Birkir Þór
Nafn: Birkir Þór Andrason.
Aldur: 7 ára í júní.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Við búum í Flögu í Skriðdal.
Skemmtilegast í skólanum: Útinám og frjáls leikur.
Áhugamál: Ég elska að vera úti að leika mér, og fara í sund.
Uppáhaldsdýrið: Kindur.
Uppáhaldslitur: Blár.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur með lifrarpylsu.
Uppáhaldslag: Allt með Magga Mix.
Uppáhaldsmynd: Minecraft.
Fyrsta minningin: Þegar við fluttum í Flögu.
Hvað ertu ánægður með í fari þínu? Ég er hjálpsamur.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Ferðalagið til Noregs síðasta sumar.
Hver er fyndnastur sem þú þekkir? Kalkúnarnir mínir.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Bóndi í Flögu með kindur og naut.
Áttu þér einhverja fyrirmynd? Já, Rúnar Örn, bróður minn.
Viltu taka þátt? Hafðu samband.
sigrunpeturs[hjá]bondi.is
