„Skaðinn er skeður“
Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, segir fyrirtækið viðurkenna að mistök hafi verið gerð þegar særður grís, sem sést á myndbandi sem tekið var í svínabúi fyrirtækisins, var hafður með öðrum grísum. Hann segir hins vegar myndbandið ekki gefa rétta heildarmynd af aðbúnaði dýranna. Geir Gunnar segir að innbrot í bú fyrirtækisins hafi valdið miklu álagi á dýrin, meðal annars fósturlátum hjá gyltum, og að Stjörnugrís telji að fleiri innbrot hafi átt sér stað en þau fjögur sem hann segir að Einar Logi Pétursson hafi játað. Þá segir hann fyrirtækið ekki uppfylla nýja aðbúnaðarreglugerð að fullu og að byggja þurfi ný hús til þess. Hann segist jafnframt telja að myndbirtingarnar hafi þegar skaðað traust neytenda á íslenskri svínakjötsframleiðslu.
Stjörnugrís hefur verið í fréttum eftir að Einar Logi Pétursson birti myndband sem hann tók eftir að hafa farið í óleyfi inn í svínabú fyrirtækisins. Á myndbandinu sjást meðal annars dauðir grísir, dýr með sár og grís með stórt sár á baki.
Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, segir í Útvarpi Bændablaðsins að málið sé enn hjá lögreglu. Samkvæmt upplýsingum sem fyrirtækið hafi fengið hafi Einar Logi játað fjögur innbrot í starfsemi Stjörnugríss.
„Við teljum að myndskeið hafi sýnt fimmta innbrotið og teljum að þau hafi jafnvel verið fleiri,“ segir Geir Gunnar.
Hann segir hægt að sjá á birtu myndbandi að myndefni sé tekið í búi sem hafi, samkvæmt upplýsingum fyrirtækisins frá lögreglu, ekki komið fram í játningunni.
„Það er alveg ljóst að þau eru fleiri. Við sjáum það á myndbandinu.“
Segir fyrsta innbrotið hafa haft mikil áhrif á dýrin
Geir Gunnar segir fyrsta innbrotið hafa verið í maí og að mikið tjón hafi orðið á búinu. Dauð og slösuð dýr hafi verið þar auk þess sem búnaður á skrifstofu, starfsmannaaðstöðu, fóðurherbergi og í innréttingum hafi verið lagður í rúst.
Hann segir grísi hafa farið á flakk um búið og blandast saman eftir að ráðist hafi verið á fæðingardeildina.
„Það voru sjö gyltur sem köstuðu fóstrum,“ segir Geir Gunnar.
Hann segir fyrirtækið jafnframt hafa séð breytingar á framleiðslutölum eftir innbrotið. Meira hafi verið um andvana fædda grísi, gotin hafi verið minni og fleiri grísir veikburða.
„Fjöldi andvanafæddra hjá okkur fjölgaði um helming á þessum þremur mánuðum sem leið þarna á milli og fjöldi dauðra gylta jókst um tvo þriðju,“ segir hann.
Að hans sögn sé enn verið að vinna upp áhrifin.
„Við tökum það alveg á okkur“
Mynd sem vakið hefur sérstaka athygli sýnir grís með stórt sár á baki. Geir Gunnar segir um fæðingargalla að ræða.
„Við höfum nú séð þetta áður. Þetta er fæðingargalli.“
Hann segir að í sumum tilvikum hafi dýralæknir saumað slík sár en að í öðrum tilvikum grói þau með tímanum.
Spurður hvort grísinn hefði ekki átt að vera einn í sjúkrastíu segir hann svo vera.
„Þetta er klárlega það sem við myndum segja að séu mistök og frávik. Hann hefði átt að vera í sér stíu.“
Hann bendir jafnframt á að ekki sé hægt að aðskilja grísi í langan tíma og segir að hugsanlega hefðu rétt viðbrögð verið að slátra dýrinu.
„Við tökum það alveg á okkur.“
Geir Gunnar telur þó að myndbandið í heild dragi ekki upp rétta mynd af aðbúnaði hjá fyrirtækinu. Af um 160 dýrum sjáist að hans sögn tvær gyltur með lítils háttar sár sem hafi verið í meðhöndlun, andvana grísir og einn veikburða grís.
„Ég verð að viðurkenna það að þessi grís sem er með sárið á bakinu, það hefði betur mátt taka hann frá. Við munum nefna því bara réttu nafni, það er bara frávik.“
Segir engin legusár hafa fundist í þrjú ár
Geir Gunnar segir einnig að sár sem sjáist á gyltum séu nuddsár en ekki legusár. Stjörnugrís hafi tekið upp strangt eftirlit til að koma í veg fyrir legusár.
„Á þessu búi hefur ekki verið legusár í þrjú ár.“
Hann segir að þegar búið hafi verið opnað fyrir RÚV með skömmum fyrirvara hafi ekki fundist ein gylta með legusár. Þá segir hann skýrslu Matvælastofnunar staðfesta að ekkert legusár hafi sést á neinni gyltu í búinu undanfarin þrjú ár.
Dýr geti þó meitt sig í búfjárrækt og segir hann öll slík tilvik meðhöndluð. Dýralæknir komi að lágmarki mánaðarlega inn á búið, fari yfir stöðuna og veiti ráðgjöf um lyf og meðhöndlun.
Reynt að tryggja velferð með starfsfólki, húsum og búnaði
Aðspurður hvernig Stjörnugrís tryggi velferð dýranna í daglegum rekstri nefnir Geir Gunnar góða húsakosti, búnað og starfsfólk.
„Við ráðum ekki neitt fólk inn til okkar sem hefur ekki að lágmarki tveggja ára reynslu í svínarækt eða menntun eða hvort tveggja.“
Bústjóri sé á hverju búi auk yfirbústjóra sem fari á milli búa. Þá nýti fyrirtækið sér sérfræðinga í fóðrun og erlenda dýralækna við ráðgjöf.
Stjörnugrís hafi afhent Matvælastofnun gögn um afföll á búunum og segir Geir Gunnar gögn fyrirtækisins sýna að afföll séu mun minni en í erlendum landbúnaði.
Hann segir einnig að Stjörnugrís hafi fyrir nokkrum árum hætt að gelda grísi. Halaklippingar séu hins vegar enn framkvæmdar en stefnt sé að því að hætta þeim.
Fyrirtækið hafi áður gert tilraun til þess árið 2011 í samstarfi við Matvælastofnun.
„Það sprakk allt í andlitið á okkur með mikilli sýklalyfjanotkun og vandamálum,“ segir Geir Gunnar.
Hann segir vandann flókinn, meðal annars vegna þess að grísir geti tekið upp á því að naga hala hver á öðrum. Þar komi meðal annars fóðrun, erfðir, loftræsting, lýsing, pláss og lögun stía við sögu.
MAST kemur að jafnaði árlega
Geir Gunnar segir Matvælastofnun sinna ítarlegu eftirliti með búum Stjörnugríss. Að jafnaði sé farið einu sinni á ári yfir hvert bú, auk þess sem stofnunin komi vegna ábendinga.
„Það er farið yfir öll atriðin, allt mælt, ljós, loftgæði, stíur og öll dýr skoðuð, allar skráningar skoðaðar og svo framvegis.“
Hann segir eftirlitið taka þrjár til fjórar klukkustundir á hverju búi.
Heimsóknirnar séu boðaðar fyrir fram, oft með nokkurra daga fyrirvara og stundum allt að viku eða tíu dögum. Geir Gunnar hafnar því hins vegar að slíkur fyrirvari geri fyrirtækinu kleift að fegra aðstæður verulega.
„Þú breytir ekki svínabúinu bara á nokkrum dögum. Það er bara fásinna.“
Ef holdafar sé slæmt eða aðbúnaður ófullnægjandi lagist slíkt ekki á einni viku.
Uppfylla ekki aðbúnaðarreglugerðina að fullu
Geir Gunnar segir alltaf geta komið fram einhver frávik í eftirliti, til dæmis varðandi lýsingu, loftgæði eða undirburð. Stærsta málið sé þó að Stjörnugrís uppfylli ekki að fullu kröfur aðbúnaðarreglugerðar.
Helst snúist það um gotstíur.
„Við þurfum að taka í notkun nýjar gotstíur sem eru stærri, töluvert stærri heldur en það sem við höfum verið að nota eftir gömlu reglugerðinni.“
Einnig þurfi að bæta pláss annars staðar. Hann segir erfitt að gera breytingarnar í gömlum svínahúsum.
„Til þess að uppfylla þetta þá þurfum við að byggja.“
Þar hafi fyrirtækið hins vegar rekist á hindranir í skipulags-, starfsleyfis- og úrgangsmálum.
Geir Gunnar lýsir sérstaklega deilu vegna bús á Kjalarnesi þar sem úrgangur hefur verið hreinsaður þannig að þurrhlutinn sé tekinn frá en blauthluta dælt út í sjó. Hann segir fyrirkomulagið hafa verið við lýði í um 25 ár en að Umhverfisstofnun hafi síðar túlkað lög með öðrum hætti og talið losunina óheimila.
Það setji rekstur búsins í uppnám þar sem lítið land sé tiltækt á Kjalarnesi til dreifingar.
Hann segir kostnað við að byggja nýtt bú af þessari stærð geta verið yfir tveir milljarðar króna og að ofan á það kæmi uppbygging gyltubúa, einnig upp á milljarða.
„Við teljum það ekki forsvaranlegt eða ábyrgt að fara í svoleiðis framkvæmdir nema með vissu fyrir því að við getum nýtt þessi bú áfram.“
Geir Gunnar segir þó nú vera „ljós við enda ganganna“. Stjörnugrís sé að vinna að lausn úrgangsmála með landeldisfyrirtækjum í landinu sem standi frammi fyrir samsvarandi vanda og ætli jafnframt að fara af fullum krafti í að klára uppbyggingu gyltubúa.
„Verk að vinna traust neytenda til baka“
Rekstur Stjörnugríss hefur gengið vel og í viðtalinu kom fram að hagnaður fyrirtækisins hefði verið 554 milljónir króna á síðasta ári.
„Því ber að fagna,“ segir Geir Gunnar.
Spurður um þá kröfu að markaðsvernd íslenskrar svínakjötsframleiðslu feli í sér sérstaka skyldu gagnvart neytendum um aðbúnað og dýravelferð segir hann alla bændur hafa skyldu gagnvart neytendum.
„Við þurfum náttúrlega bara að hlusta á þá og þær kröfur sem eru gerðar til okkar og uppfylla þær.“
Hann segir þó stjórnvöld einnig þurfa að skapa rými til að hægt sé að uppfylla kröfurnar.
Aðspurður hvort myndirnar sem birtar hafa verið geti skaðað traust neytenda á íslenskri svínakjötsframleiðslu svarar hann játandi.
„Því miður held ég að skaðinn sé skeður í þessu og við sjáum það líka svolítið í sölutölunum.“
Hann segir verkefnið nú meðal annars felast í að koma réttum upplýsingum á framfæri.
„Það er náttúrlega verk að vinna við að ná trausti neytenda til baka.“
Segir viðbrögðin hafa valdið vonbrigðum
Geir Gunnar segist treysta því að lögregla, ákæruvald og dómstólar vinni úr innbrotamálinu. Stjörnugrís hyggist að svo stöddu ekki birta myndefni úr innbrotunum.
Hann vonast einnig til þess að skýrsla Matvælastofnunar verði lögð fyrir ráðherra og segir gögnin að sínu mati sýna að afföll séu innan marka.
Aðspurður hvaða lærdóm hann dragi af umræðunni eftir myndbirtingarnar segist hann fyrst og fremst hafa orðið fyrir vonbrigðum með hvernig umræðan þróaðist.
Hann segir fjölskyldu sína hafa fengið hótanir og gagnrýnir umfang fréttaflutningsins. Að hans sögn birtust 36 neikvæðar fréttir á einum degi en eitt andsvar frá fyrirtækinu.
„Það er erfitt að bera hönd fyrir höfuð sér.“
Geir Gunnar segir Stjörnugrís þurfa að svara yfirvegað og kurteislega á sama tíma og aðrir „láta gamminn geisa“.
Hann segir málið nú halda áfram hjá lögreglu og að Matvælastofnun sé jafnframt með það til skoðunar. Fyrirtækið hafi að hans sögn ekkert að fela.
„Við erum ekki með nein alvarleg frávik eða nein alvarleg mál á bakinu þannig að ég held að þetta sé nú bara allt í góðu lagi hjá okkur, þótt allt megi bæta.“
