Stjörnuspá vikunnar
Vatnsberinn finnur hvernig skyndileg breyting mun krefjast þess að hann neyðist til að hugsa út fyrir rammann, mót venju. Í kjölfarið, svona til að hrella taugakerfi hans enn fremur, þarf hann eitthvað að endurskoða langtímamarkmið sitt. Vatnsberanum er þó ráðlagt að slaka á og vera viss um að þetta sé örugglega allt til góða. Happatölur 4, 17, 29.
Fiskarnir finna fyrir þrýstingi þegar kemur að skyndiákvörðun sem varðar húsnæði eða búsetu, þótt innsæið segi þeim að bíða um stund. Þetta gefur þeim upplagt tilefni til að setja skýr mörk gagnvart fólki sem tekur meira en það gefur – eitthvað sem þeir ættu einmitt að æfa. Rólegur göngutúr í myrkri mun hreinsa hugann. Happatölur 8, 14, 33.
Hrúturinn finnur hvernig nú er rétti tíminn til að losa um gamlar skuldbindingar sem skila engu nema kvíða og vinna í kjölfarið að einhverju sem mun skila árangri á næstu vikum. Gott trikk er að leyfa öðrum að taka sviðsljósið á meðan unnið er í kyrrþey. Happatölur 2, 19, 41.
Nautið má eiga von á einhvers konar truflun sem verður til þess að það veit ekkert hvað það á sér fyrir hendur að taka. Núnú, í stað þess að gremjast skal nú nýta frelsið til að gera eitthvað sem tengist engu öðru en eigin sköpunargáfu. Best er að taka fram að matur og tónlist gegna lykilhlutverki til að koma sér í stuð. Happatölur 6, 21, 35.
Tvíburar finna, sér til undrunar, að samskipti geta verið stirð ef þeir reyna að útskýra allt í smáatriðum. Þeim er ráðlagt að leyfa hlutunum að eiga sinn gang og taka ekki allar athugasemdir of nærri sér. Til viðbótar er þeim ráðlagt að einbeita sér að einu krefjandi verkefni í senn, í stað þess að dreifa orkunni á tíu mismunandi staði. Jafnvel þó tvíburinn sé með orku á við fimm. Happatölur 5, 12, 27.
Krabbinn má gleðjast yfir því að undanfarið hrærist í honum tilfinningalegur stöðugleiki innan frá en ekki vegna ytri aðstæðna. Gamlar minningar og tilfinningar sækja að honum og hann ætti að leyfa sér að vera eins viðkvæmur og opinn og honum best lætur. Krabbanum er í kjölfarið bent á að gott er að nýta þessar stundir til að loka kafla sem hefur verið opinn of lengi. Happatölur 3, 16, 38.
Ljónið þarf að finna hvernig nú skiptir máli að hlusta af alvöru áður en svarað er því í ljós mun koma lítill sigur á bak við tjöldin sem gefur ljóninu meiri frið í sálina en nokkur almenn viðurkenning. Lagfæra svo heimilið því heimilið er hjarta og rót vellíðunar. Þá mun ljóninu líða vel. Happatölur 7, 22, 44.
Meyjan þarf nú að leyfa óvissunni að njóta vafans í stutta stund og þá munu koma í ljós lausnir sem annars hefðu farið forgörðum. Ferskt loft gerir meyjunni gott, göngutúrar, sundferðir, að sitja við eld, allt sem viðkemur frumkröftunum lofti, jörð, eldi eða vatni. Happatölur 9, 18, 30.
Vogin þarf að finna jafnvægið aftur, en hún er eitthvað að ganga út af brautinni. Hvaða braut sem það nú er. Líklegast er best að vera trú hjarta sínu og sjálfri sér og sækja aðstoð óhrædd um að aðfinnslur fylgi ekki í kjölfarið. Vogin má vita að það er í lagi að standa fast á því sem hún þarfnast án þess að útskýra það fyrir öllum öðrum. Happatölur 11, 23, 40.
Sporðdrekinn hefur beðið spenntur eftir einhverju sem hann taldi dramatískt, en honum til nokkurs ama er dramatíkin minni en hann hefði kosið. Best er að láta sem ekkert sé, sýna yfirvegun og nota staðreyndir þessa máls til að taka næsta skref. Nú er skammt í tíma óvæntra athafna og slík vitneskja kveikir auðvitað í sporðdrekanum sem getur aftur farið að bíða spenntur. Happatölur 1, 15, 32.
Bogmaðurinn má eiga von á því að öll plön muni nú tefjast á einhvern hátt. Þó má ekki örvænta, því tíminn sem gefst í staðinn nýtist í raun betur í að endurhlaða batteríin og bogmaðurinn má sannarlega njóta augnabliksins eins og það er um þessar mundir. Hér er um örlítið logn á undan stormi að ræða. Happatölur 10, 25, 46.
Steingeitin þarf að muna að taka vel undir allt þakklæti sem henni berst, án þess að afgreiða það sem sjálfsagðan hlut. Hún þarf að vera duglegri við að deila ábyrgð með öðrum í kringum sig og hefja upp raust sína ef henni þykir aðstandendur latir við verkin. Ekkert mjög hátt, en láta í sér heyra þannig að skiljist. Happatölur 13, 26, 39.
