Íslandsstrendur eru mjög auðugar af klóþangi
Íslandsstrendur eru mjög auðugar af klóþangi
Mynd / Aðsend
Fréttir 23. nóvember 2026

Áburðarafurðir úr klóþangi

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Nýlega var verkefni sett af stað hjá Matís sem gengur út á að fullvinna klóþang til framleiðslu á hágæða lífrænt vottuðum áburðarafurðum.

Anna Þóra Hrólfsdóttir.

Verkefnið heitir Fullvinnsla umhverfisvottaðra áburðarafurða úr sjávarþörungum og er samstarfsverkefni Matís, ISEA og Landbúnaðarháskóla Íslands.

Ekki hefðbundinn áburður

Anna Þóra Hrólfsdóttir stýrir verkefninu af hálfu Matís og útskýrir að ekki sé um hefðbundinn áburð að ræða sem verið sé að kanna framleiðslu á, heldur það sem kallað hefur verið plöntulíförvar (e. biostimulant).

„Mestallur áburður og plöntu líf örvar sem notaðir eru í íslenskum land búnaði eru innfluttir, sem er vissulega um hugsunarefni með tilliti til fæðuöryggis. Áburðarvörur úr stór þörungum innihalda ýmis efni, þar á meðal fjölsykrur, fjölfenól, plöntu hormón og snefilefni. Ólíkt hefðbundnum áburði innihalda plöntu líförvar ekki endilega mikið magn af hefðbundnu áburðarefnunum, heldur hjálpa þeir plöntum að nýta þau næringarefni og það vatn sem þegar eru til staðar í jarðveginum á skilvirkari hátt. Plöntulíförvar styðja því helst við heilsu plantna með því að bæta viðnámsþrótt og næringarupptöku með því meðal annars að örva rótarvöxt og geta einnig aukið uppskerumagn eða bætt uppskerugæði. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á að plöntulíförvar stuðli að bættri jarðvegsheilsu,“ segir Anna Þóra.

Nokkrar frumgerðir þróaðar

Nokkrar frumgerðir plöntulíförva úr klóþangi verða þróaðar og framleiðsluferlar bestaðir hjá ISEA. „Í verkefninu mun efnainnihald frumgerðanna vera könnuð. Gæta þarf þess að þungmálmar og önnur aðskotaefni séu undir viðmiðunarmörkum samkvæmt reglugerðum um plöntulíförva, þar á meðal kadmíum, kvikasilfur, blý, ólífrænt arsen ásamt fleiri efnum,“ segir Anna Þóra.

Einnig verða kannaðir möguleikar á uppskölun á framleiðsluferlinu, en gert er ráð fyrir að þessar rannsóknir muni leiða til mikilvægra upplýsinga og þekkingar um gæði og virkni áburðarafurða úr klóþangi fyrir íslenskan landbúnað.

„Plöntulíförvar úr stórþörungum geta verið nýttir í garðyrkju, akuryrkju og túnrækt. Mesta áherslan hefur þó verið á nýtingu þeirra í garðyrkju og akuryrkju. Einnig er misjafnt hvaða plöntulíförvar henta hverri plöntu þar sem efnainnihald þeirra er breytilegt eftir því úr hvaða hráefni og þörungategund þeir eru framleiddir. Landbúnaðarháskóli Íslands mun prófa virkni frumgerðanna í gróðurhúsatilraunum og meta áhrif á vöxt, uppskeru og jarðveg,“ segir Anna Þóra enn fremur.

Meira en milljón tonna

Að sögn Önnu Þóru eru áburðarafurðir úr stórþörungum nú þegar á markaði, bæði úr klóþangi og ýmsum öðrum stórþörungategundum svo sem marinkjarna og beltisþara sem gefið hafa góða raun.

Verkefnið er styrkt af Matvælasjóði og byggir á niðurstöðum fyrra samstarfsverkefnis Matís og ISEA, sem fjallaði um þróun vinnsluferils til fullnýtingar á klóþangi úr Breiðafirði. Þar voru meðal annars verðmæt innihaldsefni rannsökuð úr hratinu sem fellur til við framleiðslu á plöntulíförva úr klóþangi, sem mögulega er hægt að nýta í fæðubótarefni eða matvæli.

Með þessum rannsóknum sé stuðlað að bættri nýtingu á íslenskum sjávarþörungum, styrkingu innlendrar virðiskeðju og þróun sjálfbærra landbúnaðarlausna hérlendis. Verkefnið sé tiltölulega nýbyrjað en muni standa yfir allt næsta ár.

Spurð um magn klóþangs við strendur Íslands segir hún að það sé mikið. „Sérstaklega mikið er af klóþangi í Breiðafirði. Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar hafa sýnt fram á að magnið sé rúmlega ein milljón tonna, aðeins í Breiðafirði. Svo eru aðrar þörungategundir sem vaxa víðs vegar um landið. En í Breiðafirði eru einmitt staðsett tvö fyrirtæki, ISEA og Þörungaverksmiðjan, sem stunda sjálfbæra nýtingu á klóþangi,“ segir Anna Þóra.

Skylt efni: rannsóknir | nýsköpun | kloþang

Áburðarafurðir úr klóþangi
Fréttir 23. nóvember 2026

Áburðarafurðir úr klóþangi

Nýlega var verkefni sett af stað hjá Matís sem gengur út á að fullvinna klóþang ...

Landbúnaður hluti af lausninni
Fréttir 23. nóvember 2026

Landbúnaður hluti af lausninni

Ísland mun ekki ná settum markmiðum um samdrátt í losun fyrir 2030. „Við þurfum ...

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...