Vísnahornið
Líf og starf 12. ágúst 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Stuðst fram á stafinn heitir þetta kvæði Rósbergs G. Snædal:

Hvíli eg fót við feyskinn staf

finnst ei bót á högum.

Margir hljóta undir af 

eigin spjótalögum.

Heimsins tál og haldlaus rök

hafa brjálað sinni.

Heyri eg váleg vængjablök

víða í nálægðinni.

Þannig fer, ef boðinn ber

bát á sker og kletta:

Næstur hver er sjálfum sér.

Svona er nú þetta.

Þetta erindi er úr ljóði Rósbergs G. í Tjarnarskarði og á nú vel við:

Sefgrænir bakkar, silfurgáruð tjörn,

sundfuglakvak og mosabrúnar skriður.

Valllendisgrundir, steinbyrgi og börn.

Búsmali í hlíðum, foss og lækjaniður.

Egill Jónasson frá Húsavík kom á byggingarstað, hitti þar arkitekt og bauð honum góðan dag, en sá heyrði ekki kveðju Egils:

Enga fékk ég undirtekt,

á því mína skoðun byggði,

að arkitekt með eftirtekt

sé afar sjaldgæft fyrirbrigði.

Þegar Ásgeir Jónsson frá Gottorp, hinn kunni hestamaður, varð áttræður sendi Egill Jónasson honum þessa:

Minnast vil ég merkisdags,

mæni á þínar slóðir,

þó ég hafi ei hóf né fax

hneggja ég til þín bróðir.

Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka orti þegar hann sá pilt frá Keldulandi á dansgólfi með unga stúlku í fangi:

Gleði veldur, lund fær létt,

lifnar heldur grínið.

Hryssu geldri á harðasprett

hleypir Keldusvínið.

Fyrir löngu síðan orti Hjörleifur, þegar dróst hjá einhverju pari að setja upp hringana. En pilturinn sagðist ekki geta keypt hringa fyrr en hann hefði selt folald:

Hef ég ekki úr huganum

hrundið neinum vafa,

fyrr er þau á fingrunum f

olaldsverðið hafa.

Jakop Jóhannesson var sagður húnvetnskur en var búsettur í Ólafsvík. Hann orti um hómópata sem Sigurjón hét og mun Jakop litla trú hafa haft á lækningunum:

Fer um landið eins og örn

aðstyðjandi tjóni

síljúgandi Sigurbjörn,

siðspillandi dóni.

Ekki þorði Jakop að hafa þessa útgáfu uppi við hvern sem var og breytti henni til öryggis:

Fer um land og færir vörn

fyrir grandi og tjóni,

sílæknandi Sigurbjörn

siðelskandi á Fróni.

Í Þingeyskum ljóðum frá 1940 má finna þessa vísu Indriða Þórkelssonar á Fjalli:

Sé til lengdar barnlaus bær

breyskjast hjartarætur.

Þungt ef vantar þann sem hlær,

þyngra hinn er grætur.

Umsjón: Magnús Halldórsson mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Réttalistinn 2026
Líf og starf 2. september 2026

Réttalistinn 2026

Bændablaðið hefur síðustu ár tekið saman réttalista og birtast hér dagsetningar ...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 31. ágúst 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni sem birtist í 15. tölublaði Bændablaðsins.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 27. ágúst 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan þarf að muna að enginn mannlegur einstaklingur er gallalaus. Hvorki hún s...

Vaðmál og voðir
Líf og starf 26. ágúst 2026

Vaðmál og voðir

Bör Börsson, söguhetja samnefndrar skáldsögu sem flutt var í Ríkisútvarpinu árin...

Þeir skora sem þora!
Líf og starf 25. ágúst 2026

Þeir skora sem þora!

Hart var barist fram á síðasta spil og úrslit tvísýn í viðureign Vestra gegn Kjö...

Teflt erlendis
Líf og starf 25. ágúst 2026

Teflt erlendis

Íslendingar hafa verið iðnir við að tefla erlendis í sumar eins og venjan er. Þó...

Hvað er svona merkilegt  við íslensku ullina?
Hannyrðahornið 24. ágúst 2026

Hvað er svona merkilegt við íslensku ullina?

Landnámsmenn sem fóru þarna forðum frá Skotlandi, Noregi og víðar og héldu í nor...

Vísnahornið
Líf og starf 24. ágúst 2026

Vísnahornið

Stera-Pétur læknir fékk sitt auknefni vegna ummæla er féllu, varðandi notkun kra...