Vilji einstaklings
Skoðun 6. nóvember 2026

Vilji einstaklings

Höfundur: Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir

Í október fékk ég einstakt tækifæri til að taka þátt í viðburði á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm, þar sem hundrað konur víðs vegar að úr heiminum voru heiðraðar fyrir fjölbreytt framlag sitt til landbúnaðar og byggðaþróunar.

FAO er stofnun sem leikur mikilvægt hlutverk við alþjóðlega stefnumótun, fæðuöryggi og leiðir umræður um framtíð landbúnaðar. Það er áhrifamikið að upplifa að stofnun sem þessi haldi svo stóran viðburð þar sem áhersla er lögð á að heiðra konur sem hafa jafnvel þrátt fyrir takmörkuð úrræði haft gríðarleg áhrif á nærumhverfi sitt.

Sérstök áhersla var lögð á sögu og ævistarf Yin Yuzhen, konu frá Innri-Mongólíu í Kína, sem var kynnt sem sú hundraðasta í hópnum og sýnd stuttmynd um störf hennar.

Yin var aðeins 19 ára árið 1985 þegar hún var, vegna fátæktar fjölskyldu sinnar, gift manni á afskekktu svæði í Mu Us-eyðimörkinni í norðurhluta Kína. Þar blöstu við henni erfið lífsskilyrði, sandstormar og mikil einangrun. Heimili hennar var eins og hellir sem var að hluta grafinn niður í eyðimörkinni og oft liðu margar vikur á milli þess sem þau hjónin hittu annað fólk.

Í stað þess að sætta sig við aðstæðurnar ákvað hún að reyna að breyta þeim. Árið 1986 seldi hún kind sem þau áttu og keypti 600 litlar trjáplöntur sem hún gróðursetti í kringum heimili sitt. Tilraunin gekk illa og það lifðu einungis af um 10 plöntur. En Yin hélt ótrauð áfram.

Á næstu áratugum helgaði hún tíma sinn því að græða upp land í nærumhverfi sínu. Með eiginmanni sínum vann hún við gróðursetningu við erfiðar aðstæður og skref fyrir skref lærði hún hvaða aðferðir skiluðu árangri. Hún áttaði sig í gegnum endurteknar tilraunir á því hvernig væri best að græða upp sandinn og ná að rækta upp gras og lággróður til að undirbúa jarðveginn fyrir trjáplönturnar. Einnig byggði hún áveitukerfi til að byggja upp ræktunarland til landbúnaðar á uppgræddum svæðum. Í dag leggur hún áherslu á fjölbreytt lífríki trjáa og plantna til að viðhalda líffræðilegri fjölbreytni og sjálfbærni uppgræðslusvæðisins.

Það sem byrjaði sem tilraun til að bæta aðstæður í kringum hennar eigið heimili varð að umfangsmiklu uppgræðslustarfi. Samkvæmt FAO hafa nú verið gróðursett yfir átta milljónir trjáa og nærri 5.000 hektarar lands endurheimtir vegna starfs hennar. Áhrifin ná þó lengra en það. Starfið hefur skapað ný tækifæri til ræktunar og landbúnaðar og hafa fleiri hundruð fjölskyldur tekið upp uppgræðslu að hennar fyrirmynd, m.a. til að styrkja stoðir landbúnaðar og matvælaframleiðslu á svæðinu.

Saga Yin Yuzhen fangar sérstaklega vel þann boðskap sem lá að baki viðburðinum í Róm. Saga hennar undirstrikar hvernig einstaklingar geta með frumkvæði sínu haft áhrif á lífsgæði og afkomu nærsamfélagsins.

Þótt áskoranir landbúnaðar og matvælaframleiðslu séu ólíkar og geti verið mjög krefjandi þá minnir saga hennar á að langvarandi breytingar geta hafist með vilja eins einstaklings til að bæta nærumhverfi sitt.

Höfundur er eigandi Sólskins grænmeti á Flúðum.

Skylt efni: Vinkill

Vilji einstaklings
Skoðun 6. nóvember 2026

Vilji einstaklings

Í október fékk ég einstakt tækifæri til að taka þátt í viðburði á vegum Matvæla-...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 6. nóvember 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Í framhaldi af Jarmi síðasta blaðs var forvitnilegt að heyra svör Daða Más Krist...

Árangur með öflugum landbúnaði
Skoðun 6. nóvember 2026

Árangur með öflugum landbúnaði

Þegar þessi orð eru rituð er árleg fundaferð okkar stjórnarmanna og starfsfólks ...

Íslenskir frjótæknar á Evrópuráðstefnu í Þýskalandi
Skoðun 3. nóvember 2026

Íslenskir frjótæknar á Evrópuráðstefnu í Þýskalandi

Menntun frjótækna og aðbúnaður við meðhöndlun gripa voru meðal umræðuefna á ráðs...

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu
Skoðun 2. nóvember 2026

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu

Fjárlög eru gjarnan rædd í milljörðum. Tekjur ríkissjóðs, útgjaldarammar, fjárhe...

Aldarafmæli Huppu á Kluftum  á Flúðum 3. nóvember 2026
Skoðun 2. nóvember 2026

Aldarafmæli Huppu á Kluftum á Flúðum 3. nóvember 2026

Þegar þekktar persónur eiga stórafmæli er því stundum fagnað á einhvern hátt. Hu...

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt
Skoðun 2. nóvember 2026

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt

Það er vart hægt að finna stjórnmálamann á Íslandi sem er ósammála því að einfal...

Ósýnilegt friðartákn
Skoðun 2. nóvember 2026

Ósýnilegt friðartákn

Friðarsúlan í Viðey, útilistaverk Yoko Uno til heiðurs minningu eiginmanns henna...