver

Hvað þarf Ísland mörg gagnaver?
Skoðun 13. nóvember 2026

Hvað þarf Ísland mörg gagnaver?

Fréttir af veldisvexti gagnavera og vaxandi ásókn í náttúru nágrannalanda fyrir ...

Bóndinn á landið – en hver á ábatann?
Skoðun 12. nóvember 2026

Bóndinn á landið – en hver á ábatann?

Íslensk stjórnvöld hafa sett sér metnaðarfull markmið um endurheimt votlendis. Á...

Ríkisstjórnin og landsbyggðin
Skoðun 10. nóvember 2026

Ríkisstjórnin og landsbyggðin

Undanfarna daga hefur skapast mikil umræða um málefni landsbyggðarinnar. Sameini...

Vilji einstaklings
Skoðun 6. nóvember 2026

Vilji einstaklings

Í október fékk ég einstakt tækifæri til að taka þátt í viðburði á vegum Matvæla-...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 6. nóvember 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Í framhaldi af Jarmi síðasta blaðs var forvitnilegt að heyra svör Daða Más Krist...

Árangur með öflugum landbúnaði
Skoðun 6. nóvember 2026

Árangur með öflugum landbúnaði

Þegar þessi orð eru rituð er árleg fundaferð okkar stjórnarmanna og starfsfólks ...

Íslenskir frjótæknar á Evrópuráðstefnu í Þýskalandi
Skoðun 3. nóvember 2026

Íslenskir frjótæknar á Evrópuráðstefnu í Þýskalandi

Menntun frjótækna og aðbúnaður við meðhöndlun gripa voru meðal umræðuefna á ráðs...

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu
Skoðun 2. nóvember 2026

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu

Fjárlög eru gjarnan rædd í milljörðum. Tekjur ríkissjóðs, útgjaldarammar, fjárhe...