Jarmað, hneggjað, baulað ...
Í framhaldi af Jarmi síðasta blaðs var forvitnilegt að heyra svör Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra, í Útvarpi Bændablaðsins við spurningum um stöðu RÚV á auglýsinamarkaði.
Daði sagði þar alveg skýrum orðum að það væri skynsamlegt að RÚV færi af auglýsingamarkaði. Hann bendir réttilega á að það þurfi ýmsar ákvarðanir að taka um heildarumsvif fjölmiðilsins ef þetta skref verði stigið. „Ef þú ætlar að kippa undan einni tekjustoðinni þá þarftu alla vega að taka afstöðu til þess hvaða afleiðingar þú ætlar að láta það hafa.“
Hér í blaðinu hefur einmitt verið bent á að það þurfi að endurskilgreina hlutverk RÚV á íslenskum fjölmiðlamarkaði um leið og það er tekið af auglýsingamarkaði.
Í raun er fyrir löngu kominn tími til að hefja slíka endurskoðun á hlutverki RÚV. Eins og staðan er núna nær almannamiðillinn ekki að sinna meginhlutverkum sínum með nægilega markvissum hætti. Of mikið púður fer í að sinna hlutum sem einkamiðlarnir hafa bæði áhuga á og getu til að sinna.
Endurskoðun á hlutverki RÚV myndi tvímælalaust styrkja almannamiðilinn en ekki veikja eins og ráðherra fjölmiðla virðist halda. Það lýsir litlum skilningi á starfsemi RÚV.
Daði Már segist aftur á móti fagna umræðunni um endurskoðun á starfsemi RÚV. Hann segir hana vera að hefjast og þar á hann vonandi við að hún sé að hefjast innan ríkisstjórnarinnar. Annars staðar eru hún fyrir löngu hafin.
Lengi hefur verið beðið eftir því að fram komi fjölmiðlaráðherra eða ríkisstjórn sem hefur hugrekki til þess að taka á stöðu RÚV á auglýsingamarkaði og starfsskilyrðum einkamiðla. Ríkið þarf auðvitað sjálft að taka ábyrgð á fjármögnun miðils síns. Ekki er ásættanlegt að því sé haldið fram að eitthvað annað gildi um ríkisútvörp í Evrópu almennt því svo er einfaldlega ekki.
Ríkisútvörp þróast og breytast eins og aðrir miðlar. Þau aðlaga sig að því umhverfi sem þau starfa í í hverju landi. Þetta er ekki hættulegt heldur eðlilegt. Starfsemi RÚV þarf að aðlaga að breyttu umhverfi.
Daði Már segir skattlagningu auglýsinga á samfélagsmiðlum hafa reynst erfiðari en talið var. Það hafi reynst erfiðara að innheimta slíka skatta en að setja reglurnar. Hann segist þó reiðubúinn til þess að skoða betur þær leiðir sem farnar hafa verið annars staðar til að skattleggja staðbundnar auglýsingar alþjóðlegra samfélagsmiðla.
Bændablaðið spurðist fyrir hjá breska tollinum sem svaraði því til að skattlagning auglýsinga á erlendum samfélagsmiðlum hafi þvert á móti reynst afar árangursrík. Skatturinn hefur skilað hækkandi tekjum allt frá því hann var settur á 2021. Frá 1. apríl 2025 til 31. mars á þessu ári hafi hann skilað 944 milljónum punda, eða 154 milljörðum króna. Það munar líklega um það í rekstri breska ríkisins. Meira um það síðar.
Sem stendur fer um helmingur auglýsingatekna á Íslandi til erlendra samfélagsmiðla. Í raun er það alveg augljóst að skattleggja verði þessar tekjur sem streyma úr landi í síauknum mæli án þess að ríkið hafi gripið til nokkurra ráðstafana. Sú staða er óþolandi.
