Hin kanadíska Roxy var einstök kýr.
Hin kanadíska Roxy var einstök kýr.
Mynd / Bob Miller
Á faglegum nótum 27. nóvember 2026

Fósturvísatæknin gjörbreytir nautgriparæktinni

Höfundur: Snorri Sigurðsson

Þegar rætt er um stærstu byltingarnar í nautgriparækt á síðustu hundrað árum ber oftast hæst tilkoma sæðinganna, erfðamengisúrvals og kyngreinds sæðis. Þessar tækninýjungar hafa án nokkurs vafa haft gríðarleg áhrif á þróun bæði mjólkur- og kjötframleiðslu en það er hins vegar ein bylting til viðbótar sem tengir í raun allar þessar framfarir saman og gerir ræktendum kleift að nýta þær af fullum krafti.

Sú tækni er fósturvísaframleiðsla og -flutningar en þeir eru orðnir daglegt verkfæri hjá stærstu ræktunarfyrirtækjum heims nú um stundir. Þeir eru notaðir til að flýta erfðaframförum, dreifa verðmætum erfðum milli landa og heimsálfa og framleiða næstu kynslóð nauta og kúa sem munu móta nautgriparækt framtíðarinnar.

Af framangreindum þáttum, sem hafa mikil áhrif á ræktunarframfarir í nautgriparækt, er fósturtæknin líklega sá þáttur sem hefur fengið minnsta athygli hér á landi enn sem komið er, ef frá er talin vinna við uppbyggingu holdakynjanna. Á þessu kann þó að verða breyting á komandi árum enda hefur tæknin og þekkingin á fósturvísaframleiðslu og -flutningum tekið miklum breytingum á örfáum áratugum.

Kýrnar í skugga nautanna 

Í áratugi hafa öflug sæðinganaut haft gríðarleg áhrif á hjarðir bænda um allan heim og einstök þekkt úrvalsnaut hafa náð mikilli útbreiðslu.

Oftar en ekki hafa þó úrvalskýr staðið í skugganum af úrvalsnautum ef svo má að orði komast, þó svo dæmi sé um gríðarlega áhrifamiklar kýr eins og hina þjóðþekktu Huppu frá Kluftum svo dæmi sé tekið úr hérlendri nautgriparækt.

En oftar en ekki hafa þó úrvals kýr ekki náð nálægt því sömu áhrifum og úrvals naut, enda geta kýr alla jafnan einungis eignast eitt afkvæmi á ári á meðan nautið getur átt hundruð eða jafnvel þúsundir afkvæma. Þannig hefur erfðafræðilegt framlag nauta jafnan verið margfalt meira en framlag einstakra kúa til ræktunarstarfsins. 

Þessi staðreynd var lengi vel töluverður veikleiki á ræktunarstarfinu en fósturvísaframleiðsla breytti því.

Fyrst framkvæmt árið 1890

Saga fósturvísaflutninga er líklega mun eldri en margir gera sér grein fyrir, en það var á þarsíðustu öld, nánar tiltekið árið 1890, að breski líffræðingurinn Walter Heape framkvæmdi fyrstu vel heppnuðu fósturvísaflutningana í spendýri, þegar hann flutti fósturvísa á milli kanína. Síðan tóku við áratugir frekari tilrauna og rannsókna á æxlun spendýra en það var þó ekki fyrr en í desember árið 1950 að fyrsti kálfurinn fæddist í Bandaríkjunum í kjölfar fósturvísaflutninga.

Á þessum árum var þó aðferðin einkar flókin og kostnaðarsöm auk þess sem árangurinn reyndist síður en svo alltaf góður. Það liðu því enn nokkrir áratugir til viðbótar þar til grunnurinn að nútíma fósturvísaflutningum var lagður af vísindafólki við Cambridgeháskólann sem öðrum fremur þróuðu þær aðferðir sem síðar breyttu fósturvísaflutningum úr rannsóknaverkefni yfir í hagnýtt ræktunartæki.

Á þessum árum kom fram tækni eins og svokölluð oförvun eggjastokka, söfnun fósturvísa með skolun, flutningur fósturvísa án skurðaðgerðar og frysting fósturvísa. Það var einmitt árið 1973 þegar fyrsti kálfurinn fæddist úr frystum fósturvísi. Þ

etta tímamótaskref gerði það að verkum að hægt var að flytja fósturvísa um heim allan og gjörbreytti öllum ræktunarmöguleikum enda þurfti fram að þessu að nota fósturvísana nánast strax eftir framleiðslu. Þetta hafði margvísleg áhrif enda lækkaði kostnaðurinn við alþjóðleg erfðaviðskipti verulega auk þess sem hætta á útbreiðslu sjúkdóma á milli landa minnkaði verulega.

Raunhæfur kostur

Í kjölfar brautryðjendastarfs vísindafólks Cambridge varð fóstur- vísatæknin raunhæfur kostur fyrir ræktendur og segja má að í dag séu bestu kýr heims ekki lengur heftar af því að geta bara eignast eitt afkvæmi á ári, heldur geta þær nú gefið af sér tugi eða jafnvel hundruð afkvæma á ári og haft þannig gríðarlega mikil áhrif á hjarðir bænda um allan heim.

Þetta má vel sjá innan Holstein kúakynsins í dag, mest útbreidda kúakyns heims, þar sem bændur með það kyn þekkja t.d. vel til hinnar kanadísku Glenridge Citation Roxy, en hún hefur oft verið kölluð „Drottning Holstein kynsins“. Roxy þessi var fædd hið magnaða ár 1968 og var einstök gæðakýr. Hún var bæði afurðahá og með gríðarlega góða byggingu sem gerði afkvæmi hennar einstaklega vinsæl til nota í kynbótastarfi víða um heim. 

Hún eignaðist 30 afkvæmi út frá fósturvísum og þrjú eigin afkvæmi, og undan henni komu ótal þekktir kynbótagripir. Raunar telja margir að fáar eða jafnvel engar einstakar kýr hafi haft meiri áhrif á þróun Holstein-kynsins á síðari hluta tuttugustu aldar en einmitt Roxy.

Glasafrjóvgunin

Þrátt fyrir miklar framfarir héldu vísindamenn víða um heim að leita áfram leiða til að auka enn frekar afköst tækninnar og það skilaði sér í formi glasafrjóvgunar, en fyrsti kálfurinn sem fæddist eftir frjóvgun eggfrumu utan líkamans kom í heiminn árið 1981 í Bandaríkjunum.

Í stað þess að bíða eftir því að fósturvísar mynduðust í gjafakúnni, voru eggin tekin beint úr eggjastokkum hennar, þau frjóvguð á rannsóknastofu og ræktuð áfram þar til tilbúnir fósturvísar höfðu myndast. Þetta opnaði alveg nýja möguleika enda var nú hægt að safna eggjum reglulega úr sömu kú og sömuleiðis einnig mögulegt að nýta ungar kvígur mun fyrr en áður.

En það var ekki fyrr en um og eftir aldamót sem glasafrjóvgun varð raunhæfur valkostur í stórum stíl. Þar lék Brasilía lykilhlutverk og er í dag langstærsti fram leiðandi glasafrjóvgaðra fósturvísa í heiminum.

Erfðamengisúrval magnar áhrifin

Með tilkomu erfðamengisúrvals hafa möguleikar hraðra framfara innan nautgriparæktar aukist enn frekar og má í raun orða það svo að erfðamengisúrval hafi margfaldað möguleg áhrif fósturvísaflutninga.

Fyrir tíma erfðamengisúrvals þurftu ræktendur oft að bíða árum saman eftir því að sjá raunverulega afkastagetu gripa, þ.e. kýrin þurfti að bera, mjólka og sýna hvað í henni bjó. Í dag er hægt að taka lítið erfðaefnissýni úr kálfi og fá nokkuð nákvæma mynd af erfðaeiginleikum hans örfáum vikum síðar. Þannig er í raun hægt að finna afburðagripina, löngu áður en þeir fara sjálfir að framleiða!

Þessi þekking hefur auðvitað gríðarleg áhrif á fósturvísafram- leiðslu og hafa því framleiðendur fósturvísa mikið til farið í það að framleiða fósturvísa úr ungum kvígum með hátt erfðamat. Fyrir vikið styttist kynslóðabilið verulega og erfðaframfarir aukast að sama skapi.

Kyngreinda sæðið bætir árangurinn

Síðasta stökkið í sögu fósturvísa- flutninga má heimfæra upp á kyngreinda sæðið. Með tilkomu þess að geta flokkað sæði nauta niður í sæði sem eykur líkur á annaðhvort kvígu- eða nautkálfi er nú hægt að snarauka líkurnar á því að bændur fái fyrst og fremst kvígur úr fósturvísaflutningum.

Þannig má segja að með erfðamengisúrvali, notkun á kyngreindu sæði og glasafrjóvgun náist hámarks árangur miðað við núverandi þekkingu og þetta er í dag kjarninn í ræktunarstarfi margra af stærstu fyrirtækjum heims á þessu sviði. Nú er því búið að sameina líftækni, erfða- greiningar og gagnavinnslu á þann hátt að erfðaframfarir hafa orðið hraðari en nokkru sinni fyrr í sögunni.

Staðan í dag

Á hverju ári eykst framleiðsla á fósturvísum innan nautgriparæktar. Fyrir aðeins rúmum áratug voru framleiddir innan við ein milljón nautgripafósturvísa á heimsvísu árlega en nú er sú tala komin yfir tvær milljónir og heldur áfram að hækka ár frá ári.

Þannig nam t.d. framleiðsla ársins 2023 alls 2,2 milljónum fósturvísa en ári síðar var hún komin í 2,3 milljónir. Af þessum 2,3 milljónum fósturvísa voru um 87% þeirra framleidd með glasafrjóvgun sem sýnir vel hve mikilli útbreiðslu sú aðferð hefur nú þegar náð.

Sé litið til helstu kynbótafyrirtækja heims, bæði í Evrópu og Ameríku, þá virðist sem þau séu öll að leggja aukna áherslu á fósturvísaframleiðslu sína og bjóða það sem valkost fyrir bændur samhliða framboði á bæði kyngreindu og ókyngreindu sæði.

Hvert stefnir?

Þegar litið er yfir meira en hundrað ára sögu fósturvísaframleiðslu er erfitt að draga aðra ályktun en þá að fósturvísatæknin hafi verið ein stærsta bylting sem orðið hefur innan nautgriparæktar, og það sem hófst með tilraun Walter Heape á kanínum á þarsíðustu öld hefur nú vaxið í alþjóðlega hátækniiðngrein sem framleiðir gríðarlegt magn fósturvísa á hverju ári. Þessi tækni hefur ekki aðeins fjölgað afkvæmum úr bestu kúm heimsins, heldur einnig gjörbreytt því hvernig ræktendur hugsa um erfðaframfarir og gerir þeim kleift að nýta erfðamengisúrval og kyngreint sæði mun betur á kvendýrahliðinni.

Ef marka má hraða þróunarinnar undanfarna tvo áratugi er líklegt að saga þeirra sé enn aðeins rétt að byrja enda berast nú fregnir af því að vísindamenn séu t.d. farnir að erfðaprófa fósturvísa áður en þeir eru settir upp! Það þýðir með öðrum orðum að bóndinn sem velur að fá fósturvísa setta upp í kvígur eða kýr á búi sínu getur í raun valið fósturvísana út frá hundruðum erfðavísa!

Valið nákvæmlega hvaða eiginleika hann er að sækjast eftir og er nokkuð viss um að niðurstaðan verði sú sem sóst er eftir.

Skylt efni: nautgriparækt

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...