Aðhaldsplan fjármálaráðherra
Leiðari 5. nóvember 2026

Aðhaldsplan fjármálaráðherra

Höfundur: Þröstur Helgason

Bændur þurfa stöðugleika eins og aðrir sem standa í rekstri. Ríkisstjórnin hefur haft tæp tvö ár til þess að ná tökum á verðbólgu og vöxtum en ekki tekist. Verðbólga stóð þó í stað í síðustu mælingu og kannski má loksins fara að búast við lækkun. Samt eru óveðursský á himni. Olíuverð fer enn hækkandi og framhaldið er óvíst eins og fram kemur í blaðinu í dag. Ákveðin stöðnunareinkenni eru líka komin fram með auknu atvinnuleysi og uppsögnum, minnkandi landsframleiðslu, samdrætti í byggingariðnaði og einkafjárfestingu. Spurningin er hvaða áhrif aðhald í ríkisfjármálum mun hafa á þetta ástand.

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hefur hóflegar áhyggjur af ástandinu. Í viðtali við Útvarp Bændablaðið segir hann ekkert benda til þess nú að íslenskt efnahagslíf stefni inn í samdráttarskeið. Hagvöxtur sé jákvæður, fjárhagsstaða heimila og fyrirtækja sterk og áfram sé veruleg fjárfesting í útflutningsatvinnuvegunum. Hann hafi mestar áhyggjur af byggingargeiranum. Hækkun olíuverðs hafi hins vegar ekki jafnslæm áhrif á íslenskt efnahagslíf og margir hafi óttast. Krónan hafi styrkst samhliða verðhækkuninni og viðskiptakjör Íslands raunar batnað þar sem verð á ýmsum útflutningsafurðum hafi einnig hækkað. „Auðvitað hef ég áhyggjur og myndi miklu frekar vilja sjá lækkandi olíuverð. Ég er bara að segja að þetta hefur ekki reynst eins vont og við óttuðumst,“ segir ráðherra.

Daði telur skilyrði fyrir lækkun verðbólgu óvanalega góð og hefur væntingar til þess að hún muni lækka tiltölulega hratt þegar líður á haustið og í upphafi næsta árs. Vonandi rætist úr, því varla verður meira lagt á heimili og fyrirtæki þessa lands í bili. Bændur standa nú í þokkabót frammi fyrir hækkandi áburðarverði eins og fram kemur í frétt á forsíðu. Vísbendingar eru um að köfnunarefnisáburður gæti hækkað um hvorki meira né minna en 25–30% og NPK-áburður um 15–20%. Slíkar verðhækkanir gætu orðið íþyngjandi fyrir búrekstur íslenskra nautgripa- og sauðfjárbænda þar sem áburðarkaup eru einn stærsti einstaki útgjaldaliðurinn, eins og segir í fréttinni.

Rétt eins og hækkandi olíuverð stafa hækkanir á áburðarverði af utanaðkomandi aðstæðum sem ríkisstjórnin fær ekki við ráðið. En hafi þessar hækkanir óæskileg áhrif á þróun verðbólgu og vaxta þá verður spurningin um áherslu ríkisstjórnarinnar á hallalaus fjárlög óneitanlega enn meira aðkallandi. Og svo það sé endurtekið þá þola heimili og fyrirtæki, þar á meðal bændur, ekki frekari hækkanir á verðbólgu og vöxtum.

Brak og brestir heyrast víða úr stjórnkerfinu þessa dagana. Utanríkisráðherra tekur slaginn fyrir framkvæmdastjóra í Flokki fólksins sem sendir forseta Frakklands arfavitlaus skilaboð á Instagram. Fjármálaráðherra svarar fyrir stjórnsýslu stjórnar Landsvirkjunar og segist raunar í blaðinu í dag bera fullt traust til hennar þó að hún hafi kostað fyrirtækið forstjórann. Forsætisráðherra situr hjá og segir fátt. Og kannski er þetta bara ys og þys út af engu. Friðurinn verður þó endanlega úti ef aðhaldsplan fjármálaráðherrans fer ekki að skila árangri í baráttu við verðbólgu og vexti á næstu vikum og mánuðum. Þolinmæðina þrýtur fyrr en varir.

Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari | olíuverð

Aðhaldsplan fjármálaráðherra
Leiðari 5. nóvember 2026

Aðhaldsplan fjármálaráðherra

Bændur þurfa stöðugleika eins og aðrir sem standa í rekstri. Ríkisstjórnin hefur...

Úrræðin eru heima á bæ
Leiðari 22. október 2026

Úrræðin eru heima á bæ

Nýsköpun í landbúnaði þarf ekki alltaf að felast í stórum tæknistökkum eða nýjum...

Bændur í lykilstöðu
Leiðari 9. október 2026

Bændur í lykilstöðu

Í umræðunni um loftslagsmál hefur oft verið litið á landbúnað fyrst og fremst se...

Pitsuostur og almannahagsmunir
Leiðari 24. september 2026

Pitsuostur og almannahagsmunir

Margt er skrýtið í kýrhausnum. Nú eru stjórnvöld enn og aftur búin að setja pits...

Bændur eiga rétt á vernd
Leiðari 10. september 2026

Bændur eiga rétt á vernd

Undanfarna mánuði hafa reglulega borist fréttir af innbrotum í bú landsins. Svín...

Hvað blasir við bændum?
Leiðari 27. ágúst 2026

Hvað blasir við bændum?

Ein af ástæðunum fyrir því að megnið af bændum ætla að segja nei á laugardaginn ...

Enn vantar upplýsingar
Leiðari 13. ágúst 2026

Enn vantar upplýsingar

Allt frá því að ríkisstjórnin boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðil...

Neytendur vilja vita hvaðan maturinn kemur
Leiðari 4. ágúst 2026

Neytendur vilja vita hvaðan maturinn kemur

Með auknum innflutningi á matvörum og sífellt flóknari matvælamarkaði hefur trau...