Frá athafnasvæði Laxeyjar í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum. Í ár er gert ráð fyrir að framleiðslan á slægðum laxi verði um 4.000 tonn, en þegar uppbyggingu verður lokið áætlar fyrirtækið að hægt verði að framleiða 35 þúsund tonn af laxi á ári. Fyrir þriðja áfanga af sex hefur fengist fjármagn upp á 38 milljarða króna.
Frá athafnasvæði Laxeyjar í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum. Í ár er gert ráð fyrir að framleiðslan á slægðum laxi verði um 4.000 tonn, en þegar uppbyggingu verður lokið áætlar fyrirtækið að hægt verði að framleiða 35 þúsund tonn af laxi á ári. Fyrir þriðja áfanga af sex hefur fengist fjármagn upp á 38 milljarða króna.
Mynd / Laxey
Fréttaskýring 25. júní 2026

Fjármagna næsta uppbyggingaráfanga Laxeyjar

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Nýverið lauk 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði hjá fiskeldisfyrirtækinu Laxey. Jafnframt hefur félagið tryggt sér 32 milljarða króna alþjóðlegt sambankalán.

Í samtali segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxeyjar, að hlutafjáraukningin núna sé sú þriðja frá stofnun, en þær hafa átt sér stað samhliða hverjum áfanga við uppbyggingu starfseminnar. Félagið var formlega stofnað árið 2021 og uppbyggingu þess skipt í sex áfanga. „Við vildum ekki gera þetta allt í einu, heldur brjóta þetta upp til þess að sanna fyrir mönnum að þetta gengi,“ segir Lárus.

„Það sem er merkilegt við þessa hlutafjáraukningu er að við teljum að þetta verði í síðasta sinn sem við þurfum að fjármagna uppbyggingu fyrirtækisins með auknu hlutafé. Hér eftir verður fyrirtækið sjálfbært af því leyti að það geti með hagnaði af rekstri og lánsfjármagni byggt það sem eftir stendur til þess að koma okkur upp í 35 þúsund tonna framleiðslu af slægðum laxi þegar uppbyggingu verður lokið,“ segir Lárus.

Gert er ráð fyrir að Laxey framleiði um 4.000 tonn af laxi á árinu 2026, en þegar þriðji áfangi verður tekinn í notkun verður framleiðslugetan komin upp í 17 þúsund tonn á ári. Núna er verið að leggja lokahönd á annan áfanga sem getur tekið við fyrstu seiðunum í haust.

Þrjár erlendar lánastofnanir „Megnið af þeim hlutum sem voru seldir fóru til núverandi eigenda, en þessi stuðningur þeirra við félagið sýnir að við erum á réttri braut.“ Nýr hluthafalisti verður birtur þegar allt verður frágengið, en stærstu eigendur Laxeyjar í dag eru Ós-fjölskyldan í Vestmannaeyjum sem á um fjörutíu prósenta hlut. Aðrir eigendur eru meðal annars lífeyrissjóðir og erlendir fjárfestar.

„Til viðbótar höfum við fengið sambankalán fjögurra banka, það er frá Arion banka sem hefur lánað okkur áður og frá þremur erlendum lánastofnunum. Þar á meðal frá hollenska bankanum Radobank, sem er einn stærsti bankinn sem fjármagnar matvælaframleiðslu. Jafnframt tekur Eksfin þátt, sem er norskur ábyrgðarsjóður, og norski bankinn DNB.“

Lárus segir að algengt sé að fleiri en einn banki slái sér saman til þess að fjármagna dýr verkefni eins og Laxey til þess að dreifa áhættunni milli banka. Lánið sem Laxey fær hljómar upp á 220 milljónir evra, eða tæplega 32 milljarða íslenskra króna. Fjármagnið sem hefur fengist í þriðja áfanga með hlutafé og láni eru því rúmlega 38 milljarðar króna.

Seiðaeldi á tveimur stöðum

„Við erum byrjuð að undirbúa framkvæmdir við þriðja áfanga sem eru átta tankar með öllum tæknibúnaði sem þarf. Þeir fara í notkun á næsta ári og árið 2028 verðum við þá komin upp í framleiðslugetu upp á 17 þúsund tonn á ári. Ferlið frá því að við tökum inn hrogn og fram að slátrun tekur tvö ár. Í júlíbyrjun tökum við inn hrogn sem fara í nýju tankana næsta sumar og eru til slátrunar í júlí 2028. Samhliða þessu höfum við fjármagnað byggingu nýrrar seiðaframleiðslustöðvar sem verður við hliðina á matfiskeldinu í Viðlagafjöru.“

Nú þegar er Laxey með seiðaeldisstöð í Friðarhöfn, en Lárus segir ekki svigrúm til að stækka starfsemina þar. Meira rými verður í kringum nýju seiðaeldisstöðina sem mun hafa afkastagetu upp á fimm milljón seiði á ári til að byrja með. Í hönnun hennar er gert ráð fyrir að hægt sé að stækka hana þannig að afköstin verði allt að 15 milljón seiði á ári. Laxey þjónustar fyrirtæki í sjókvíaeldi með svokölluð stórseiði sem eru 500 grömm við afhendingu.

Landeldi ein mesta fjárfesting Íslandssögunnar

„Við teljum þetta vera mikinn áfanga fyrir okkur og uppbyggingu á öðru landeldi á Íslandi. Við vonumst til þess að þetta auðveldi fjármögnun á öðrum verkefnum sem eru í uppbyggingu, bæði hvað varðar aðgengi að lánsfjármagni og hlutafé. Í þessum fjórum verkefnum sem eru í gangi núna eru gríðarlega miklar fjárfestingar, en samanlagt verður þetta ein mesta fjárfesting af einkaaðilum í sögu Íslands,“ segir Lárus.

Í fréttatilkynningu frá Laxey segir að eftirspurn eftir hlutum í útboðinu hafi verið verulega umfram framboð. Upphaflega var stefnt að því að sækja 5,8 milljarða króna í nýtt hlutafé, en eins og áður segir fengust 6,7 milljarðar. Með þessu hafi Laxey aflað um 29 milljarða króna í hlutafé frá stofnun og þar með byggt upp traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Gert er ráð fyrir að fjármögnuninni verði lokið í september. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 starfsmenn.

Skylt efni: Laxey

Fjármagna næsta uppbyggingaráfanga Laxeyjar
Fréttaskýring 25. júní 2026

Fjármagna næsta uppbyggingaráfanga Laxeyjar

Nýverið lauk 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði hjá fiskeldisfyrirtækinu Laxey....

Neikvæð áhrif sauðfjárbeitar mögulega ofmetin
Fréttaskýring 11. júní 2026

Neikvæð áhrif sauðfjárbeitar mögulega ofmetin

Landnám plantna hefur aukist samkvæmt rannsóknum sem unnar hafa verið á gróðurþe...

Ómögulegt að koma algjörlega í veg fyrir strok
Fréttaskýring 2. júní 2026

Ómögulegt að koma algjörlega í veg fyrir strok

Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri hjá fiskeldisdeild Matvælastofnunar (MAST)...

Erfið samkeppnisstaða  íslenskra kartöflubænda
Fréttaskýring 1. júní 2026

Erfið samkeppnisstaða íslenskra kartöflubænda

Mikið magn óseldra íslenskra kartaflna liggur undir skemmdum í geymslum kartöflu...

Leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum umdeilt
Fréttaskýring 27. maí 2026

Leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum umdeilt

Matvælastofnun (MAST) hefur veitt lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skil...

Alvarleg staða í túngrasatilraunum
Fréttaskýring 27. maí 2026

Alvarleg staða í túngrasatilraunum

Undanfarin ár hafa talsverð umsvif verið í kornræktartilraunum í gegnum verkefni...

Heildstætt söfnunarkerfi fyrir dýraleifar
Fréttaskýring 15. maí 2026

Heildstætt söfnunarkerfi fyrir dýraleifar

Stjórnvöld ætla að setja upp heildstætt söfnunarkerfi fyrir dýraleifar sem mun n...

Varað við innflutningi á vinnuvélum án CE-merkinga
Fréttaskýring 14. maí 2026

Varað við innflutningi á vinnuvélum án CE-merkinga

Að undanförnu hefur Vinnueftirlitið varað sérstaklega við innflutningi á vinnuvé...