Úrræðin eru heima á bæ
Nýsköpun í landbúnaði þarf ekki alltaf að felast í stórum tæknistökkum eða nýjum búgreinum. Stundum felst hún einfaldlega í því að horfa öðrum augum á það sem fyrir er, nýta betur eigin auðlindir og finna leiðir til að tengja framleiðandann betur við neytandann.
Þrjár sögur í Bændablaðinu að þessu sinni eru ágætt dæmi um það.
Í Reykjahlíð á Skeiðum hafa Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Boehme valið sér skýra sérstöðu í uxaeldi. Þau leggja áherslu á heimafengið fóður, nota hvorki eitur- né varnarefni við fóðuröflun og hafa fundið leiðir til að koma kjötinu sérmerktu til neytenda. Fyrst seldu þau beint frá býli en þegar eftirspurnin jókst varð sú leið tímafrek. Nú fer salan meðal annars í gegnum Matland og Sólskinsbúðina á Flúðum.
Þarna fara saman hugmyndir um ræktun, búfjárhald og markaðssetningu. Uxarnir eru lengi úti, fá að mestu gras og hey eftir sex mánaða aldur og fyrir slátrun meðal annars heimaræktað bygg. Þótt uxarnir vaxi hægar og fallþunginn sé minni en hjá nautum segja bændurnir útiveruna hjálpa til við að halda eldiskostnaði niðri.
Í Bæjarsveit í Borgarfirði hefur Jón Björn Blöndal farið aðra leið. Þar kemur neytandinn sjálfur út á akur og sækir matinn. Sjálftínsla grænmetis, sem hófst í smærri stíl, hefur vaxið hratt. Um 300 manns skráðu sig á fimm sjálftínsluviðburði í ár og á einum þeirra voru 140 skráðir en Jón Björn áætlar að alls hafi 300 til 400 manns komið þann dag.
Hugmyndin snýst ekki aðeins um að selja grænmeti milliliðalaust. Sjálftínslan hefur orðið að fjölskylduafþreyingu og á sama tíma leið fyrir börn til að kynnast uppruna matvæla. Jón Björn sér jafnframt tækifæri í því að láta grænmetis- og kornrækt styðja hvor aðra með sáðskiptum og byggja fleiri stoðir undir búreksturinn.
Á Lýsuhóli á Snæfellsnesi birtist enn ein hlið nýsköpunarinnar. Þar hafa Jóhanna Ásgeirsdóttir og Agnar Gestsson sett 340 sólarsellur á þak reiðhallarinnar. Tilefnið var meðal annars hár rafmagnskostnaður í rekstri sem nær bæði til hrossahalds og ferðaþjónustu. Fjárfestingin er áætluð um 30 milljónir króna og gert er ráð fyrir að hún borgi sig upp á sex til sjö árum.
Sameiginlegi þráðurinn er sterkur. Á þessum þremur bæjum er ekki beðið eftir því að tækifærin komi af sjálfu sér. Þau eru búin til.
Það er kannski einmitt ein mikilvægasta auðlind íslensks landbúnaðar: úrræðagóðir bændur sem þekkja landið sitt, reksturinn og framleiðsluna og eru óhræddir við að prófa nýjar leiðir. Í því felast fjölmörg tækifæri.
Þröstur Helgason
