Sýklalyfjaónæmar bakteríur í svínum
Búfjártengdur meticillín ónæmur Staphylococcus aureus (MÓSA), sýklalyfjaónæm baktería, greindist í fyrsta sinn í íslenskum svínum í fyrra. Sérfræðingar innan heilbrigðiskerfa bæði manna og dýra fylgjast náið með stöðunni. Búfjártengdur MÓSA finnst í búfénaði, aðallega í svínum en einnig í nautgripum og alífuglum og þekkist vel í Evrópu og víðar.
Bakterían fannst í fjórum nátengdum svínabúum við skipulega skimun. Bakterían getur borist á bú með mismunandi hætti. Algengt er að smit berist með fólki, en bakterían getur einnig borist með fóðri, búnaði eða hlutum sem koma inn á bú.
Vöktun í búfé og matvælum
Reglulega hefur verið skimað fyrir MÓSA í svínum hér á landi síðustu 10 ár. Í skriflegu svari Vigdísar Tryggvadóttur, sérgreinadýralæknis súna og lyfjaónæmis hjá Matvælastofnun, til blaðsins um vöktun og greiningar, segir að ekki hafi verið skimað fyrir MÓSA í alífuglum á Íslandi. „Árin 2023 og 2024 voru hins vegar tekin mjólkurtankssýni af 142 kúabúum, sem valin voru af handahófi, og þau skimuð fyrir MÓSA. Verkefnið var styrkt af Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði þáverandi matvælaráðuneytis. Öll sýnin reyndust neikvæð,“ Hingað til hafa svín verið skimuð annað hvert ár við slátrun en nú er gert ráð fyrir að skima árlega og að sýnatakan fari fram á búunum sjálfum. „Sú aðferð er talin næmari og gefur jafnframt betri mynd af stöðunni á hverju búi, þar sem þannig má draga úr áhrifum mögulegrar krossmengunar við flutning eða í sláturhús.“
„Þegar búfjártengdur MÓSA greinist á búi er ekki eingöngu fylgst með þróuninni heldur er einnig gripið til aðgerða til að draga úr hættu á frekari útbreiðslu. Á búum þar sem bakterían hefur greinst hafa verið settar takmarkanir og smitvarnir auknar. Meðal annars eru flutningar lifandi svína frá viðkomandi búum takmarkaðir, dregið úr umferð fólks og dýra milli búa og gerðar auknar kröfur um hlífðarfatnað, handhreinsun og þrif og sótthreinsun búnaðar,“ útskýrir Vigdís.
Áfall að þetta greinist hérlendis
Karl Gústaf Kristinsson er prófessor emeritus í sýklafræði við Háskóla Íslands. Hann hefur lengi rannsakað sýklalyfjaónæmar bakteríur og segir það visst áfall að búfjártengdur MÓSA hafi greinst hérlendis.
„Þetta er búið að vera vandamál í nágrannalöndum okkar og því hefur MAST verið að fylgjast með þessu. Þá voru settar reglur um að allir sem kæmu frá erlendum svínabúum til að vinna á svínabúum hér á landi þyrftu að fara í sýnatöku til að athuga hvort þeir beri þessar bakteríur, áður en þeir hefja störf. Þetta berst yfirleitt á milli svínabúa með fólki sem er að vinna á búunum. Við erum búin að vera laus við þetta alveg þar til núna 2025, en einhvern veginn hefur þetta komist inn, við vitum ekki hvernig,“ segir Karl.
Á vef MAST segir að Staphylococcus aureus sé eðlilegur hluti bakteríuflóru á húð og í nefholi hjá stórum hluta heilbrigðra manna og dýra og veldur sjaldnast sýkingu í heilbrigðum einstaklingum. MÓSA eru afbrigði bakteríunnar sem eru ónæmir fyrir meticillín og öllum β-laktam sýklalyfjum og mögulega öðrum flokkum sýklalyfja. Því getur reynst erfitt að meðhöndla sýkingar af völdum MÓSA með hefðbundnum sýklalyfjum og hefur þetta einkum verið vandamál á heilbrigðisstofnunum þar sem mikið er af fólki með veikt ónæmiskerfi og meiri líkur á að smit berist í sár.
„Þær bakteríur sem verða ónæmar fyrir meticillíni eru oft ónæmar fyrir mörgum öðrum sýklalyfjum líka og það getur verið alvarlegt. Þetta er baktería sem við höfum lifað með í gegnum aldirnar, ónæmið hefur aukist og það er í raun ekki langt síðan að þetta meticillín ónæmi varð vandamál í svínum,“ af kálfaábreiðum Tilboðið gildir 5.-20. nóv. útskýrir Karl. „Þótt það hafi verið vaxandi útbreiðsla MÓSA í mönnum á Íslandi á undanförnum árum þá hafa þær ekki verið mikið vandamál til þessa.“
Berst ekki með kjöti
„Þetta er ekki talið berast með kjötinu sjálfu heldur aðallega með snertingu manna við svínin. Þetta er því mest vandamál hjá þeim sem eru að vinna á svínabúunum og fjölskyldum þeirra. En svo getur baktería alltaf borist á milli manna,“ segir Karl. Sá sem ber bakteríuna veit ekki endilega af henni nema hann sýkist. Bakterían þolir einnig vel þurrk og þegar hún kemst út í umhverfið getur hún því einnig borist með ryki. „Nýleg rannsókn frá Danmörku frá því í desember í fyrra talar til dæmis um hvernig bakterían getur borist með vindi, þar sem vindátt hafði áhrif á smit í kringum svínabú. Maður hefur séð þetta í rannsóknum frá Þýskalandi þar sem þetta er líka útbreitt.“
Karl segir það mikilvægt að fylgjast náið með smitum í dýrum og að stefnan þurfi að vera að halda smitum eins afmörkuðum og mögulegt er. „Við getum horft til Norðurlandanna því að þróunin er komin mun lengra þar en hér. Þegar mósa-stofninn nær festu í búfjárstofni í Danmörku gerðu þeir til að mynda lítið til að takmarka útbreiðsluna, þannig að núna finnst þessi búfjárstofn í meira en 90% danskra svínabúa og á síðasta ári greindist 591 tilfelli búfjórstofna MÓSA í mönnum í Danmörku. 80% þeirra tilfella voru hjá fólki eða heimilismönnum fólks sem hafði beina snertingu við svín, en 20% tilfellanna höfðu enga snertingu við dýr og hafa þá líklega dreifst frá manni til manns eða í umhverfinu. Tilfellin voru flest á svæðum í nálægð við svínabú.“
Hvað ætlum við að gera?
„Það er áfall að fá þetta inn í landið,“ segir Karl. „En Noregur er mikilvægt dæmi í andstöðu við Danmörku. Þegar þessi búfjárstofn MÓSA kom upp í norksum svínum þá var ákveðið að reyna upprætingu með takmörkunum á flutningi dýra og meira að segja aflífun á sýktum dýrum, ítarlegum þrifum og sótthreinsun og sóttvörnum. Þetta var auðvitað mjög kostnaðarsamt og erfitt en hefur virkað og þeir náðu tökum á þessu hjá sér. Ef maður skoðar nýlegar skýrslur frá Noregi viðrðist þetta vera að ganga upp. Við stöndum því á krossgötum. Hvað ætlum við að gera? Ætlum við að reyna að hefta útbreiðsluna, ætlum við að reyna að uppræta þetta eða ætlum við að leyfa þessu að vera?“
Karl segir samtalið á milli lækna og dýralækna gott og að boðleiðir séu stuttar sem skipti sköpum. Þá er Einnar heilsu verkefnið mikilvægt sem og aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn sýklalyfjaónæmi. Vandinn sé þó að meira fjármagn vanti. „Nú hefur heilbrigðistráðuneytið lagt fjármagn í aðgerðaáætlunina en það hefur ekkert komið frá atvinnuvegaráðuneytinu né umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Samt er þetta vandamál sem viðkemur þeim öllum. Þannig að hægt sé að framfylgja skimunum og eftirliti á fullnægjandi hátt þarf meira fjármagn,“ segir Karl.
Tækifæri til að bregðast snemma við
Þegar smit koma upp er mikilvægt að reyna strax að hindra smit á milli búa, koma í veg fyrir að starfsmenn á búi þar sem er smit fari á önnur bú auk þess sem mikilvægt er að takmarka flutning dýra og efla smitvarnir. Karl segir að smitið sem hafi komið upp hérlendis sé afmarkað og þá skipti máli að bregðast við. „Það er ekki þannig að svínakjöt sé hættulegt eða svínin sjálf en nú er tækifæri til að ákveða hvað við ætlum að gera og bregðast við. Spurning er hvort það sé raunhæft að við förum sömu leið og Norðmenn og komum í veg fyrir að þetta verði landlægt, hvort við náum því. Þó að þetta verði kannski ekki jafnútbreitt og í Danmörku, enda er svínaræktin mjög stór þar, þá er þetta ekki eingöngu vandamál þeirra sem vinna á svínabúum. Eins og ég nefndi áðan, þá er slæmt að bakterían komist út í samfélagið með einhverjum hætti, sérlega ef hún kemst inn á heilbrigðisstofnanir. Þetta er ekki einkamál einstakra svæða eða búa heldur lýðheilsumál.“
MÓSA-greiningum fjölgar almennt
Í svari Sóttvarnalæknis til blaðsins um stöðu MÓSA-sýkinga segir að „búfjártengdir MÓSA-stofnar (LA-MRSA), af klónhópnum CC398, hafa greinst hjá fólki á Íslandi, en slíkar greiningar hafa þó verið fátíðar samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Í norrænni rannsókn sem birtist árið 2021 komu fram tvö tilfelli búfjártengds MÓSA hjá fólki á Íslandi á tímabilinu 2009–2016“.
Þá segir að MÓSA-greiningum hjá fólki hafi almennt fjölgað hérlendis undanfarin ár og samkvæmt nýjustu ársskýrslu sóttvarnalæknis um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi greindust 148 einstaklingar með MÓSA í fyrsta sinn árið 2025. „Þessar tölur ná hins vegar til allra MÓSA-stofna en ekki eingöngu þeirra sem tengjast búfé. Sóttvarnalæknir fær ekki upplýsingar um stofngerðir MÓSA frá rannsóknastofum sem greina MÓSA og því liggja ekki fyrir hjá sóttvarnalækni upplýsingar um hvort búfjártengdum MÓSA-stofnum hafi fjölgað hjá fólki á síðustu árum. Vonir standa til að í framtíðinni verði fleiri MÓSA-stofnar hérlendis heilgenaraðgreindir (WGS), sem myndi veita betri upplýsingar um stofngerðir þeirra og gera kleift að fylgjast nánar með útbreiðslu búfjártengdra stofna.“
Í lok svarsins er tekið fram, líkt og á vef MAST, að greining búfjártengdra MÓSA í fyrsta sinn í íslenskum svínum undirstriki mikilvægi áframhaldandi skimunar og vöktunar og samstarfs heilbrigðis- og dýraheilbrigðisyfirvalda í anda Einnar heilsu.
