Sverrir Bollason er nýr formaður Skógræktarfélags Íslands
Sverrir Bollason er nýr formaður Skógræktarfélags Íslands
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– segir nýr formaður Skógræktarfélags Íslands

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunum. Hann segir verkefnið ærið að vinna að vexti og viðgangi skóganna á Íslandi og til þess þurfi að hafa allar klær úti.

Helsta verkefnið hans og SÍ sé þó að rækta félagsauðinn í skógræktarfélögunum um allt land, sem alls eru 60 talsins.

Ekki lítið verk að halda utan um 60 félög

„Það eru félögin og þeirra sjálfboðaliðar sem rækta sjálfan skóginn í flestum tilfellum. Það er okkar að búa til skjólið fyrir félagsstarfið og útvega það sem þarf svo þau geti sinnt sínu, sem er ekki lítið verk. Það eru vel á áttunda þúsund manns sem eru meðlimir í þessum félögum,“ segir Sverrir um helstu verkefnin sem verða á hans borði.

„Það er líka mikil saga, sum félaganna eru meira en aldargömul. En það er enn verið að stofna ný félög og endurvekja önnur. Fyrir fimm árum kom gríðarlega öflugt ungt fólk sem vildi láta til sín taka og þá var stofnað Skógræktarfélagið Ungviður. Bara núna í október var ég á endurvakningarfundi Skógræktarfélagsins í Kjós þar sem kom saman fólk sem vill láta til sín taka í skógræktarmálum sinnar sveitar,“ segir Sverrir enn fremur þegar hann er spurður um þróun í fjölda félaga á undanförnum árum.

Skógræktin hjálpar til við að klæða landið

„Við komum að mjög fjölbreyttum verkefnum og eigum í samstarfi við víðtækan hóp fólks og samtaka sem öll hafa áhuga á að klæða landið svo það verði ekki allt bert og sárt,“ heldur Sverrir áfram að útskýra eðli starfsemi SÍ.

„Það þarf að vernda moldina svo hún fjúki ekki burt og skógar hafa mjög mikilvægu hlutverki þar að gegna ásamt öðrum lausnum. SÍ og Bandalag íslenskra skáta eiga til dæmis í mjög öflugu samstarfi um skógrækt, landvernd og mótun útivistarsvæðis á Úlfljótsvatni.“

Skógræktin vinnuþjarkur í kolefnisbindingu

Þegar hlutverk SÍ í loftslagsmálum, losunarbókhaldi Íslands, er borið undir Sverri, segir hann að þrátt fyrir margar góðar hugmyndir sem hafi komið fram um hvernig megi binda það kolefni sem við losum út í andrúmsloftið, sé skógræktin vinnuþjarkurinn í því tilliti sem vinnur og vinnur og hefur gert í meira en öld. „Sem dæmi þá bundust 7.750 tonn kolefnis á hverju ári í Heiðmörk fjórum árum áður en ég settist í stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur árið 2020 og það hefur fjórfaldast síðan, bindur núna 31.000 tonn á hverju einasta ári.

SÍ vinnur að kolefnisbindingu í samvinnu við Landvernd gegnum kolefnissjóðinn Kolvið sem er að rækta kolefnisskóga á níu svæðum. Það eru gríðarlega spennandi hlutir að gerast þar.

Við eigum vitanlega líka í mjög góðri samvinnu við opinberar stofnanir og stjórnvöld. Skógræktarfélögin eru, gegnum SÍ, mikilvægur leikandi í að halda kolefnisbókhald Íslands. Öll gróðursetning, grisjun og fleira hefur áhrif á kolefnisbókhaldið. Þessum upplýsingum safnar SÍ og skilar til Lands og skógar. Ein elsta formfasta samvinnan fer fram á vettvangi Landgræðslusjóðs sem var stofnaður fyrir atbeina landsnefndar lýðveldiskosninganna 1944. Sjóðurinn úthlutar árlega til gróðursetningar og er án efa hagkvæmasta leiðin til skógræktar og að setja meiri bindingu í kolefnisbókhald landsins. Almennt er það þannig að SÍ tekur að sér alla hagsmunagæslu á landsvísu gagnvart ríkinu og einstaka skógræktarfélög verja sína hagsmuni í heimasveit.“

Útivist í skógum mesta byltingin

„Útivistarmöguleikar í skógunum og ásókn fólks í þá er það sem ég myndi segja að væri mesta byltingin að mínu mati hvað varðar skógræktarstarfið. Hugtakið var ekki til eða hafði í það minnsta ekki nándar nærri sömu merkingu þegar fyrstu skógarnir tóku að vaxa. En á 21. öldinni hefur almennur útivistaráhugi sprungið út með nýjum hætti. Ég held að þar eigi skógarnir í kringum þéttbýlisstaðina verulegan hlut að máli,“ segir Sverrir þegar hann er beðinn um að útskýra mikilvægi skóganna sem útivistarsvæða á seinni tímum fyrir almenning.

Hann segir að skógunum fylgi lognið, þar verði líka til ýmiss konar áhugaverð rými sem fólk sækir í. „Fólk sækir mjög í göngu, hlaup, hjólreiðar og útreiðar í skógum. Meira að segja að vetri kemur nýtt tímabil útivistar á gönguskíðum. Fólk nýtur kyrrðarinnar og þess að gróðurinn brjóti upp sjónlínur svo það upplifir meira næði. Minn uppáhaldsskógarhringur er, fyrir utan Elliðaárdalinn, uppi í Heiðmörk þar sem ég get skokkað stuttan eða langan hring og upplifað allan þann fjölbreytta gróður og fuglalíf sem er í skóginum. Stígarnir eru mjúkir undir fót og landslagið er stöðugt að breytast. En það er ekki bara verið að þjálfa þolið og vöðvana. Skógarböð hafa notið mikilla vinsælda og þar getur fólk hreinsað hugann í kyrrð skógarins og leyft ónæmiskerfinu að þjálfa sig. Dvöl í skógi eykur víst virkni varnarkerfis líkamans auk þess sem rósemdin styrkir ýmsa þætti sem tengjast geðheilsu fólks. Félagsheilsu má líka finna í skógunum gegnum þátttöku í starfi skógræktarfélaganna.

Svo verður að segjast eins og er að sókn fólks í ávexti skógarins, sveppina, er ein mesta menningarbreyting síðustu ára. Það er til marks um að við höfum aðgengi að nýju landslagi og það er gjarnan nýtt fólk á landinu sem er að kenna okkur hvernig á að nota skógana. Ég held að við eigum jafnvel inni allmörg tækifæri til að læra fleira um hvernig á að nota skóg og ég vil gjarnan flýta fyrir því með auknu vægi menningarlífs í skógum landsins.“

Opinn skógur uppfærður

Verkefnið Opinn skógur hefur um árabil verið rekið undir SÍ, en um samstarfsverkefni skógræktarfélaga og styrktaraðila er að ræða þar sem markmiðið er að opna skógræktarsvæði við alfaraleiðir, sem eru í umsjón skógræktarfélaga. Áhersla er lögð á að bæta aðgengi og miðla upplýsingum og fræðslu um lífríki, náttúru og sögu, svo almenningur geti nýtt sér skógana til áningar, útivistar og heilsubótar.

„Ég vil að SÍ taki mjög ákveðin skref í að auka við útivistarmöguleikana í skógum og bæta við aðstöðuna svo enn fleiri geti nýtt sér skóginn. Það er kominn tími til að uppfæra stýrikerfið í þessu verkefni og samræma það betur nútímanum,“ segir Sverrir um sína framtíðarsýn fyrir verkefnið.

„Opinn skógur á að verða kerfi og leiðarvísir fyrir skógræktarfélög um allt land til að gera skógana aðgengilega, skilgreina og miðla hvaða útivistarmöguleikar eru í skóginum, draga fram sérkennin á hverjum stað en gera viðmótið kunnuglegt.

Þetta er metnaðarfullt verkefni sem ég hef trú á að geti aukið enn á notagildi skóganna og lagt mjög mikið til bættrar heilsu almennings. Ég sé það þannig fyrir mér að skógræktarfélög sæki um að gera sína skóga opna og þurfi þá að uppfylla ákveðin lágmarksskilyrði fyrir því. Þau fái þá aðstoð við að skilgreina næstu verkefni til að svo megi verða. Þeir skógar sem þegar uppfylla lágmarksskilyrðin geta svo haldið áfram með því að breikka framboðið af útivistarmöguleikum, lengja leiðir eða fjölga og fá aðstoð við að draga fram sérkenni og eiginleika á hverjum stað. Undirbúningur þessa verkefnis hefur verið í mótun og nú finnst mér kominn tími á að taka næsta skref sem mun krefjast samstarfs- og kostunaraðila,“ segir Sverrir að lokum.

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...

Töfrar Tálknafjarðar
Fréttir 24. nóvember 2026

Töfrar Tálknafjarðar

Nýtt byggðaþróunarverkefni undir heitinu Töfrar Tálknafjarðar hófst formlega með...

Fjölmargir arnarungar komnir á legg
Fréttir 23. nóvember 2026

Fjölmargir arnarungar komnir á legg

58 arnarungar komust á legg í sumar. Varp fannst auk þess á þremur áður óþekktum...

Styrkur til nýtingar þurrkaðrar fiskeldismykju sem áburðar
Fréttir 23. nóvember 2026

Styrkur til nýtingar þurrkaðrar fiskeldismykju sem áburðar

Verkefnið Þurrkuð fiskeldismykja sem áburður hefur hlotið 15 milljóna króna styr...

Stuðningur við bændur hæstur á Íslandi
Fréttir 23. nóvember 2026

Stuðningur við bændur hæstur á Íslandi

Landbúnaðargeirinn í heild sinni stendur frammi fyrir tíðari áföllum sem eru alþ...

„Skaðinn er skeður“
Fréttir 23. nóvember 2026

„Skaðinn er skeður“

Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, segir fyrirtækið viðurkenna að mis...