Innbrot í eldisbú alvarleg þróun
Fréttaskýring 14. ágúst 2026

Innbrot í eldisbú alvarleg þróun

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Brotist hefur verið inn í þrjú eldisbú síðan í maí; svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi, Reykjabúið, hænsna- og kalkúnabú í Mosfellsbæ og nú síðast í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal. Innbrotin hafa reynst skaðleg búskap og haft alvarlegar afleiðingar fyrir dýr og nærumhverfi.

Innbrotin þrjú eru keimlík, framin að næturlagi og til þess gerð að hleypa dýrunum út úr búrum og húsum og skemmdarverk eru unnin á innbúi. Maðurinn sem braust inn í Reykjabúið sést á upptöku úr eftirlitsmyndavélum búsins opna allar dyr út á hlað og reyna að bera og reka fugla út. Hann virtist hafa verið einn að verki. Umfang innbrotsins í svínabú Stjörnugríss bendir til þess að þar hafi fleiri verið að verki en mikil skemmdarverk voru unnin á skrifstofuaðstöðu og svínahúsum. Verknaðurinn í Dalsbúi bendir líka til þess að fleiri en einn hafi verið að verki þar sem 7.000 búr voru opnuð á stuttum tíma.

Rannsakað sem innbrot

Bændur hafa verið uggandi vegna innbrotanna. Bændasamtökin fordæma verknaðinn og taka honum alvarlega. „Þróunin og innbrot á þessi bú er mjög alvarlegt mál og hryggilegt í öllum skilningi þess orðs. Í öllum þessum tilfellum hefur verið ráðist að lögmætum atvinnurekstri en í tilviki Dalbúsins eru afleiðingarnar gríðarlegar þar sem altjón blasir við. Við styðjum okkar félagsmann heilshugar, til þess eru Bændasamtökin og það er hlutverk okkar, og það er brýnt að málið verði rannsakað til hlítar og tekið föstum tökum af hálfu yfirvalda,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna.

Engar haldbærar vísbendingar fundust eftir innbrotið í Dalsbú að sögn Ásgeirs Péturssonar, bóndans á Dalsbúi. „Þeir skildu ekkert eftir, lögreglan fór að rannsaka hvort það væru einhver lífsýni en það er ómöguleg leit í húsi þar sem 10.000 dýr eru búin að hlaupa um öll gólf.“ Málið er í rannsókn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og er rannsakað sem eignarspjöll og innbrot. Enginn er í haldi vegna innbrotsins og ekkert nýtt er að frétta af málinu sem stendur að sögn lögreglu. Innbrotin þrjú eru rannsökuð sem stök mál þar til annað kemur í ljós.

Dýr dóu, slösuðust og voru aflífuð

Dýr dóu, slösuðust eða voru aflífuð eftir innbrotin á öllum búunum. Dýr sem fara út af eldisbúum geta ekki farið inn aftur vegna smitvarna og þurfa því að vera aflífuð. Í innbrotinu á Stjörnugrís drápust tíu smágrísir og þurfti að aflífa dýr vegna kjálkabrots. Einnig urðu fósturlát vegna streitu. Mörg dýr drápust og voru aflífuð eftir innbrotið í Dalsbú en Ásgeir reiknar með að það séu á milli þrjú til fjögur hundruð dauðir minkar enn sem komið er. Margir minkarnir eru einnig slasaðir.

„Þetta er ekki gott fyrir dýrin,“ segir Ásgeir. „Nú eru dýr saman í búri sem þekkjast ekki og það er streituvaldandi, þá verða þau árásargjörn og ráðast að hvert öðru með því að bíta í eyru, feld og skott.“ Vinna er við dýrin alla daga en þörf er á úrræði vegna þeirra minka sem eru slasaðir. „Núna erum við ekki nein varabúr fyrir slösuð dýr. Ein lausn væri að einhver af þeim búum á Suðurlandi sem eru hætt loðdýrarekstri mættu taka við dýrum frá okkur til að létta á hér á meðan við greiðum úr málunum,“ segir Ásgeir og bendir á að Dalsbú eigi flutningsbúr sem væri hægt að nota en það ráðist af því hvort búin fengju leyfi frá MAST. „Annars þurfum við að aflífa öll þau dýr sem slasast eða eru með ólæti.“

Ekki í hag dýraverndar

Innbrotin þrjú virðast hafa verið framin undir formerkjum dýraverndar en bréf voru skilin eftir í fyrri tilvikunum tveimur sem gáfu slíkt til kynna. Engin skilaboð voru skilin eftir á minkabúinu en innbrotið svipar mjög til þeirra sem þekkjast bæði í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar í Evrópu þar sem aðgerðahópar gegn loðdýrarækt fara inn á bú til að opna öll búr og hurðir með það að markmiði að frelsa dýrin. Slíkar aðgerðir þekkjast allt frá áttunda áratugnum en hafa ekki tíðkast hérlendis.

Fjölmörg samtök hafa gagnrýnt verknaðinn. Matvælastofnun hefur bent á að svona aðferðir valdi fjölda dýra aukaþjáningum og dauða og að lausir minkar geti haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir villt fuglalíf og vistkerfi. Bændasamtökin hafa gagnrýnt innbrotin og bent á að búin sem hafi verið ráðist inn á hafi verið vel rekin og fylgt ströngum reglugerðum. Félög tengd dýravernd og -velferð hafa einnig gagnrýnt innbrotin, bæði vegna þeirrar hættu sem þau hafa skapað dýrunum sjálfum og nærumhverfi og vegna skaðlegra áhrifa innbrotanna á málstað dýraverndar.

„Dýraverndarsambandið vill árétta að hafi verið um að ræða aðgerð í nafni dýravelferðar skaðar slíkt aðeins málstað dýra. Sambandið styður ekki slíka nálgun,“ segir í yfirlýsingu frá Dýraverndunarsambandi Íslands sem gagnrýndi atburðinn í Mosfellsdal. Samtök um dýravelferð á Íslandi sendu einnig frá sér yfirlýsingu sem gagnrýndu aðgerðirnar en lögðu áherslu á að loðdýrahald ætti að leggja niður og banna á Íslandi.

Ágeng tegund er áhætta

Mikil umræða hefur verið um loðdýrahald eftir innbrotið og þeirri áhættu sem það felur í sér að halda ágengri tegund. Loðdýrarækt er ekki heimil innan sveitarfélagsins Norðurþings eftir að nýtt Aðalskipulag 2025–2045 tók gildi 9. júní 2026. Stefnumörkunin tók mið af þeim þáttum að starfsemin getur haft sérstök umhverfis- og skipulagsáhrif, meðal annars vegna dýravelferðar og hættu á að dýr sleppi úr haldi. Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, segir að við vinnslu Aðalskipulagsins bárust hvorki athugasemdir vegna þessa ákvæðis né var sérstök umræða um málið í nefndum sveitarfélagsins. Lengi hefur verið lögð áhersla á verndun fuglalífs í Norðurþingi en lausaganga katta hefur verið óheimil innan þéttbýla Norðurþings í rúman áratug.

Samtök um dýravelferð á Íslandi hafa hvatt önnur sveitarfélög til að fylgja í fótspor Norðurþings og banna með öllu loðdýrarækt.

Eftir umfjöllum Kveiks um loðdýrarækt í mars sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra að ekki væri útilokað að Ísland færi sömu leið og Evrópulönd sem hafa lagt af loðdýrahald. Í viðtali við fréttastofu Rúv nú í ágúst sagði hún að engin áform væru um slíkt. Í svari frá ráðuneytinu kemur fram að: „atvinnuvegaráðherra hyggst leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um velferð dýra nr. 55/2013 á komandi löggjafarþingi. Ekki liggur fyrir hvort fyrirhugaðar breytingar muni snúa að starfsemi loðdýraræktar sérstaklega.“

Framtíðin ræðst af reglugerðum

Ásgeir segir að framtíð Dalsbús ráðist af því hvort hann fái leyfi til að flytja inn minka frá Noregi til ræktunar næsta vor. Vegna innbrotsins er ekki hægt að þekkja skyldleikann innan búsins og þarf að fá nýja högna inn til að forðast órækt.

„Ræktunarstarf og velferð dýranna er farin fyrir bí ef ekki verður gripið til einhverra aðgerða,“ segir Margrét Ágústa. „Ef ekki tekst að halda ræktuninni áfram blasir við sú staðreynd að búgreinin leggist af hér á landi. Það væri mjög alvarleg niðurstaða og ekki síst þegar litið er til þess að lögmæt atvinnustarfsemi myndi leggjast niður vegna ólögmætra aðgerða af hálfu ofstækissinna. Hvaða fordæmi gæfi slíkt til framtíðar litið? Bara út af því einu saman er augljóst að stjórnvöld þurfi ekki eingöngu að koma að málinu með afgerandi hætti heldur ber þeim beinlínis skylda til þess.“

Skylt efni: minkabú | innbrot

Innbrot í eldisbú alvarleg þróun
Fréttaskýring 14. ágúst 2026

Innbrot í eldisbú alvarleg þróun

Brotist hefur verið inn í þrjú eldisbú síðan í maí; svínabú Stjörnugríss í Brimn...

Vindmyllur ekki reistar í roki
Fréttaskýring 5. ágúst 2026

Vindmyllur ekki reistar í roki

Um þessar mundir eru mikil umsvif við byggingu vindmylla í Vaðölduveri handan Bú...

Finnskum búum fækkað úr 120.000 í 40.000 eftir ESB-aðild
Fréttaskýring 4. ágúst 2026

Finnskum búum fækkað úr 120.000 í 40.000 eftir ESB-aðild

Finnskur landbúnaður hefur verið talsvert til umræðu hér á landi að undanförnu í...

Gullgerðarlist í öllum sveitum
Fréttaskýring 29. júní 2026

Gullgerðarlist í öllum sveitum

Segja má að bændur um land allt stundi gullgerðarlist og umbreyti úrgangi úr búr...

Fjármagna næsta uppbyggingaráfanga Laxeyjar
Fréttaskýring 25. júní 2026

Fjármagna næsta uppbyggingaráfanga Laxeyjar

Nýverið lauk 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði hjá fiskeldisfyrirtækinu Laxey....

Neikvæð áhrif sauðfjárbeitar mögulega ofmetin
Fréttaskýring 11. júní 2026

Neikvæð áhrif sauðfjárbeitar mögulega ofmetin

Landnám plantna hefur aukist samkvæmt rannsóknum sem unnar hafa verið á gróðurþe...

Ómögulegt að koma algjörlega í veg fyrir strok
Fréttaskýring 2. júní 2026

Ómögulegt að koma algjörlega í veg fyrir strok

Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri hjá fiskeldisdeild Matvælastofnunar (MAST)...

Erfið samkeppnisstaða  íslenskra kartöflubænda
Fréttaskýring 1. júní 2026

Erfið samkeppnisstaða íslenskra kartöflubænda

Mikið magn óseldra íslenskra kartaflna liggur undir skemmdum í geymslum kartöflu...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f