Árangur með öflugum landbúnaði
Þegar þessi orð eru rituð er árleg fundaferð okkar stjórnarmanna og starfsfólks samtakanna í kringum landið rétt tæplega hálfnuð, en yfirskrift þeirra í ár er „Lausnin er landbúnaður“. Erfitt er að ofmeta mikilvægi Bændafundanna, því öll vinna stjórnar og starfsfólks samtakanna byggir á traustum og heiðarlegum samskiptum við félagsmenn og samningsstaða okkar er sterkari eftir fundina en fyrir þá.
Fundirnir hafa verið vel heppnaðir og mæting verið afar góð. Eins og við er að búast hafa umræður verið líflegar og málefnalegar og umræðuefnin ágætis blanda af nýju og gömlu. Það skal engan undra að það sem helst brennur á bændum er mikilvægi þess að ná góðum samningi við ríkið um starfsskilyrði í landbúnaði, samningi sem tryggir bændum sanngjarnar tekjur fyrir sína vinnu og stuðlar að fjárfestingu og nýliðun í greininni. Bændur eru hins vegar ekki að kalla eftir umbyltingu á því kerfi sem nú er við lýði.
Þegar maður ferðast um landið sér maður urmul vaxtarsprota og fjölda fólks með góðar hugmyndir og viljann til að koma þeim í framkvæmd. Starfsumhverfi bænda þarf að búa yfir hvötum til uppbyggingar, nýsköpunar og vaxtar. Það er það sem þarf.
Með því að stíga aðeins til baka og horfa á stóru myndina sést að öflugur innlendur landbúnaður er langt frá því að vera eitthvert sérhagsmunamál bænda. Á fundunum höfum við farið yfir fjölmargar stefnur og stefnuskrár hins opinbera í ótalmörgum málaflokkum og í öllum þeirra getur landbúnaður leikið lykilhlutverk til að ná markmiðum stjórnvalda. Þetta er ein leið til að kortleggja mikilvægi landbúnaðar í samfélaginu, en alls ekki sú eina.
Augljóslega skiptir landbúnaður máli í landbúnaðarstefnu og matvælastefnu ríkisins, ekki þarf öflugt ímyndunarafl til að sjá það. En stefna um líffræðilega fjölbreytni er líka háð samstarfi við bændur til að ná markmiðum um sjálfbæra landnýtingu, vernd erfðaauðlindar í bústofnum og landgræðslu og skógrækt.
Markmiðum þjóðaröryggisstefnu verður vart náð án þess að innlend matvæla- framleiðsla sé nægilega öflug og áfallaþolin. Byggðastefna og byggðaáætlun er um margt háð landbúnaði eigi markmið um sjálfbæra þróun byggðarlaga og verðmætasköpun að nást. Það sama á við um atvinnustefnu, orkustefnu og rannsókna-, mennta- og nýsköpunarstefnu.
Í heilbrigðis- og lýðheilsustefnu er fjallað um aðgengi fólks að heilnæmum matvælum, samspil heilsu fólks, dýra og umhverfis og mikilvægi minni sýklalyfjanotkunar og öruggrar matvælaframleiðslu. Ég á erfitt með að ímynda mér betri leið til að ná markmiðum stefnunnar en með því að styrkja íslenskan landbúnað, sem m.a. er í sérflokki á heimsvísu í notkun sýklalyfja.
Svona mætti áfram telja. Það skiptir nánast ekki máli hvert litið er, ef vandamál er til staðar getur landbúnaður verið lausnin, eða að minnsta kosti mikilvægur hluti af lausninni.
Þetta undirstrikar það hve mikilvægt það er að horfa á hlutina heildrænt. Samfélag og hagkerfi eru flókin fyrirbæri og öll erum við háð hvert öðru á ótal mismunandi vegu. Íslenskt samfélag reiðir sig á íslenska bóndann og þær afurðir sem hann framleiðir, og íslenskir neytendur vilja geta gengið að þessum afurðum vísum í verslunum landsins. Það er kjarninn í okkar vinnu, en alls ekki það eina sem við gerum. Með því að horfa á stóru myndina verður mikilvægi landbúnaðar ljósara.
Fundaferðin okkar heldur áfram og verða síðustu fundirnir haldnir þann 11. nóvember á Vestfjörðum, en alls verða fundirnir fjórtán talsins. Ég hef áður sagt að einn stærsti kosturinn við að fá að gegna embætti formanns Bændasamtakanna er hve mörg tækifæri maður fær til að ferðast um landið og hitta bændur og annað áhugavert fólk. Á það við nú sem aldrei fyrr. Ég hlakka til að sjá ykkur sem flest á fundunum sem fram undan eru.
Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands.
