Langvarandi tjón á síðasta minkabúi landsins
Dalsbú í Mosfellsdal er síðasta minkabú landsins. Aðfaranótt 29. júlí var brotist inn á búið og dýrum hleypt út úr búrum svo mörg þúsund minkar léku lausum hala.
Mikill viðbúnaður var í sveitinni til að koma í veg fyrir að dýrin kæmust út fyrir öryggisgirðingu búsins og í nærumhverfið. Lögregla vann að aðgerðunum ásamt Matvælastofnun, sveitarfélaginu, starfsmönnum Dalsbús og minkaskyttum.
Áfall fyrir minka og menn
Ásgeir Pétursson, eigandi Dalsbús og eini minkabóndinn á Íslandi, lærði loðdýrarækt í Noregi og hefur unnið við búgreinina í áratugi. Hann segir atburðinn hafa verið mikið áfall fyrir sig jafnt sem dýrin. „Það eru enn einhver dýranna að deyja eftir innbrotið, úr streitu eða vegna áverka eftir allan hamaganginn,“ segir Ásgeir. Þó tekist hafi að ná miklum fjölda dýra er enn ekki ljóst hversu margir minkar komust út í umhverfið. „Við komum mörgum aftur inn í búr en það voru líka mörg dýr sem dóu eða þurfti að aflífa. Bæði voru unghögnar sem við fundum dauða á gólfinu, eflaust úr hjartastoppi, og svo voru minkaskytturnar hér á fullu,“ segir Ásgeir, en þau dýr sem sluppu út fyrir öryggisgirðingar geta ekki komið aftur inn á búið vegna smitvarna. „Við erum núna með fimm fiskikör af dauðum mink, við erum ekki búnir að telja en það eru líklegast þrjú til fjögur hundruð dýr.“
Innbrotið vel skipulagt
Ásgeir hefur ekki lent í innbroti áður en segir að allt frá því að hann var í námi 1970 hafi aðrir loðdýrabændur varað hann við að svona gæti gerst. „Þetta var greinilega vel skipulagt,“ segir Ásgeir. „Þetta voru fagmenn sem unnu hratt. Þeir koma ofan að efsta húsinu og spenna upp fjögurra metra bílskúrshurð og hefjast svo handa. Þeir voru örugglega tveir á hverjum gangi, það eru þrjú hundurð búr hvorum megin við ganginn og hvert einasta var opnað, líklegast opnuð alltaf tvö í einu.“ Ásgeir metur að þetta hafi tekið tiltölulega stuttan tíma og hver gangur hafi tekið um fimmtán til tuttugu mínútur. „Þetta er hundrað metra langt hús og þarna eru 2500 búr. Hvert einasta var opnað og þau skilin eftir opin. Þeir vissu hvað þeir voru að gera.“ Öllum minkum var sleppt úr fjórum húsum. „Þeir fara ekki í neðsta húsið sem er ekki nema 500 metrum frá húsinu þar sem starfsmaður býr og þeir hafa ekki viljað vekja hann. Minkum var heldur ekki sleppt úr neðri hlið næstneðsta hússins en allt annað opnuðu þeir.“
„Hér voru 10.000 minkar á gólfunum og það var mikið verk,“ segir Ásgeir. Hann er þakklátur þeim sem komu og veittu honum aðstoð en bændur frá suðurlandi sem eru hættir loðdýrarækt komu honum til aðstoðar sem og fjölmargir nágrannar og kunningjar.
Tjón til framtíðar
Ásgeir segir tjónið mikið og margþætt. Við innbrotið voru unnar skemmdir á hurðum hússins og einhverjum innanstokksmunum. Búið var að brjóta háfa sem notaðir eru til að fanga mink og rífa net þeirra. Fjárhagslegt tjón hlýst mest af þeim mink sem hefur þurft að aflífa, hefur týnst eða skaddast eftir innbrotið. Tjónið sem Ásgeir segir að sé alvarlegast, og sé í raun altjón, er að stofninn er nú orðinn óþekktur. „Dýrin eru öll óþekkt, þau eru ekki með ættartölur lengur og eru ekki merkt. Við þekkjum þau bara af lit og svo þekkjum við gömlu dýrin en við eigum til dæmis erfitt með að átta okkur á því hvar geldu læðurnar eru innan um hin dýrin.“ Ásgeir útskýrir að þetta sé alvarlegt fyrir ræktunina. „Við getum ekki gengið að dýrunum sem við ættum annars að para næsta vor, við vitum ekki hvaða dýr eru systkini eða mæðgin og við viljum ekki rækta saman dýr með náin tengsl. Það hefur langvarandi afleiðingar að þekkja ekki skyldleikann á búinu.“
Í höndum yfirvalda
Mikil vinna er enn fyrir höndum en Ásgeir segir að næstu skref ráðist af ákvörðunum yfirvalda. „Við höldum áfram að hugsa um dýrin en næsta skref er að fá að vita hvort Bændasamtökin og atvinnuvegaráðuneytið komi sér saman um að banna loðdýrarækt, leggja búgreinina af og farga öllu frá mínu búi, eða hvort ráðuneytið og MAST leyfi mér að flytja inn ný dýr frá Noregi til að halda áfram að rækta stofninn næsta vor.“ Þá yrðu högnarnir á Dalsbúi aflífaðir og parað yrði við nýja högna erlendis frá. Ásgeir segist ekki vita hvenær ráðuneytið taki ákvörðun um málið en vill vera bjartsýnn þar sem loðdýraræktin er enn sem komið er bæði viðurkennd búgrein og atvinnugrein.
