Í stöðumatsskýrslu Loftslagsráðs er ekki talið mögulegt að Ísland nái markmiðum sínum um samdrátt í losun árið 2030.
Í stöðumatsskýrslu Loftslagsráðs er ekki talið mögulegt að Ísland nái markmiðum sínum um samdrátt í losun árið 2030.
Mynd / smh
Fréttir 23. nóvember 2026

Markmið nást ekki um samdrátt árið 2030

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Öðrum markmiðum hægt að ná með stórauknum metnaði

Í greinargerð með útgáfu fyrstu stöðumatsskýrslu Loftslagsráðs, sem nýlega kom út, segir að ljóst sé að horfur í loftslagsmálum á heimsvísu séu grafalvarlegar. Áhrif loftslagsbreytinga séu þegar orðin mikil og skaði af völdum þeirra muni ágerast á komandi árum.

Loftslagsráð er sjálfstætt starfandi ráð sem hefur það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald með faglegri ráðgjöf um loftslagsmál. Í skýrslunni er ekki talið mögulegt að Ísland nái markmiðum sínum um samdrátt í losun árið 2030. Bent er á að engu að síður þurfi að minnka losun eins mikið og unnt sé, því annars séu líkur á að Íslendingar þurfi að greiða umtalsverðar fjárhæðir vegna kaupa á losunarheimildum.

Raunhæft að ná markmiðum 2035

Samdráttur í heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi mældist 3,9% á milli áranna 2024 og 2025, sem er langt frá markmiðum stjórnvalda sé tekið mið af framtíðarhorfum. Landsákvarðað framlag Íslands til ársins 2030, til rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, gerir ráð fyrir 41% samdrætti í flokki samfélagslosunar árið 2030 miðað við losun 2005. Í þeim flokki er meðal annars talin losun frá vegasamgöngum, orkuvinnslu, sjávarútvegi, landbúnaði og úrgangi. Miðað við framtíðarhorfur náum við einungis um 21% samdrætti í þessum flokki fyrir Ísland.

Aðrir losunarflokkar í losunarbókhaldinu fyrir Ísland eru landnotkunarflokkurinn og ETS-flokkurinn (losun vegna staðbundins iðnaðar, sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir). Þessir flokkar eru undanskildir í landsákvörðuðu framlagi Íslands til 2030.

Losun úr landnotkunarflokknum er þó langmest í losunarbókhaldinu, með um 58% af 10,6 milljón tonna heildarlosun af koltvísýringsígildum.

Haustið 2025 setti Ísland fram annað og sjálfstætt landsákvarðað framlag sem nær til ársins 2035, með markmið um 50-55% samdrátt í samfélagslosun ársins 2035 miðað við 2005, ásamt markmiði um 400–500 þúsund tonna koltvísýringsígilda samdrátt í landnotkunarflokknum árið 2035 miðað við 2025.

Loftslagsráð telur hins vegar raunhæft fyrir Ísland að ná markmiðum sínum um samdrátt í losun fyrir árið 2035 og markmiðum um kolefnishlutleysi fyrir 2040. Ísland hefur frá árinu 2021 haft lögfest markmið um kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040. Kolefnishlutleysi telst vera náð þegar losun kolefnis er ekki meiri en sem nemur bindingu þess. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hins vegar haldið því fram í viðtali við Spegilinn á Rás 1 að hann efaðist um að þetta markmið myndi nást og væri yfir höfuð raunhæft. Það er þó eitt af aðalmarkmiðum í nýju frumvarpi ráðherra til heildarlaga um loftlagsmál.

Loftslagsráð telur að til að hægt verði að ná þessum markmiðum þurfi að stórauka metnað og ákefð loftslagsaðgerða, auka samhæfingu innan samfélagsins og bæta framkvæmd aðgerða.

Möguleikar í landbúnaði til samdráttar

Um landbúnað sérstaklega segir í skýrslunni að í losunarbókhaldinu fyrir Ísland sé ekki gert ráð fyrir miklum samdrætti á komandi áratugum.

Það sé þrátt fyrir að sérstakar aðgerðir í landbúnaði sé að finna í aðgerðaáætlun, eins og til dæmis áætlanir um loftslagsvænni landbúnað og loftslagsvænna styrkjaumhverfi, sé einungis gert ráð fyrir að losun dragist saman um 18 þúsund tonn fyrir 2030 frá því sem nú er. Spyrja megi hvort ekki sé hægt að grípa til árangursríkari aðgerða í víðtæku samráði við hagaðila. Skoða mætti samspil breyttra neysluhátta og losunar frá landbúnaði. Í Danmörku hafi til að mynda verið horft til breyttra neysluhátta í samvinnu við bændur, þar sem aukin áhersla á grænmetisræktun og grænmetisneyslu sem geti leitt bæði til bættrar lýðheilsu og minni losunar. Spyrja þurfi hvort ástæða sé til að leggja í svipaða vinnu hér á landi.

Þá eru nefndir möguleikar auðgandi landbúnaðar, sem jafnvel bindi meira kolefni en hann losar. Einnig geti leiðir til minni losunar legið í skilvirkari notkun tilbúins áburðar og bættri meðhöndlun á mykju, sem hafi valdið um 12% af losun frá landbúnaði árið 2024.

Hugsanlegt sé því að draga úr losun frá landbúnaði um 100 þúsund tonn koltvísýringsígilda fyrir 2035 og bæta hag bænda ef sjónum sé beint skipulega að þeim fjölþættu möguleikum sem hér eru fyrir hendi.

Ekki nægilega metnaðarfull markmið

Hvað landnýtingarflokkinn varðar telur Loftslagsráð að til þess að minnka heildarlosun þar skipti miklu máli hvernig til tekst við aðgerðir. Mikilvægt er að stjórnvöld stuðli að aukinni bindingu kolefnis og samdrætti í losun með náttúrumiðuðum lausnum. Aukin skógrækt og endurheimt þurrlendis og votlendis séu slíkar lausnir. Ráðið telur að tölusett markmið séu ekki nægilega metnaðarfull í þessum flokki, sem eigi að endurspegla mesta mögulega metnað stjórnvalda.

Í skýrslunni segir að stærsti losunarþáttur frá landi – og einnig stærsti hlutinn af heildarlosun Íslands – sé af framræstu votlendi. Endurheimt votlendis sé ein árangursríkasta loftslagsaðgerð sem Íslendingar geti ráðist í. Jafnframt sé endurheimt votlendis einhver mikilvægasta aðgerð sem Íslendingar geti gripið til í þágu aukinnar líffræðilegrar fjölbreytni, í samræmi við nýlega stefnumörkun Íslands í þeim efnum.

Þar segir enn fremur að þrátt fyrir sett markmið gangi illa að ná árangri. Verkefnið sé þó skýrt og lengd skurðanna fyrirliggjandi. Flestir þeirra liggi á löndum sem ekki eru lengur í notkun til jarðræktar eða beitar. Hægt væri að kortleggja verkið, hólfa það niður í smærri einingar og ná umtalsverðum árangri, skref fyrir skref. Einfalda þurfi ferli endurheimtar, einnig leyfisveitingar og efla samráð ríkis, sveitarfélaga og annarra jarðeigenda.

Jafnframt mætti skapa áhrifameiri efnahagslega hvata til endurheimtar. Loftslagsráð hafi í skýrslu sinni Gildi votlendis og mikilvægi endurheimtar, sem kom út á þessu ári, hvatt til þjóðarátaks um endurheimt votlendis, sem svipi til átaksverkefna fyrri ára í landgræðslu og skógrækt. Hægt sé að byggja á árangrinum úr þeim verkefnum og verklagi nú þegar sú mikilvæga áskorun blasi við sem varðar endurreisn landsins gæða.

Styrkur til nýtingar þurrkaðrar fiskeldismykju sem áburðar
Fréttir 23. nóvember 2026

Styrkur til nýtingar þurrkaðrar fiskeldismykju sem áburðar

Verkefnið Þurrkuð fiskeldismykja sem áburður hefur hlotið 15 milljóna króna styr...

Stuðningur við bændur hæstur á Íslandi
Fréttir 23. nóvember 2026

Stuðningur við bændur hæstur á Íslandi

Landbúnaðargeirinn í heild sinni stendur frammi fyrir tíðari áföllum sem eru alþ...

Markmið nást ekki um samdrátt árið 2030
Fréttir 23. nóvember 2026

Markmið nást ekki um samdrátt árið 2030

Í greinargerð með útgáfu fyrstu stöðumatsskýrslu Loftslagsráðs, sem nýlega kom ú...

Áburðarafurðir úr klóþangi
Fréttir 23. nóvember 2026

Áburðarafurðir úr klóþangi

Nýlega var verkefni sett af stað hjá Matís sem gengur út á að fullvinna klóþang ...

Landbúnaður hluti af lausninni
Fréttir 23. nóvember 2026

Landbúnaður hluti af lausninni

Ísland mun ekki ná settum markmiðum um samdrátt í losun fyrir 2030. „Við þurfum ...

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f