Gríðarleg ásókn í slátrun
– Mikil verðmætasköpun í afurðum af fullorðnu fé
Slátrun er nýlokið á Grímsstöðum í Reykholtsdal í Borgarfirði, en þetta er annað árið sem slátrað er samkvæmt nýju leyfi sem heimilar slátrun fyrir allt að 100 fjár á dag.
Áður störfuðu ábúendurnir Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir og Hörður Guðmundsson samkvæmt reglugerð um lítið sláturhús á lögbýlum, sem gefin var út árið 2021, þar sem heimilt er að slátra 30 fjár á dag.
Fjárfestingin byrjuð að skila sér
Þau reistu sér kjötvinnslu á bænum árið 2020 með það fyrir augum að byggja við hana lítið sláturhús fengist leyfi fyrir slíkum rekstri í landinu – sem síðan raungerðist árið eftir. Síðan hafa þau rekið sína starfsemi undir vörumerkinu Grímsstaðaket.
„Við vorum alltaf ákveðin í að fara alla leið í þessu. Gerðum okkur grein fyrir því að þetta yrði mikil vinna og tæki smá tíma fyrir fjárfestinguna að fara að skila einhverju til baka. Það má eiginlega segja að það sé byrjað að gera það núna,“ segir Jóhanna um þessi fyrstu ár.
„Við höfum unnið fyrir lágt kaup fram að þessu, því vinnustundirnar hafa verið mjög margar. Við erum komin á þann stað núna að við erum farin að vinna fyrir einhverju kaupi. Það sem hefur líka skilað okkur meiri fjárhagslegum slagkrafti sjáum við núna með því að stækka við okkur og auka umfang slátrunar – það fylgir því ákveðin stærðarhagkvæmni. Í raun höfum við gert eitthvað á hverju ári til að bæta aðstöðuna, bæði stækkanir og endurbætur ýmsar. Áður slátruðum við þrjá daga í viku og 30 gripum á dag, sem fól í sér meira óhagræði hvað varðar kostnað við eftirlit, starfsfólk og annað.“
Jóhanna bendir á að þegar þau störfuðu samkvæmt fyrra leyfi þá var kostnaður vegna dýralæknis greiddur af ríkinu. Núna greiði þau sjálf þann kostnað, en samt sé meiri hagkvæmni við núverandi fyrirkomulag.
Lokaðist fyrir góða þjónustu á Blönduósi
Með stækkuninni eru Grímsstaðir komnir í flokk með Sláturhúsi Vesturlands í Borgarnesi og Refsstað í Vopnafirði. Jóhanna segir að áður hafi mest verið slátrað frá þeim en um 20 gripum frá öðrum í viku hverri. Þau hafi fundið fyrir mikill ásókn í að komast að hjá þeim með slátrun og það hafi líkað ráðið miklu um að þau fóru í stækkunina.
„Núna erum við komin í minnihluta þeirra bænda sem slátra hjá okkur. Við tökum til dæmis megnið af sláturfé frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Þau ákváðu að koma til okkar eftir að lokaðist fyrir þá góðu þjónustu sem þau og aðrir Beint frá býli (BFB)-bændur fengu á Blönduósi þegar sláturhúsinu þar var lokað,“ segir Jóhanna, en hún hefur verið formaður Beint frá býli, félags heimavinnsluaðila (BFB), frá 2024. „Annars eru þetta mest vel valdir dilkar frá ýmsum nágrönnum og nálægum sveitum sem bændur senda til okkar,“ bætir hún við.
Eftirsóknarverð þjónusta
Spurð um þessa sérstöku þjónustu sem bændur sækist eftir hjá þeim, segir Jóhanna að fyrir það fyrsta sé það regla hjá þeim að skrokkar hangi í fimm daga eftir slátrun. „Við pökkum líka í poka og kassa, þannig að afurðirnar séu tilbúnar til afhendingar með þeim hætti til viðskiptavinanna. Þá tökum við líka að okkur úrbeiningu á ærkjötinu, sem mikið er sóst eftir.
Mér finnst merkilegt að í raun var eftirspurn eftir því að komast að í slátrun til okkar það mikil að við urðum að vísa bændum frá.“
Alls starfa átta starfsmenn við slátrunina á Grímsstöðum og dýralæknir er auk þess á staðnum. Þegar blaðamaður kom á Grímsstaði á lokadegi sláturtíðarinnar var 88 gripum slátrað, 25 lömbum og 63 fullorðnu. Alls hafði þá verið slátrað um 1.300 fjár.
Hæsta meðaleinkunn fyrir gerð
Samkvæmt yfirlitsgögnum frá Matvælastofnun yfir heildarkjötmat í landinu á síðasta ári, var hæstu meðaleinkunn fyrir gerð að finna einmitt á Grímsstöðum, eða 10,19. Jóhanna segir að skýringuna megi að hluta til rekja til þess að bændur sem láti slátra hjá sér séu sjálfir að selja afurðirnar áfram. „Þess vegna senda þeir sín bestu lömb til okkar sem þeir velja sérstaklega,“ segir hún.
Hún segist hins vegar ekki geta skýrt það hvers vegna þau skáki hinum litlu sláturhúsunum að þessu leyti, það sé í sjálfu sér rannsóknarefni. En það var sláturhús KVH á Hvammstanga sem var með næsthæstu meðaleinkunn fyrir gerð, eða 10,01.
Gríðarleg ásókn
„Tækifærin eru svo sannarlega til staðar,“ segir Jóhanna þegar hún er spurð hvort hún vilji hvetja aðra bændur til að fara út í sambærilegt ferli og þau hafa farið í gegnum.
„Við sjáum að ásóknin í þessa þjónustu hjá okkur er gríðarleg. Samt erum við tvö sláturhúsin á Vesturlandi sem erum í sambærilegri starfsemi. Ég hef fundið fyrir því að bændur eru að hugsa sig um, spyrja okkur um reynsluna og ég hef bara stutt fólkið heilshugar í því að skoða málin vel og taka af skarið ef aðstæður leyfa.
Bæði er hraðinn minni, hægt er að láta skrokka hanga lengur og því hægt að skila ákjósanlegum afurðum út úr ferlinu. Síðan eru afurðirnar upprunamerktar og vegna alls þessa er líka hægt að verðleggja afurðirnar hærra – sem leiðir til mun hærra afurðaverðs til bænda. Sérstaklega var munurinn mikill þegar við tókum við Grímsstaðabúinu árið 2017, á útgefnu afurðastöðvaverði fyrir dilkakjöt og því afurðaverði sem hægt var að fá með því að bændur seldu sjálfir.“
Helsti ávinningurinn í afurðum af fullorðnu
Hún segir helsta ávinninginn hvað afurðaverðið varðar þó hafa reynst vera í afurðum af fullorðnu fé, ær- og sauðakjöti. „Ærkjöt er allt úrbeinað og seldir eru stakir bitar eða heilir ærskrokkar. Kjöt af veturgömlu og sauðakjöt er reykt, læri og frampartar, en hryggir eru úrbeinaðir og hryggvöðvarnir seldir ferskir. Einnig er kjöt af veturgömlu og sauðum selt í heilum skrokkum, sagað eða úrbeinað eins og við þekkjum að lambakjöt er verkað. Það er alltaf að aukast.
Við reynum að gera vörur úr öllu sem til fellur og nýtum allt sem ekki getur verið ferskvara úr ærkjöti í til dæmis bjúgu.
Þegar við vorum að byrja í þessu seldum við í raun mjög lítið af ærkjöti, en núna erum við meira að segja að kaupa til okkar ær til að geta annað eftirspurn eftir vörunum okkar.
Aukna aðsókn í okkar afurðir held ég að megi bara skýra með orðsporinu, þetta spyrst út. Við höfum ekki farið í neinar markaðsherferðir og förum ekki oft á viðburði til að auglýsa vörurnar okkar. Okkar helsti viðskiptamannahópur er af höfuðborgarsvæðinu.“
Aðild að SSFM til bóta
BFB var stofnað árið 2008 og varð aðildarfélag að Samtökum smáframleiðenda matvæla (SSFM) árið 2022. Jóhanna segir að félagið hafi vaxið eftir þessa breytingu. Áður hafi lítil sem engin starfsemi verið innan félagsins.
Eftir að við gerðumst aðildarfélag fengum við framkvæmdastjóra sem hefur síðan þá unnið að okkar hagsmunum og hagsmunagæslu. Félagið hefur stækkað og orðið mun sýnilegra fyrir neytendur, sem sést vel þegar við fórum að halda Beint frá býli-daginn þar sem aðsókn hefur alltaf verið mjög góð. Okkar tilfinning er að neytendur beri traust til félagsins og þeirra fyrirtækja sem starfa undir merkjum þess.
Við græddum heilmikið á þessum breytingum, því þá fengum við framkvæmdastjóra sem hefur unnið að okkar hagsmunum eins og þurfti. Samtökin hafa eflst heilmikið líka og félagsfólki fjölgað. Það eru nú um 250 fyrirtæki og framleiðendur undir hatti SSFM.
Hjá okkur hefur félagsstarfið verið frekar stöðugt með kannski svolítilli fjölgun félaga síðustu árin,“ útskýrir Jóhanna.
Hún bendir á að það hafi einmitt verið vegna styrksins sem heildarsamtökin hafi sem náðst hafi fram ýmsar úrbætur í starfsumhverfinu. Til dæmis í því hvernig smáframleiðendur matvæla starfa undir þeim ströngu reglum sem gilda um þessa starfsemi. „Okkur gengur almennt betur núna að starfa í því regluverki sem var kallað „íþyngjandi“ í ýmsum atriðum. Það eru enn vandamál sem koma upp auðvitað en það hefur samt mikið breyst til batnaðar – aðallega hafa mál verið einfölduð og verklag er skýrara gagnvart smáum framleiðendum.
Ég held að það sé full ástæða til bjartsýni í þessum málum. Gaman að segja frá því að við fáum nema til okkar á hverju hausti frá Hvanneyri og í haust var hópurinn sérlega áhugasamur um að fara út í svipaða starfsemi á sínum bæjum og við stundum hér á Grímsstöðum.“
