Stjörnuspá vikunnar
Vatnsberinn þarf að skoða skuldbindingar sínar og þau mál sem varða skuldbindingar hans við aðra. Hann þarf að vera hreinskilinn við sjálfan sig þegar kemur að því að setja mörk og muna að það er ekki veikleiki að taka ekki að sér meira en hann getur borið. Nú er upplagt að æfa sig í að treysta á innsæið. Það mun nefninlega reynast rétt, vatnsberanum að óvörum. Happatölur: 11, 20, 35
Fiskarnir finna skyndilega að nánustu sambönd eru í einhvers konar brennidepli og krefjast þess að opnað sé fyrir gagnkvæma virðingu. Fiskarnir þurfa að mæta öðrum á miðri leið þó þeim sé það ekki ljúft og finna lausnir sem henta öllum. Gæta þess þó að týna ekki eigin þörfum í tilraunum til að þóknast umhverfinu. Hlusta svo vel á ráðleggingar sem koma frá sér eldra fólki. Happatölur: 13, 22, 34
Hrúturinn upplifir næstu dagana að þurfa að finna jafnvægi á milli kyrrðar og virkni. Óöryggi og óvissa hefur þjakað hann og því best að draga sig aðeins í hlé, skipuleggja næstu skref í hljóði en fylgjast þó vel með öllum smáatriðum. Óvænt tækifæri skjóta upp kollinum og einhvern veginn vilija stjörnurnar meina að hrúturinn verði að taka sérstaklega vel eftir því sem gerist á sunnudegi um miðjan mánuð. Happatölur: 5, 14, 23
Nautið finnur fyrir því að samskipti við fólk í þess nánasta umhverfi krefjast meiri sveigjanleika en venjulega. Það neyðist til að slaka á þrjóskunni og hlusta í staðinn á ólík sjónarhorn áður en það myndar sér endanlega skoðun á viðkvæmu máli. Lítil breyting á daglegu skipulagi mun létta nautinu lífið til muna og því ráðlagt að hætta að hjakka í gamla farinu. Prófa og tileinka sér eitthvað nýtt. Happatölur: 9, 18, 27
Tvíburarnir munu njóta góðs af því að hlúa að heimilinu um þessar mundir og losa sig við gamla muni sem þjóna ekki tilgangi. Að sama skapi er tiltekt í nánasta umhverfi til góðs og þá er mælt með að tvíburinn losi sig við eitthvað af já-manneskjunum í kringum sig. Þó skal halda öllum persónulegum málum prívat í bili. Að lokum er rétt að minna á að góður nætursvefn mun gerbreyta orkunni þinni á næstunni.Happatölur: 2, 11, 30
Krabbinn fær óvæntar upplýsingar sem leggjast þungt á hann, en þá er gott að minnast þess að það eina í veröldinni sem er hægt að treysta á eru sífelldar breytingar. Því er algerlega ónauðsynlegt að leggjast í nokkurt þunglyndi, en heldur er gott að gefa sér tíma til að sinna líkamlegri heilsu og hvíla hugann. Þetta endar hvort sem er allt á rólegum og góðum nótum. Happatölur: 6, 15, 24
Ljónið þarf að hafa í huga að hversdagsleg verkefni krefjast nákvæmni og þolinmæði þessa dagana. Nú er kjörinn tími til að fara yfir pappíra, reikninga eða önnur hagnýt mál sem hafa setið á hakanum enda ætti ljónið að einbeita sér að því að greiða úr öllu því sem hefur flækt líf hans síðastliðin misseri. Þetta er heilmikil flækja enda ljónið þekkt fyrir að veita sjálfu sér þann munað að „gera þetta bara seinna“. Það virkar ekki. Happatölur 8, 17, 26
Meyjan finnur fyrir þörf til að endurskipuleggja forgangsröðun sína í lífinu. Með það í huga ætti hún að sleppa takinu á öllu því sem gefur henni ekkert til baka, skyldum, fólki, hvaðeina. Þegar því er lokið verður skýrari sýn á þá tíma sem fram undan eru. Einnig þarf meyjan að vera dugleg að huga að heilsunni, liðamótunum sérstaklega sem eru talin haldast í hendur við skýra hugsun. Happatölur: 4, 13, 31
Vogin finnur að tíminn vinnur með henni og tjáning af öllu tagi veltir þungum steini. Þungum steinum reyndar. Leyndarmál eða gamalt mál þarf að ræða en kemur í ljós að málið er mun léttvægara en vogin hefur talið. Að tjá sig og tala um hlutina er æfing sem ætti að framkvæma reglulega, enda gerir hún kraftaverk fyrir sálina. Happatölur 1, 12, 29
Sporðdrekinn mun upplifa óþarflega mikið annríki þegar hópar og sameiginleg verkefni krefjast athygli sem hann á alls ekki innistæðu fyrir. Að óvörum mun hann þó sjá hag sinn í því að vinna náið með öðrum að sameiginlegu markmiði. Ef allir aðilar halda sér við efnið gengur þetta fljótt yfir. Happatölur 3, 19, 28
Bogmaðurinn finnur hvernig allar mögulega skyldur verða meira áberandi núna. Hann neyðist til að sýna faglega framkomu og gæta þess að fylgja reglum í hvívetna. Á hinn bóginn er þetta góður tími til að sýna ábyrgð og áreiðanleika í verki, því eftir því verður tekið og bogmanninum mun hugnast fyrir. Lykilatriðið hérna er að taka einn hlut fyrir í einu og muna að anda. Happatölur 7, 16, 25
Steingeitin finnur að það gerir henni gott að lyfta sér upp úr hversdagsleikanum á einhvern hátt. Allur kvíði eða óþarfa hugrenningar skal forðast og farsælast að muna að einungis 4% af öllu því sem plagar mann þarf maður virkilega að hafa áhyggjur af. Steingeitin ætti frekar að anda djúpt og brosa svo út í sólskinið – þessa fáu geisla sem sýna sig. Happatölur: 10, 21, 32
