Mikilvægt skref til aukinnar verðmætasköpunar
Við hjá Landsvirkjun fögnum nýrri nýsköpunarstefnu Suðurlands. Stefnunni er ætlað að skapa betri skilyrði fyrir nýsköpun og verðmætasköpun í landshlutanum með áherslu á þrjár grunnstoðir: viðhorf, innviði og fjármagn.
Að mati Landsvirkjunar felast sterkustu sóknarfærin í auknu samstarfi atvinnulífs, menntastofnana, sveitarfélaga og frumkvöðla. Á Suðurlandi eru einstakar aðstæður þar sem saman fara öflug orkuframleiðsla, landbúnaður, matvælaframleiðsla og ferðaþjónusta. Þessi fjölbreytni skapar verðmæta þekkingu og reynslu sem getur orðið grunnur að nýjum lausnum og aukinni verðmætasköpun.
Nýsköpun er leið til að skapa meiri verðmæti úr auðlindum, styrkja samkeppnishæfni, draga úr umhverfisáhrifum og skapa ný tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki. Við hjá Landsvirkjun leggjum okkur fram um að vera góður granni og hlökkum til að sjá hvaða hugmyndir fæðast á stærsta orkuvinnslusvæði okkar.
Ábyrg nýting, minni sóun, aukið virði
Í nýsköpunarstefnu Suðurlands er lögð áhersla á aukna verðmætasköpun úr auðlindum og þróun hringrásarhagkerfis þar sem orka, vatn, glatvarmi og aðrar auðlindir eru nýttar á skilvirkari hátt. Þetta fellur vel að áherslum Landsvirkjunar um ábyrga auðlindanýtingu, minni sóun og aukið virði úr þeim endurnýjanlegu auðlindum sem fyrirtækinu hefur verið treyst fyrir.
Við hjá Landsvirkjun höfum um árabil tekið þátt í samstarfi sem styður við nýsköpun og frumkvæði á Suðurlandi, meðal annars innan samstarfsverkefna á borð við Orkídeu. Þá styður fyrirtækið einnig við uppbyggingu nýsköpunarmenningar meðal ungs fólks með þátttöku í verkefnum á borð við Unga frumkvöðla, sem standa árlega að Fyrirtækjasmiðju.
Við viljum eiga í sem mestum viðskiptum við nærsamfélög okkar og það á einnig við um nýjar lausnir. Með því að vinna með frumkvöðlum og nýsköpunarfyrirtækjum getum við bæði styrkt okkar eigin starfsemi og skapað tækifæri fyrir verðmætasköpun á svæðinu.
Byrjum í skólunum
Í nýsköpunarstefnunni er jafnframt lögð rík áhersla á að byggja upp nýsköpunarmenningu frá unga aldri með því að efla nýsköpunarhugsun, frumkvæði og skapandi lausnaleit á öllum skólastigum. Þar skiptir máli að styrkja þekkingu og hæfni kennara, þróa námsefni og tengja nám við raunverulegar áskoranir í samstarfi skóla og atvinnulífs. Með því er lagður grunnur að framtíðarkynslóðum sem sjá tækifæri til umbóta, hugsa í lausnum og hafa vilja og færni til að þróa nýjar hugmyndir. Slík hugsun er ekki síður mikilvæg innan starfandi fyrirtækja en við stofnun nýrra, það vitum við hjá Landsvirkjun að fenginni reynslu, og getur orðið drifkraftur framfara og aukinnar verðmætasköpunar til framtíðar.
Mikilvægi orkunnar
Í nýsköpunarstefnu Suðurlands er jafnframt bent á mikilvægi orku sem forsendu atvinnuþróunar. Landsvirkjun tekur undir að öruggir og öflugir orkuinnviðir séu lykilforsenda þess að ný fyrirtæki og ný verkefni geti orðið að veruleika. Jafnframt þurfi að horfa til þess að orka er takmörkuð auðlind og mikilvægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um hvernig hún nýtist til að skapa sem mest verðmæti fyrir samfélagið.
Að mati Landsvirkjunar mun árangur nýsköpunarstefnunnar ráðast af því hvort hún leiði til framkvæmda. Mikilvægt er að forgangsraða aðgerðum, skilgreina ábyrgð og fylgjast með raunverulegum árangri, hvort sem er í formi nýrra starfa, aukinnar framleiðni, minni sóunar, minni losunar eða aukinnar verðmætasköpunar.
Við hjá Landsvirkjun tökum áfram virkan þátt í samtali um framtíð nýsköpunar á Suðurlandi og vinnum með fyrirtækjum, frumkvöðlum og samfélögum að lausnum sem styrkja atvinnulíf, auka samkeppnishæfni og stuðla að sjálfbærri þróun svæðisins.
Höfundur er framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun.
