Skagaprjónspeysa
Íslensk textílsaga á mikið að þakka frumkvöðlum sem mótuðu listsköpun úr innlendu hráefni. Á meðal þeirra fremstu var prjónahönnuðurinn Astrid Ellingsen, fædd árið 1927, en verk hennar áttu stóran þátt í að breyta sýn fólks á íslensku lopapeysuna á síðustu áratugum tuttugustu aldar. Hún lést árið 2006, en eftir hana liggur ríkulegur hönnunararfur sem lifir enn góðu lífi meðal nýrra kynslóða þeirra sem stunda prjónaskap. Mynstrin má meðal annars kaupa á netinu á vefsíðunni www.lopidesign.is.
Astrid bjó yfir meðfæddri sköpunargáfu og einstakri næmni á handverki en á blómatíma ullarverksmiðjunnar Álafoss varð hún einn afkastamesti hönnuður landsins og hlaut hönnun hennar mikla og verðskuldaða athygli. Til viðbótar við Álafoss hannaði Astrid einnig fyrir aðrar innlendar verksmiðjur á borð við Skagaprjón hf. sem stofnað var á Akranesi árið 1970.
Hér bjóðum við lesendum upp á skemmtilega uppskrift að Skagaprjónspeysu, handverki sem birtist í Heimilistímanum árið 1976 og merkt Astrid Ellingsen. Þökkum Ernu Svölu Ragnarsdóttur, dóttur Astridar, góðfúslegt leyfi til þessarar birtingar.

Stærðir:
LS - LM - LL/MS - MM - ML
(Lítil-, meðal- og stór kvenstærð / lítil-, meðal- og stór karlastærð)
Efni: Lopi. Hringprjónar, 40 og 70 cm langir, nr. 3K og nr. 5.
Prjónafesta: 14 1 og 16 umf með prjónum nr. 5: 10x10 cm. Breytið um stærð á prjónum, ef með þarf til þess að ná réttri prjónafestu.
| LS | LM | LL/MS | MM | ML | |
| Lopi: | |||||
| Hvítt (51) | 500 gr | 500 gr | 600 gr | 600 gr | 600 gr |
| Mórautt (53) | 200 gr | 200 gr | 300 gr | 300 gr | 300 gr |
| Sauðsvart (52) | 200 gr | 200 gr | 200 gr | 200 gr | 200 gr |
Bolur: Fitjið upp á prjóna nr. 3½ með hvítum lopa og tengið saman í hring.
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 128 l | 138 l | 148 l | 158 l | 168 l |
Prjónið brugðningu 1 sl, 1 br.
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 6 cm | 6 cm | 7 cm | 8 cm | 8 cm |
Skiptið um á grófu prjónana og aukið 12 l, jafnt yfir 1. umferð í
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 140 l | 150 l | 160 l | 170 l | 180 l |
Byrjið að prjóna munstur og prjónið eftir teikningu, þar til bolurinn mælist
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 62 cm | 65 cm | 68 cm | 71 cm | 74 cm |
eða óskuð lengd er fengin, mæld frá öxl. Endið á samskeytum.
Setjið
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 30 l | 31 l | 32 l | 33 l | 34 l |
á þráð f. öxl. Setjið næstu
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 20 l | 22 l | 24 l | 26 l | 28 l |
á ermaprjóninn nr. 3½.
Setjið þá aftur á þráð f. hina öxlina
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 40 l | 44 l | 48 l | 52 l | 56 l |
og næstu á ermaprjóninn.
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 30 l | 31 l | 32 l | 33 l | 34 l |
Að síðustu eru
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 20 l | 22 l | 24 l | 26 l | 28 l |
settar á þráð f. öxl.
Prjónið nú kragann með þeim lykkjum, sem á prjóninum eru, í hring með hvítu, 1 sl, 1 br, þar til kraginn mælist
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 12 cm | 12 cm | 13 cm | 14 cm | 14 cm |
Fellið þá af í brugðningu.
Lykkið saman axlimar með hvítu.
Ermar: Fitjið upp með hvítu á prjóna nr. 3½
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 32 l | 34 l | 36 l | 38 l | 40 l |
og prjónið brugðningu 1 sl, 1 br.
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 6 cm | 6 cm | 7 cm | 8 cm | 8 cm |
Ekki er ástæða til að tengja saman, fyrr en eftir brugðninguna, ef þröngt er á prjóninum. Er þá brugðningin saumuð saman á eftir. Skiptið um prjóna og aukið jafnt út í 1 umf, í
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 40 l | 40 l | 50 l | 50 l | 60 l |
Byrjið á munstrinu. Merkið 1. 1 í umf. og aukið út í 1 1 sitt hvoru megin við hana í 8. hverri umferð 5 sinnum
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 50 l | 50 l | 60 l | 60 l | 70 l |
Prjónið, þar til ermin mælist
| LS | LM | LL/MS | MM | ML |
| 51 cm | 52 cm | 53 cm | 54 cm | 55 cm |
Hættið þá að prjóna munstrið, en prjónið fram og aftur með hvítu, 5 umf garðaprjón. Fellið laust af.
Mælið eftir breidd ermarinnar að ofan, hversu langt ermaopið þarf að vera. Saumið í vél 2 sauma niður að merkinu og klippið á milli þeirra. Saumið ermarnar í þannig, að garða- prjónskanturinn hylji sárið á röngunni. Saumið ermarnar í frá réttunni með þvi að taka 1 spor innan við vélsauminn á bolnum og 1 spor innan við garðaprjónskantinn á erminni. Snúið peysunni við og saumið garðaprjónskantinn laust niður á röngunni. Gangið frá öllum lausum endum og pressið peysuna að undanskildum brugðningunum.
Prjónauppskrift: Astrid Ellingsen
